Málefni aldraðra
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Guðmundur H. Garðarsson :
    Virðulegi forseti. Hv. 5. þm. Norðurl. e. Valgerður Sverrisdóttir er mjög heiðarleg og grandvör kona. Og það kom vel fram í ræðu hennar hér rétt áðan. Hún sagði nefnilega það sem skiptir máli. Hún sagði að það þyrfti að semja um mál til þess að þau næðu fram að ganga. Það er greinilegt að það hefur ekki tekist að
semja um það með þeim hætti að hægt væri að fella þetta út úr lánsfjárlögum við afgreiðslu þeirra hér í hv. deild í gærkvöldi. Þar með undirstrikaði hún að þörfin fyrir að taka af öll tvímæli, eins og brtt. 1. minni hl. gerir ráð fyrir, er mjög brýn, þ.e. að við hér í Ed. tökum af öll tvímæli um að skerðingarákvæðin skuli felld niður. Þar með erum við í þessari deild búin að taka af skarið og þarf ekki að semja um það hugsanlega við einhverja stjórnarsinna sem eru erfiðir í taumi hjá hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur. Við sameinumst þá, stjórnarliðar og stjórnarandstæðingar, sem höfum það að meginstefnumarkmiði að Framkvæmdasjóður aldraðra skuli fá sínar tekjur að fullu.
    Ég held að einmitt einnig það atriði sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir kom inn á, að vegna tímaleysis gefst okkur þetta einstæða tækifæri að ganga frá þessu hér í þessari deild vegna þess að lánsfjárlögin eiga eftir að fara í gegn í Nd. Ef stjórnarsinnar leggja svona mikla áherslu á afgreiðslu þessa máls með þeim hætti að fullt samkomulag sé í þinginu þá skulum við, stjórnarandstæðingar, hjálpa hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur og hæstv. heilbr.- og trmrh. að tryggja framkvæmd þessa atriðis.
    Þá er það hitt atriðið sem kom fram í ræðu hv. þm. Valgerðar Sverrisdóttur um 4. tölul. frv. sem varðar rekstrarfé. Hv. þm. sagði m.a. að þar væri aðeins verið að tala um nokkra mánuði. Ég held að orð dugi ekki til að stöðva það hvernig þetta hefur verið framkvæmt. Það er uppsafnaður vandi, sennilega um 100 millj. kr., í sambandi við rekstur þessara stofnana sem Framkvæmdasjóður á raunverulega ekki að bera ábyrgð á. Þannig að þótt hér sé gert ráð fyrir því í frv. að þetta sé aðeins til nokkurra mánaða er það staðreynd að það hefur ekki verið framkvæmt með þessum hætti. Þess vegna tel ég og við sem erum í minni hl. mjög hættulegt og varhugavert að opna þessa leið sem 4. tölul. 1. gr. gerir ráð fyrir. Þess vegna hljótum við, ef okkar brtt. verða ekki samþykktar, að greiða atkvæði gegn frv. eins og það kemur frá ríkisstjórninni vegna þess að það skerðir stöðu Framkvæmdasjóðs með þeim hætti sem við höfum lýst hér. Jafnframt liggur í augum uppi að stjórnarsinnar, sem vilja tryggja framgang þessa máls, geta greitt atkvæði með brtt. og tryggt það sem hv. þm. Valgerður Sverrisdóttir sagði og ég vil ítreka, að skerðingarákvæðin falli þar með niður í lánsfjárlögum.