Jöfnunargjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Hv. þm. Þórhildur Þorleifsdóttir hefur lög að mæla. Fyrir einhver mistök, mér óskiljanleg, hefur nafn hennar fallið niður af nál. Það ber að harma og ég bið hana afsökunar svo og Kvennalistann gjörvallan. Við þessu er ekkert að gera annað en að bíða betri tíma með blóm í haga.