Lánsfjárlög 1991
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Guðrún J. Halldórsdóttir (um atkvæðagreiðslu) :
    Virðulegi forseti. Þegar ég flutti nál. 2. minni hl. við þessi lánsfjárlög, þá gerði ég grein fyrir því að ég mundi flytja brtt. bæði við 19. og 20. gr. Í þessu nál. er grg. fyrir því hvernig stendur á að þessar tvær tillögur hafa fram komið. Ég bið þá sem eru hér viðstadda að vera svo væna að lesa það yfir. Ég geri ekki ráð fyrir að ég hafi svo langan tíma að ég megi ræða meira um þetta. En þegar umræðu í dag var slitið um lánsfjárlögin, þá stóð svo á að við vorum að ræða um annað mikilvægt mál, ég og skrifari þessarar deildar, og það fór fram hjá mér og gat ég því ekki gert grein fyrir þessum tillögum. En ef þið vilduð vera svo væn að lesa þetta vil ég ekki þreyta ykkur með meira málæði.