Jöfnunargjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 440 liggur fyrir álit meiri hluta fjh.- og viðskn. sem leggur til að þetta frumvarp verði samþykkt með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þingskjali. Brtt. er á þskj. 441 og er þar lagt til skv. 1. gr. að gjaldið skuli vera 4% frá 1. jan. til 1. sept. 1991 og 3% frá 1. sept. til 31. des. 1991.