Guðrún Helgadóttir :
Hæstv. forseti. Ég kysi nú að hæstv. ráðherra væri viðstaddur. Ég harma satt að segja að hæstv. samgrh. skyldi ekki verða við þeirri eindregnu ósk minni að bíða með að mæla fyrir þessu frv. þar sem honum var mjög vel kunnugt um að ég vildi eiga við hann orðastað um það. Ég fæ nú ekki séð hvers vegna það var svo brýnt að koma þessu máli til nefndar fyrir jól. Ég hygg að ekki verði mikið gert með það á þessum tíma sem eftir er. Ég skal því, hæstv. forseti, sýna þá virðingu fyrir þeim samningum sem tekist hafa um framhald þingsins að setja ekki á langt mál varðandi þetta frv. En ég hlýt að lýsa því yfir hér að ég er algjörlega andvíg því og mun ekki styðja það.
Það er margt sem kemur til. Hér er verið í fyrsta lagi að bæta enn við báknið, setja á stofn Ferðamálaráð, ferðamálastjóra, Ferðamálasjóð og ég get ekki skilið til hvers. Ég held að æskilegast væri að hvert byggðarlag fyrir sig yrði styrkt á fjárlögum skv. venjulegri afgreiðslu fjárlaga til þess að byggja upp ferðaþjónustu. Ég held að það þurfi ekkert bákn suður í Reykjavík til þess að stjórna því hvernig hin ýmsu byggðarlög landsins taka á móti gestum sínum.
Það er líka skrýtinn tónn í þessu frv. Það er fyrst og fremst verið að tala um ferðamál sem gróðaveg og vissulega er ekkert á móti því að hafa tekjur af ferðamönnum. En það er margt annað sem þarf þar að koma til.
Ég er engin undantekning frá öðrum Íslendingum. Ég elska landið mitt alveg jafnmikið og sú nefnd sem hér hefur setið að störfum. Ég er hins vegar nógu raunsæ til þess að gera mér grein fyrir að Ísland er erfitt ferðamannaland og það sem við Íslendingar eigum að gera til að laða að okkur ferðamenn er að horfast í augu við það, hætta að horfa á sólgylltu myndirnar í ferðamannabæklingunum okkar og horfast í augu við að við söfnumst saman sumarkvöldin fjögur, svo að snúið sé nú út úr frægu kvæði.
Ísland er yndislegt ferðamannaland þegar sólin skín, það vitum við öll. En það er hræðilegt í vondu veðri. Og hvað gerum við Íslendingar til að vinna á móti því? Við reynum að gera fólki dvölina hérna ánægjulega og þægilega þrátt fyrir erfið skilyrði. Það er rangt og ljótt að tæla fólk til Íslands samkvæmt þeim myndum sem fólki eru birtar erlendis af landinu okkar fallega. Ég held ekki að það þurfi að móta neina opinbera ferðamálastefnu. Það held ég ekki. Ég held að sú stefnumótun sé vísasti vegurinn til að taka allt frumkvæði frá Íslendingum í þessum efnum þannig að á endanum detti engum neitt í hug nema að takmarka umferð ferðamanna, sem ég er vissulega sammála, svona á vissum svæðum. En grunur minn er sá að ekkert hafi þetta í för með sér, þó að lögum yrði, annað en að búa til enn eitt ráðið einmitt af þeirri tegund sem ég hef margsinnis bent hæstv. fjmrh. á að fara nú loksins að strika yfir í fjárlögum.
Hvað er fólk að gera þegar það gerist ferðamenn? Það er venjulega að eyða sumarleyfi sínu, það vill láta sér líða vel og sjá áhugavert landslag og áhugavert
fólk og við skulum ekkert gleyma því. Það er ýmislegt sérkennilegt að sjá á Íslandi. Mest af því sem er sérkennilegast fyrir Ísland er vandlega falið ferðamönnum.
Ferðamenn koma hingað á sumrin þegar flestar menningarstofnanir eru lokaðar. Það er ekkert gert til þess að tefla fram þeirri þjóðmenningu sem við eigum. Hvar er fólki falið að búa? Í hæfilega illa viðhöldnum framhaldsskólum og heimavistarskólum landsins. Og hv. þm. til upplýsingar eru það einmitt staðirnir sem þeim er boðin vikudvöl í vegna þess þeir hafa ekki aðgang að orlofshúsum. Eftir eina tilraun til slíkrar dvalar verður hún a.m.k. ekki endurtekin af minni hálfu.
Ég hygg að flestir ferðamenn séu þannig gerðir að þeir vilji búa við sæmilegar aðstæður, t.d. að hafa salerni í herbergi sínu, kröfur sem við hin gerum þegar við erum að ferðast. Svo kemur nú fyrir að fólk er með börnin sín með sér. Og ég vildi spyrja hæstv. samgrh.: Hvað gera Íslendingar til að taka vel á móti börnum ferðamanna? Við sem börn höfum átt vitum að börn þurfa að hafa ofan af fyrir sér. Börn hafa ekkert gaman af að horfa á örfoka fjöll. Börn þurfa að hafast eitthvað að.
Ég sagði áðan: Ísland hefur upp á áhugaverða staði að bjóða. Það er varla sá ferðamaður til sem komið hefur til Íslands sem ekki hefur farið að Gullfossi og Geysi. En það er svona rétt eins gott að hann hafi létt á sér áður því um áratuga bil var ekki hægt að komast á salerni á þeim fræga stað, að ég nú ekki tali um frekju eins og að fá sér kaffisopa.
Það hefur algjörlega skort að byggja upp einmitt þá staði sem trúlegast er að ferðamenn sæki. Fyrir mér er Ísland áhugavert ferðamannaland eins og nú standa sakir fyrir hrausta göngumenn sem hafa yndi af að dveljast í óbyggðum og það eru góðir ferðamenn líka. En allur þorri fólks er ekki af þeirri gerðinni.
Niðurstaða mín er því sú að Ísland hefur eins og er ekkert til að taka á móti ferðamönnum og það þarf síst af öllu nokkurt Ferðamálaráð eða Ferðamálasjóð eða ferðamálastjóra til þess að sjá það. Forði mér allir heilagir frá slíku.
Á Íslandi eru nær engin hótel utan Reykjavíkur og Akureyrar. Það er allt of langt milli gististaða. Það er allt of langt milli veitingastaða og staðanna sem ég hef þegar nefnt sem eru nú kannski alveg lágmarksþjónusta. Það er afskaplega lítið gert til að nostra við ferðamenn, útbúa staði þar sem gaman er að setjast niður og hvíla sig, að ég nú ekki tali um staði þar sem börnin geta haft gaman af að koma. Við höfum t.d. stað eins og Bláa lónið, sem er alveg upplagður ferðamannastaður. Hvers vegna í ósköpunum segjum við ekki við Reyknesinga: Við skulum láta ykkur hafa peninga á fjárlögum. Gerið þið þennan stað nú þægilegri og skemmtilegri fyrir ferðamenn en hann er. Það þarf engan ferðamálastjóra til að stjórna því. Við höfum fjvn. til þess. Sama má segja við önnur kjördæmi landsins og aðra staði.
Ég er sjálfsagt að svíkja loforð mitt við hæstv. forseta, ég ætlaði ekki að halda langa ræðu. Ég hefði kosið að hafa tíma til að semja ítarlega ræðu og ég verð þá bara að láta það bíða til 2. umr. En mér er óskiljanlegt hvernig stór og mikil nefnd hefur setið að störfum lengi, lengi til þess að semja annað eins og þetta. Ég segi það hreinskilnislega.
Ég geri ráð fyrir að allir hv. þm. hafi einhvern tíma verið ferðamenn í öðrum löndum og ég hélt að menn vissu eftir hverju ferðamenn sækjast. Og ég vil endurtaka það sem ég sagði í upphafi, Ísland hefur upp á marga skemmtilega hluti að bjóða fyrir ferðamenn. En Íslendingar gera allt til að koma í veg fyrir að menn geti látið sér líða vel við að njóta þessara sérkenna. Hvað ætli margir ferðamenn hafi átt þess kost að sjá íslenska sjómenn og fiskvinnslufólk að störfum? Heimurinn veit að við framleiðum saltfisk, frægan saltfisk, hann er heimsfrægur. Hafa ferðamenn séð hvernig að þessu er unnið? Ég hygg að margir hefðu gaman af því. Hafa menn átt þess kost að sjá landgræðslutilraunir Íslendinga, að ég nú ekki tali um eins og ég segi allt það sem unnið er á menningarsviðinu? Nei. Ferðamálafrömuðir virðast ekki sjá neitt annað í ferðamálum en að menn klungrist upp um holt og móa til að horfa á vindblásin fjöll. Það mega menn gera fyrir mér. En ég trúi því ekki að allur þorri ferðamanna hafi minnsta áhuga á því.
Almenningssamgöngur um landið eru afar slæmar. Það er alveg sama hvert litið er. Að lokum: Bílaleiga er óhóflega dýr. Og allra síðast en ekki síst, það hefur enginn ferðamaður efni á að borða á Íslandi. Það er ekki hægt að setjast niður á hálfskítugum hótelum nokkurs staðar án þess að borga fyrir það eins og á lúxushótelum erlendis. Halda menn svo að Ísland geti orðið ferðamannaland með þessu móti? Ég bið menn að hugsa vel um þetta mál þegar það kemur til nefndar. Ég lofa hv. þingheimi hér mun ítarlegri ræðu vð 2. umr. þessa máls en þetta frv. þarf að taka miklum breytingum, hæstv. forseti, áður en ég veiti því atkvæði mitt.