Útflutningsráð Íslands
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson ):
    Herra forseti. Ég vil gjarnan láta það koma fram að ég styð tillögu hæstv. viðskrh. og tel að hún sé til bóta. Því miður hafði okkur ekki dottið þetta í hug í fjh. - og viðskn. og ég held að þetta sé betri lausn en sú sem við leggjum til. Að vísu stend ég með þeirri brtt. sem nefndin flutti, en ég tel að þetta bæti hana enn og aftur.