Forseti (Árni Gunnarsson) :
Vegna orða hv. 17. þm. Reykv. vill forseti taka það mjög skýrt fram að honum datt ekki í hug að þvinga fram atkvæðagreiðslu um þessa tillögu. Honum barst það til eyrna að hv. 1. flm. hefði ákveðið að draga tillöguna til baka og reiknaði forseti þá með því að hann hefði haft samband við samflutningsmenn sína og þetta væri gert í nafni þeirra. Raunverulega þarf ekki að ræða þetta mál mikið meira. Ef hv. þingdeildarmenn vilja taka upp þessa tillögu, sem þeir hafa fulla heimild til skv. 41. gr. þingskapa, þá er það sjálfgert og forseti mun auðvitað gera nákvæmlega það sama og hann gerði í gær, að óska eftir því að hv. fjh. - og viðskn. tæki tillöguna til umræðu.