Alexander Stefánsson :
Herra forseti. Það vill svo til að ég hef ekki komið nálægt þessu frv. hér. Ég hef ekki mætt á fundum í félmn. Nd. Ekki af því að það hafi verið ásetningur heldur hafa annir í fjvn. verið slíkar að ég hef ekki komið því við. Hins vegar þykir mér rétt við þessa umræðu að láta það koma fram að ég stend ekki að þessu meirihlutaáliti sem hér liggur fyrir. Ég var búinn að lýsa því yfir í mínum þingflokki að ég væri andvígur þessu frv. og það þarf engum að koma á óvart. Ég hef verið andvígur þessari skriðu af breytingum sem á húsnæðiskerfinu hafa dunið og ég hef haldið því fram að húsbréfakerfið leysti ekki þann vanda sem húsnæðismál hér á landi eru í. Það væri aðeins til þess að auka vandann og ég stend við það. Ég tel að það hafi verið skammsýni hjá Alþingi að taka algerlega hráar þær breytingar sem menn létu yfir sig ganga. Það var ekkert gert til þess að skoða framtíðina í þessum málum. Það var ekkert gert til þess að átta sig á því hvert stefndi. Og það liggur ekkert fyrir um það enn í dag hvað menn eru að ana út í. Verðbréfamarkaðurinn eða peningamarkaðurinn hér á landi er þannig að hann þolir ekki svona aðgerðir eins og hefur verið stefnt að með húsbréfakerfinu. Það er alveg galopið. Þetta er eins og allir vita ekkert nema peningar, þetta er peningaprentun, sem eykur á þenslu í fjármagnskerfinu og hefur ófyrirsjáanlegar afleiðingar ef því er ekki stýrt og það er ekki hægt að stýra þessu kerfi eins og það er sett upp.
Ég tel að því miður sé alveg ljóst að það sem verið er að reyna að ýja að hér með þessari fljótaskrift á hv. Alþingi, að drífa þetta mál í gegn, sé að það eigi að bjarga fólki sem á í greiðsluerfiðleikum. Það gerir það ekki nema að litlum hluta. Það eykur vanda þessa fólks. Og það verða yfir 50% af þeim sem bíða eftir aðgerðum af þessu tagi hjá Húsnæðisstofnun sem verða út undan og geta aldrei fengið eina krónu úr þessu kerfi, það er vonlaust. Það eru aðeins þeir sem eru efnameiri, eiga miklar eignir, sem geta fengið fyrirgreiðslu í gegnum þessa aðgerð samkvæmt bráðabirgðaákvæðum þessa frv.
Ég vil aðeins láta þetta koma hér fram og ég vil benda á skýrslu Ríkisendurskoðunar máli mínu til stuðnings. Hún tekur á þessu máli á skýran hátt og leiðir fram einföld rök í málnu sem allir ættu að skilja. Þetta er ekki fyrir fólk með litlar eignir og í miklum erfiðleikum. Það hefur ekkert til að veðsetja í sambandi við þessi mál. Ég held að hv. alþm. ættu nú að fara að átta sig á því að það er orðið nauðsynlegt að hætta þessari fljótaskrift á eintómum breytingum í húsnæðiskerfinu. Það er löngu kominn tími til að setjast niður og stokka þetta kerfi upp og gefa sér tíma til þess. Ég hefði álitið tímabært nú að fresta afgreiðslu þessa máls og gefa sér tíma síðar í vetur til að átta sig á því hvað kemur út úr því.
Ég sagði við annað tækifæri í haust að það hefði verið hægt að leysa þessi vandkvæði fólks í greiðsluerfiðleikum með því að semja við lífeyrissjóðina um að fá 200, 300 eða 400 millj. að láni sérstaklega til
að greiða götu þess fólks sem er virkilega í vandræðum. Það verður ekki úr því dregið að það er fólk í vandræðum. Það þarf ekkert að vera að hræða fólk með neinum biðlistum. Það er fólk í vandræðum sem er hægt að leysa úr á annan hátt en að hella því yfir á verðbréfakerfið sem það ræður ekki við. Fyrir liggur að það eru alls ekki nema um 50% og e.t.v. undir 50% af þeim sem bíða eftir fyrirgreiðslu sem geta nýtt sér þá fyrirgreiðslu sem hér er verið að leggja til. Ég tala ekki um hinn þáttinn, að auka hlutdeildina úr 65% í 75%. Það leysir ekki heldur vandann, það eykur hann.
Herra forseti. Ég vildi aðeins láta það koma hér fram, vegna þess að það hafa sjálfsagt einhverjir fett fingur út í það að ég er ekki með hér á nál., að það er einvörðungu vegna þess að ég hef ekki getað sótt þessa fundi. En ég lýsti því yfir fyrir fram í mínum þingflokki, svo það kæmi engum á óvart, og ég veit að hæstv. forsrh. hefur skýrt frá því í ríkisstjórn að ég stóð ekki að þessu frv. og mun heldur ekki gera það.