Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
Herra forseti. Hv. 2. þm. Norðurl. e. spyr svipaðra spurninga og hann gerði í hv. fjh.- og viðskn. fyrir nokkrum dögum síðan. Þar mætti ég á fund að hans ósk og reyndi að greiða úr þeim spurningum í þessu sambandi sem hv. þm. hafði fram að færa. Ég vil svara þessu þannig að ég tel að sjálfsögðu að fyrst þurfi að liggja fyrir hvaða fjárveitingar verður um að ræða til einstakra hafna áður en unnt er að sjá það fyrir hver staðan er gagnvart framkvæmdum á hverjum einstökum stað. Það liggur ekki fyrir enn. Væntanlega hittast þingmannahópar á þessum sólarhring eða hinum næsta til að leggja lokahönd á skiptingu fjárveitinga í sínum kjördæmum þegar tillögur liggja fyrir um það og heildarfjárhæð til hafnaframkvæmda liggur fyrir, sem mér skilst að geri núna á þessu kvöldi frá fjvn.
Í öðru lagi er auðvitað nauðsynlegt að kanna afstöðu heimamanna til þess hvort menn vilja ráðast í lántökur því í þeim tilvikum hefur sveitarfélagið tekið lánið. Það þarf að vera um það samstaða og vilji í þingmannahópum kjördæmanna að haga þannig málum að fara út í lántökur til þess að geta flýtt tilteknum framkvæmdum eða unnið stóra framkvæmdaáfanga sem kalla á það að vera allir unnir á einu og sama árinu, eins og háttar til um margnefnda dýpkun innsiglingarrennunnar í Sandgerði.
Í þriðja lagi þarf að liggja fyrir hvort ætlunin er að ráðast í svo viðamikla lántöku, það háa upphæð að þörf sé talin vera á sérstakri heimild í lánsfjáráætlun fyrir slíku. Eins og hv. þm. öllum er væntanlega kunnugt hafa af og til tíðkast einhverjar lántökur með uppáskriftum þingmannahópa kjördæmanna án þess að talin væri sérstök ástæða fyrir lagaheimild í þeim tilvikum ef unnt hefur verið að útvega með einhverjum hætti lánsfé til slíks. En þá er gjarnan um minni upphæðir að ræða en hér í tilviki hafnarinnar í Sandgerði.
Mér hefur ekki verið skýrt frá því að fjvn. hafi endanlega afgreitt fyrir sitt leyti ákvarðanir um lántökur til hafna annað en ég veit og treysti að áður ákveðin lántaka til dýpkunarframkvæmdanna í Sandgerðishöfn verði inni. Mér er tjáð að það hafi verið til skoðunar hjá fjvn. hvernig framkvæmdir við styrkingu Suðurtanga í Hornafjarðarhöfn yrðu fjármagnaðar eða yrðu leystar. Ekki er víst að þar þurfi að koma til sambærileg lántaka þótt það hafi verði rætt. Því kann svo að fara að framkvæmdir þessar í Sandgerði verði þær einu sem fjvn. leggur til lántökur til, ef tekst að leysa þau vandamál sem komu upp og urðu mönnum ljós eftir óveður á sl. vetri við Hornafjarðarós. Það þýðir ekki í mínum huga að þar með séu menn búnir að afskrifa um aldur og ævi að lántaka geti komið til í þeim tilvikum að ráðast þurfi í stóra framkvæmdaáfanga sem ekki er hægt að skipta ef þingmannahópar viðkomandi kjördæma vilja lýsa stuðningi yfir við slíkt. Og ég tel að auðvitað hljóti að geta komið upp aðstæður á næstu árum sambærilegar þeim sem menn hafa staðið frammi fyrir í Sandgerði en þar
er um að ræða dýpkun á innsiglingarrennu sem ekki er unnt að framkvæma öðruvísi en að höfnin lokist meira og minna á meðan á framkvæmdum stendur. Og væntanlega skýrist þar af að menn telja ekki annað fært en að ljúka þeirri framkvæmd í einum áfanga. Þess vegna varð um það samkomulag milli þingmanna Reykjaneskjördæmis og samgrn. að fara út í slíka lántöku til að unnt væri að ráðast í þessa framkvæmd og ljúka henni og síðan mun Reykjaneskjördæmi endurgreiða þær lántökur af fjárveitingum sínum til hafnamála á næstu árum.
Varðandi aðstæður í hafnarmálum á Húsavík þá þekkjum við það báðir, hv. 2. þm. Norðurl. e. og ég, að þar er auðvitað mikil þörf á framkvæmdum á næstu árum. Þær verða ekki leystar á einu ári og ekki tveimur því þar bíða mikil verkefni, bæði dýpkunarframkvæmdir, að ljúka framkvæmdum við norðurgarð, við suðurgarð, endurnýja innri bryggjur o.s.frv., o.s.frv. En hversu stóran verkáfanga verður unnt að ráðast þar í á næsta ári verður að leiða til lykta í samstarfi þingmanna og heimamanna á staðnum.
Ég vona að þetta svar nægi hv. þm., a.m.k. verður hann að taka þetta fyrir svar á þessu stigi málsins því betra kann ég ekki.