Háskóli Íslands
Fimmtudaginn 20. desember 1990


     Frsm. menntmn. (Ragnar Arnalds) :
    Virðulegi forseti. Hv. menntmn. hefur fjallað um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 77/1979, um Háskóla Íslands. Efri deild hefur áður fjallað um þetta frumvarp og var það samþykkt þar einum rómi. Sama varð niðurstaðan í menntmn. neðri deildar, nefndin mælir einróma með að frumvarpið verði samþykkt.