Húsnæðisstofnun ríkisins
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. félmn. (Jóhann Einvarðsson) :
    Hæstv. forseti. Ég verð að segja eins og er að mér þykir hafa verið flutt af síðasta ræðumanni langt mál um lítið efni. Þannig var að eftir að félmrn. hafði samband við mig hélt ég fund í hv. félmn. þar sem Sjálfstfl. á tvo ágæta fulltrúa. Þeim var gerð grein fyrir þessari litlu breytingu sem við vorum að gera, sem ég skal að vísu taka á mig að það fellur kannski ekki undir alveg íslenska túlkun á því að tala hér um lagahreinsun, réttara væri að segja að hér væri um leiðréttingu að ræða. Lagahreinsun hefur að vísu almennt þann skilning í huga flestra að þá sé verið, eins og við gerðum um daginn í öðrum lögum, að strika út lög sem eru orðin óbrúkleg eða þegar fallin úr gildi úr lagasafninu. Og það er alveg rétt hjá hv. 2. þm. Norðurl. e. að í þeirri sérprentun sem vitnað hefur verið til eru villur og þeir aðilar sem bera ábyrgð á henni hljóta að geta svarað fyrir það. Það er ekki á ábyrgð þingsins og eftir því sem ég best veit hefur Alþingi þegar gert athugasemdir við þessa sérprentun hvort sem þar hefur verið um mistök að ræða við þá gerð eða annað.
    En ég vil vekja athygli á því að þau atriði sem við erum að breyta með þessu litla frv., það er verið að leiðrétta, það er ekki verið að taka efnislega á neinum hlutum. Þegar við samþykktum lög nr. 70/1990 voru í 2. gr. þeirra felldir niður 5. og 10. tölul. 11. gr. laganna. Um það segir í frv. --- og þá var tekin efnisleg umræða um þessa hluti, og ég er út af fyrir sig reiðubúinn til þess við réttar aðstæður að taka upp efnislega umræðu um húsnæðismál í heild. Þessi breyting á ekkert skylt við efnislega umræðu um húsnæðislöggjöfina í landinu. Ég get staðfest það að árið 1986 sátum við hv. þm. saman í nefnd sem undirbjó þau ágætu lög, en Alþingi breytti þeim á sl. vori. Um 2.
gr. frv. sem síðan varð að lögum nr. 70/1990 segir svo í athugasemdum við frv. sem við samþykktum hér í vor: ,,Lagt er til að lánaflokkur sá sem felur í sér lán til útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði verði felldur niður, 5. tölul. 11. gr., enda leysa lánaflokkar Byggingarsjóðs verkamanna í raun slík mál og því óþarft að viðhalda hér sérstökum lánaflokki.`` Það sem skeður síðan er að þetta efnislega atriði í lögunum um lán til heilsuspillandi húsnæðis er fomlega fellt úr gildi og sagt: Það er heimild í hinum almenna lánakafla hjá Byggingarsjóði verkamanna til að veita alla þá fyrirgreiðslu sem þarf í þeim tilgangi. Það sem skeði síðan er að það verða þau mistök eða yfirsjón að það láðist að fella niður 20. og 22. gr. laganna sem áttu að falla niður. Eins og hefur komið fram voru viðamiklar breytingar gerðar á lögunum, ef ég man rétt með um eða yfir 60 brtt., þannig að það var kannski ekki óeðlilegt að mönnum yrði lítillega á í messunni. Ekki er núna verið að taka efnislega ákvörðun um að fella niður lán til útrýmingar heilsuspillandi húsnæðis.
    Í sömu athugasemdum segir: ,,Jafnframt er lagt til að lánaflokkurinn Lán til almennra kaupleiguíbúða,

þ.e. 10. tölul. 11. gr., teljist til félagslegra húsnæðislána þannig að til almennra kaupleiguíbúða verði framvegis lánað úr Byggingarsjóði verkamanna. Rök fyrir þessu eru þau að almennar kaupleiguíbúðir eru byggðar á félagslegum forsendum, eignarhaldið er félagslegt og rekstur. Jafnframt eru miklar takmarkanir á endursölu almennra kaupleiguíbúða sem bera svipmót af þeim hömlum sem gilda um félagslegt húsnæði. Má þar nefna að framkvæmdaraðili hefur skv. gildandi lögum kaupskyldu fyrstu fimm árin og síðan forkaupsrétt. Með framangreint í huga þykja almennar kaupleiguíbúðir eiga meiri samleið með félagslegum íbúðum en með íbúðum í almenna húsnæðiskerfinu.``
    Þetta er hin efnislega afgreiðsla sem gerð var sl. vor hér í hv. Alþingi. Það skeður nákvæmlega það sama í þessu atriði, í öllum þessum brtt. sem voru, hverjum sem um er að kenna, hvort það voru mistök, yfirsjón eða tímaskortur sem olli því að það tókst ekki að fara nægilega vel yfir, það láðist að fella úr gildi 5. málsgr. 13. gr. og 7. málsgr. 30. gr. um almennar kaupleiguíbúðir. ( HBl: Hvaða grein um félagslegar íbúðir leysir af hólmi 22. gr.?) Ég vil bara taka fram út af þessu frammíkalli að ég er ekki kominn að því að svara þeim athugasemdum sem komu um það. Þannig að ef ræðumaðurinn er að spyrja mig sem frsm. nefndarinnar um ákveðin atriði þarna þá vil ég líka að hann hlusti á það sem ég er að segja hérna. ( HBl: Ég gerði það.) Ja, ekki mjög vel. Þannig að ég tel mig núna vera búinn að svara þeim athugasemdum hans sem varða fyrri brtt. a., b. og c. Ja, menn eru misjafnlega góðir að skilja en þetta er útskýringin. ( HBl: Ég var að spyrja um 22. gr.) Ég er að koma af því. Þetta er líka komið inn í skilning allra hv. félagsmálanefndarmanna og þar var ekki nein deila um þennan skilning.
    Ég kem þá að 2. brtt. sem fjallar um þetta sem hv. þm. er að kalla frammí um. Að á eftir 1. gr. komi ný grein sem orðist svo: ,,Í stað orðanna ,,skv. 2. mgr. 102. gr.`` í 100. gr. komi: skv. 101. gr.`` Það er einn grundvallarmunur á 101. gr. og 102. gr. sem menn verða að hafa í huga þegar þeir lesa texta hvorrar greinar fyrir sig. 101. gr. fjallar um það þegar eigandi félagslegrar íbúðar ákveður að selja hana, á hvern hátt honum skuli þá reiknuð til eignar hlutdeild hans í þeirri íbúð. 102. gr. fjallar um það þegar á að endurselja þá íbúð. Þá er náttúrlega upphaflega kostnaðarverðið eða kaupverðið skv. 101. gr. notað, ásamt þeim kostnaði sem fer til endurbóta á íbúðinni og annarra þess háttar hluta. Þetta er aðalatriðið í þessu máli. Tilvísunin í 100. gr., sem fjallar um nauðungaruppboð, getur í raun á engan hátt verið með tilvísun í 102. gr., það er bara gjörsamlega útilokað. Hún hlýtur að fjalla um 101. gr. þegar eigandi ætlar annaðhvort að selja íbúðina eða missir hana. Ég held að þetta hljóti að vera mjög skýrt og ég held að ég þurfi ekkert að hafa mikið fleiri orð um það.
    Að það sé verið með þessu litla frv., sem er til leiðréttingar á því sem kannski við hv. þm. og félagsmálanefndarmenn höfum hlaupið á okkur að einhverju leyti í tímaskorti eða á annan hátt sl. vor, að það sé verið að rúlla í gegnum þingið einhverjum málefnalegum grundvallarbreytingum á húsnæðislöggjöfinni, það er alrangt. Ég get upplýst það hér að í samráði við menn í félmn. Nd. er þetta frv. m.a. flutt. Þeim var gerð grein fyrir hvað væri á ferðinni frá félmrn., ábendingar þaðan og það var talið fljótvirkara að taka það hér inn við 3. umr. og síðan færi það niður í Nd. heldur en að taka það upp í Nd. og svo kæmi frv. hingað aftur. En ég hygg að okkur hafi orðið á mistök. Það reynist ekki verða fljótvirkara þegar menn vilja ekki lesa þau gögn sem liggja fyrir um grundvallaratriðin í þessu máli og í öðru lagi taka ekkert mark á því sem fagnefndir hv. deildar hafa skoðað og eru einhuga um. Eru einhuga um, ég vil vekja sérstaka athygli á því.