Jöfnunargjald
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Fjármálaráðherra (Ólafur Ragnar Grímsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. um jöfnunargjald. Með þessu frv. er lagt til að breyta jöfnunargjaldinu á þann veg að það verði 4% frá og með 1. jan. n.k. og breytist síðan í 3% 1. sept. og verði þannig fram að áramótum.
    Þetta frv. er í sjálfu sér mjög einfalt. Það felur í sér að verið er að leggja niður það gjald sem það fjallar um og það er gert í áföngum, enda má segja að tími þess sé að ýmsu leyti liðinn þótt að mörgu leyti sé eðlilegt að Íslendingar taki upp margvísleg önnur jöfnunargjöld til þess að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra atvinnugreina samanborið við margvíslega styrkjastarfsemi erlendis frá. Tími jöfnunargjalda er þess vegna ekki liðinn þótt tími þessa jöfnunargjalds kunni að vera liðinn.
    Ég mælist svo til þess að að lokinni 1. umr. verði þessu frv. vísað til 2. umr. og hv. fjh.- og viðskn.