Fyrirspurnir varðandi fjárlög
Föstudaginn 21. desember 1990


     Friðrik Sophusson :
    Virðulegi forseti. Það er afar nauðsynlegt að áður en fjárlög verða afgreidd liggi fyrir upplýsingar sem varða fjárlög íslenska ríkisins.
    Það mun hafa verið 20. nóv. sl. sem ég lagði fram fsp. á þskj. 169 til hæstv. fjmrh., fsp. er varðar 6. gr. (6.8) fjárlaga 1990. Það er fsp. um það hvort samið hafi verið við sveitarfélög eins og þar er greint frá.
    Hinn 6. des. sl. lagði ég fram aðra fsp. til hæstv. ráðherra um það hvort kannað hefði verið að ósk meiri hl. hv. fjh. - og viðskn. hvað það kostaði fyrir ríkissjóð ef einstæðir foreldrar gætu nýtt sér ónotaðan persónuafslátt barna sinna samkvæmt þeirri lýsingu sem kemur fram í nál. á máli sem var nr. 238 á síðasta þingi.
    Í 6. mgr. 31. gr. þingskapa segir, með leyfi forseta:
    ,,Ef óskað er skriflegs svars sendir ráðherra forseta það að jafnaði eigi síðar en sex virkum dögum eftir að fsp. var leyfð. Forseti sendir fyrirspyrjanda svarið. Skjal prenta fsp. og svar í Alþingistíðindum.``
    Nú er það svo að stundum dregst að svara fyrirspurnum, því miður oft óhóflega lengi. Það á sér oftast skýringar í því að það kosti tíma og fyrirhöfn. Ég vil, virðulegi forseti, vekja athygli á því að þessar fsp. eru um einföld og afmörkuð efni sem hægt er að svara í örstuttu máli. Ég staðhæfi að það tekur einn mann í ráðuneyti hæstv. ráðherra varla meira en klukkutíma eða tvo að svara fsp. sem hér er um að ræða, því að efnið er skýrt og það er einungis verið að spyrja um stöðu mála sem ráðuneytið hlýtur að geta greint frá á hverju einasta augnabliki. Báðar þessar fsp. eiga það sammerkt að þær hafa þýðingu vegna afgreiðslu fjárlaga, bæði vegna útgjalda og tekna, og ég átti satt að segja von á því að svör við fsp. lægju fyrir áður en endanlega yrði gengið frá tekjufrv. hæstv. ríkisstjórnar og fjárlögum íslenska ríkisins fyrir næsta ár.
    Af þessu tilefni, virðulegi forseti, vil ég fá tækifæri til að spyrja hæstv. ráðherra að því hvort von sé á svörum við fsp. í dag. Ef svo er ekki, virðulegi forseti, þá tel ég að hæstv. forseti þurfi að ganga eftir að slíkum fsp. sé svarað því hér hefur verið um óhóflega langan drátt að ræða.