Útflutningsráð Íslands
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 430 um frv. til laga um Útflutningsráð Íslands. Fjh.- og viðskn. hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt með breytingu sem flutt er á þskj. 431. Hún er svohljóðandi:
 ,,a. B-liður fyrri mgr. falli brott.
    b. Orðin ,,og b`` í 1. málsl. síðari mgr. falli brott.``
    Undir þetta skrifa allir nefndarmenn en tveir þeirra með fyrirvara, þeir Matthías Bjarnason og Friðrik Sophusson.