Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson) :
    Hæstv. forseti. Félmn. hefur komið saman á ný og fjallað um þetta mál og sent frá sér nál. á þskj. 400 ásamt brtt. á þskj. 401. Ég tel réttast að lesa upp nál., það skýrir best þessar brtt., en hér er um leiðréttingu að ræða samkvæmt ábendingum frá ráðuneytisstjóranum í félmrn. Nál. er svona:
    ,,Nefndin hefur komið saman eftir afgreiðslu frv. við 2. umr. til þess að ræða tillögur um breytingar á frv. Á fund nefndarinnar kom Berglind Ásgeirsdóttir ráðuneytisstjóri. Félmrn. hefur bent á að við setningu laga nr. 70/1990 hafi láðst að fella brott ákvæði í lögunum um Húsnæðisstofnun en þá fækkaði lánaflokkum Byggingarsjóðs ríkisins um tvo. Lán til almennra kaupleiguíbúða voru felld undir Byggingarsjóð verkamanna en lán til heilsuspillandi íbúða voru felld niður, sbr. 2. gr. laga nr. 70/1990 sem afnam 5. og 10. tölul. 11. gr. laga nr. 86/1988. Hins vegar voru viðeigandi ákvæði um fyrrgreind atriði í sjálfum efnisköflum laganna ekki felld brott og því gerð tillaga um nýja grein við frv. sem ætlað er að bæta úr þessu. Er hér um lagahreinsun að ræða.
    Seinni brtt. nefndarinnar víkur að tilvísun í 100. gr. laganna í 102. gr. þeirra. Þegar lög nr. 70/1990 (52 nýjar greinar) voru sett hafði lögunum áður verið breytt með lögum nr. 76/1989 (húsbréf, 19 nýjar greinar). Úr lögunum voru þá felldar 66 greinar. Við þetta átti sér eðlilega stað mikil tilfærsla á greinum. 100. gr. laganna, sem fjallar um uppboð, kemur í stað 70. gr. laga nr. 86/1988. Ekki var ætlunin að breyta þar nokkru um söluverð íbúða, sbr. athugasemdir frv. við þá grein. Í 70. gr. laga nr. 86/1988, sem fjallar eins og fyrr segir um söluverð íbúða, er vísað til 68. gr. laga nr. 86/1988. Sú grein laganna nr. 86/1988, sbr. lög nr. 76/1989 og nr. 70/1990, sem svarar til 68. gr. laga nr. 86/1988, er 101. gr. Því á tilvísun 100. gr. laganna um söluverð íbúða við uppboð að vera í 101. gr. en ekki 2. mgr. 102. gr. eins og ranglega var ritað í lögunum.
    Karl Steinar Guðnason var fjarstaddur lokaafgreiðslu málsins.``
    Undir þetta nál. skrifa Margrét Frímannsdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, Jóhann Einvarðsson, Salome Þorkelsdóttir, Jón Helgason og Danfríður Skarphéðinsdóttir, þ.e. öll félmn. utan Karl Steinar Guðnason sem var fjarverandi.
    Eins og fram kemur í brtt., þá vil ég bara til skýringar geta þess að 5. mgr. 13. gr. laganna sem á að falla brott er varðandi almennar kaupleiguíbúðir sem færast undir félagsmálakaflann. B - liðurinn, um að 20. -- 22. gr. laganna falli brott, er varðandi útrýmingu heilsuspillandi húsnæðis, enda taldar heimildir í félagslega kaflanum til þess og c - liðurinn, um að 7. mgr. 30. gr. laganna falli brott, er vegna almennra kaupleiguíbúða sem færast yfir í félagslega kaflann.
    Þessi tilvísun þarna í 2. mgr. 102. gr. og í 100. gr. laganna, sem er önnur brtt., er vegna þess að í öðru tilfellinu er vísað í innkaupsverð íbúða, í rauninni er það þegar íbúðir eru keyptar til baka af fyrri eiganda, og hins vegar um söluna. Ástæðan fyrir þessu er að þetta víxlaðist í lokafrágangi á sínum tíma en í báðum tilfellum er talað um söluverð en í öðru tilfellinu er átt við innkaupsverð íbúða frá fyrri eiganda og hins vegar um söluverð til nýs eiganda.
    Þetta eru beinar leiðréttingar og félmn. fékk skýringar hjá ráðuneytisstjóranum, Berglindi Ásgeirsdóttur, á þessum atriðum og leggur því til að þessar tillögur verði samþykktar.