Tekjuskattur og eignarskattur
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um tekju- og eignarskatt. Meginefni þessa frv. er að breyta tölulegum stærðum í gildandi lögum um tekju- og eignarskatt til þess að tryggja að skattbyrðin verði ekki meiri á næsta ári en hún er í ár. Þessar tölur í frv. eru í samræmi við forsendur fjárlaga og þær ákvarðanir sem teknar voru við framlengingu hinna svokölluðu þjóðarsáttarsamninga.
    Í sjálfu sér er í þessu frv. þess vegna eingöngu um slíkar tölulegar breytingar á ákveðnum stærðum í lögunum um tekju- og eignarskatt að ræða.
    Í öðru lagi er að finna í frv. ákvæði sem talið er nauðsynlegt af lagatæknilegum ástæðum um ríkisbréf. Því er ætlað að tryggja að sambærileg skilyrði séu um þessi verðbréf ríkisins og spariskírteini og ríkisvíxla. Þetta ákvæði er tengt ríkisbréfum sem er nýtt form af sparnaði sem ríkissjóður hefur boðið upp á til að brúa bilið milli ríkisvíxla og spariskírteina.
    Einnig er í frv. að finna ákvæði um leiðréttingar á málefnum þeirra sem töldu sig hafa orðið sérstaklega illa úti vegna breytinganna á kerfi húsnæðisbóta yfir í vaxtabætur.
    Ég mælist svo til þess, virðulegi forseti, að að lokinni 1. umr. verði frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn.