Frsm. minni hl. fjh.- og viðskn. (Matthías Bjarnason) :
Herra forseti. Ég legg til ásamt hv. 1. þm. Reykv. að þetta frv. um sérstakan skatt á verslunar - og skrifstofuhúsnæði verði fellt. Á sínum tíma, þegar þessi skattur var á lagður og fyrst á eftir, var talin mikil fjárfesting í verslunar - og skrifstofuhúsnæði. Síðar var hann nokkuð lækkaður. Nú hafa orðið verulegar breytingar til hins verra í sambandi við verslun og viðskipti í landinu. Það hefur orðið verulegur samdráttur bæði í verslun og byggingu verslunarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu sem og á landsbyggðinni. Það sýnir að ekki er grundvöllur fyrir því að halda þessari gjaldheimtu áfram.
Við 1. umr. í gær um þetta mál minnti ég á loforð ríkisstjórnarinnar um aðstoð við strjálbýlisverslunina. Það var tekið fram í málefnasamningi ríkisstjórnarinnar að hún ynni að því að renna styrkari stoðum undir strjálbýlisverslunina. Það hefur verið spurt um þetta og bráðum eru nú tvenn fjárlög afgreidd frá því að lofað var að taka þetta upp en það bólar ekki á því að hæstv. ríkisstjórn ætli að standa á nokkurn hátt við gefin loforð og fyrirheit í málefnasamningi. Ég spurðist fyrir um þetta í þeim tilgangi að ríkisstjórnin vaknaði til meðvitundar um það að hún ætti nú, af því að þetta er síðasta þing hennar, og vonandi ber þjóðin gæfu til þess að setja ekki aftur á slíka stjórn eftir næstu kosningar sem tekur upp loforðalista og stendur svo ekki við nokkurn skapaðan hlut. Ég var að fara fram á það, þó ekki væri nema að litlu leyti, að staðið yrði við þetta loforð. En það er ekki gerð minnsta tilraun til þess og hinir lipru þjónar ríkisstjórnarinnar í fjh. - og viðskn. vildu ekkert um þetta mál tala og flýttu sér bara að afgreiða það út úr nefndinni ásamt hálfri tylft af öðrum málum sem þar voru afgreidd í dag án þess að nefndarmenn gætu fjallað ítarlega um málsmeðferð, hvað þá heldur að þingdeildarmenn almennt viti eiginlega nokkurn skapaðan hlut um það hvað er að gerast í þinginu. Og það er von að þessi blessuð þjóð sé farin að hafa litla tiltrú á Alþingi Íslendinga á meðan svona fer fram.