Geir H. Haarde :
Virðulegi forseti. Eins og fram kom á fundi deildarinnar í dag við umræður um þetta mál tókum við þrír þingmenn, hv. þm. Guðmundur G. Þórarinsson, Anna Ólafsdóttir Björnsson og ég, upp tillögu sem einn af stjórnarliðum hafði flutt sem brtt. við frv. til laga um virðisaukaskatt. Sú brtt. er reyndar samhljóða frv. sem sami þingmaður hefur flutt og gengur út á það að taka upp virðisaukaskatt á veiðileyfi í ám og vötnum og aðrar sambærilegar veiðar.
Í gærkvöldi þegar þessi tillaga kom fyrst fram fór hv. formaður fjh.- og viðskn. deildarinnar fram á það að nefndin fengi tækifæri til að fjalla um hana. Á fundinum í dag kom síðan í ljós að sá tími sem verið hafði til umráða hafði ekki verið notaður til þess og ég gagnrýndi það harðlega í dag. Mér er hins vegar tjáð að á fundi sem haldinn var í nefndinni síðdegis hafi þetta mál lauslega komið til umfjöllunar og þá með þeim hætti að hv. nefndarformaður hafi hótað deildinni því og nefndinni að stöðva þetta mál, að leggjast á málið í nefndinni og koma í veg fyrir afgreiðslu þess ef sú till. sem hér liggur fyrir og hefur komið fram með algjörlega eðlilegum hætti kæmi til atkvæða. Þetta eru auðvitað vinnubrögð sem hvorki eru honum samboðin né líðandi hér í deildinni.
Ég vil láta það koma hér fram að við, þessir þrír flm. till., hv. 10. þm. Reykv. og hv. 10. þm. Reykn., höfum ákveðið að taka þessa till. aftur fyrir ítrekuð tilmæli hæstv. forsrh. og hæstv. fjmrh. Það er gert vegna þess að við teljum ekki rétt að það frv. sem hér er til umræðu og hefur að geyma ýmisleg ákvæði sem horfa til framfara varðandi framkvæmd virðisaukaskatts verði stoppað með þeim hætti sem hv. þm. Páll Pétursson hefur haft í hótunum um. Þannig að sú tillaga er dregin til baka, hún er sem sé geymd en ekki gleymd.
En vinnubrögð hv. formanns fjh.- og viðskn. í þessu máli eru auðvitað með þeim hætti að þau hlýtur að verða að átelja mjög harðlega og þann þjösnaskap sem hann hefur sýnt í þessu máli. En niðurstaðan er sem sé sú, virðulegi forseti, og ég veit að það gleður forseta eins og aðra stjórnarþingmenn því nú er glatt á hjalla hér víða í stjórnarliðinu greinilega, að till. þessi er afturkölluð, geymd fram yfir áramót en ekki gleymd.