Landbúnaðarráðherra (Steingrímur J. Sigfússon) :
Herra forseti. Ég vil biðja hv. 1. þm. Suðurl. og hv. 1. þm. Reykv. til viðbótar að vera ekki að barna orð mín hér. Ég sagði það mjög skýrt að þessi mál væru til umræðu í og á milli stjórnarflokkanna og þetta atriði málsins væri ekki útrætt í þingflokki Alþb. Menn hefðu viljað ræða frekari breytingar og sjá húsnæðismálasviðið fyrir sér í heild sinni og það hefði verið til umræðu í tengslum við upplýsingar um afkomu og stöðu byggingarsjóðanna o.fl. Ég greindi frá því sem þegar var orðin niðurstaða um, eins og vaxtamálin. Meira er ekki um þetta mál að segja. Þetta voru alveg skýr svör og upplýstu hv. þm. að mínu mati fullnægjandi um stöðu málsins. Ég vænti þess fastlega að þetta mál verði til lykta leitt með farsælum hætti væntanlega innan fárra klukkustunda milli stjórnarflokkanna.