Húsnæðisstofnun ríkisins
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Jóhann Einvarðsson :
    Hæstv. forseti. Alþingi tók efnislega ákvörðun um að leggja niður sérstakan lánaflokk í Byggingarsjóði ríkisins um heilsuspillandi íbúðir á sl. vori. Það láðist einhverra hluta vegna að fella skýringarákvæði niður í síðari gr. laganna, þ.e. 20. og 22. gr. Það er ekki verið að ræða hér um efnislega afstöðu til þessa máls. Það er heimild í lögunum um Byggingarsjóð verkamanna að taka þátt í að styrkja fólk sem á í vandræðum með heilsuspillandi íbúðir í þeim kafla laganna ( HBl: Sem fjallar um hvað?) um verkamannabústaði. ( HBl: Þetta er ósatt.) Ég held að við ættum að fresta allri efnislegri umræðu um þetta. Hér er verið að leiðrétta það sem láðist að gera sl. vor, ekki verið að taka efnislega ákvörðun sem var tekin sl. vor. Ég segi já.