Húsnæðisstofnun ríkisins
Miðvikudaginn 19. desember 1990


     Jón Kristjánsson :
    Herra forseti. Hv. 17. þm. Reykv. beindi til mín fyrirspurn varðandi meðferð þingflokks Framsfl. á skýrslu Ríkisendurskoðunar. Þingflokkurinn samþykkti framlagningu þess frv. sem hér er til umræðu. 1. þm. Vesturl. hafði þar um fyrirvara. Ég hef lesið skýrslu Ríkisendurskoðunar og þá þætti hennar sem varða þetta mál. Í henni koma ekki fram atriði sem breyta afstöðu minni til þessa frv. en ég skrifaði undir það án fyrirvara. Þingflokkur Framsfl. hefur ekki gert athugasemdir við þá afstöðu. Þingflokkurinn mun að sjálfsögðu ræða önnur atriði skýrslunnar. Til þess hefur ekki gefist tóm enn þá en það mun að sjálfsögðu verða gert.
    Að öðru leyti hef ég ekkert frekar um þetta mál að segja. Ég stend að áliti meiri hl. um þetta mál.