Fjárlög 1991
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjvn. (Sighvatur Björgvinsson) :
    Virðulegi forseti. Fjvn. hefur nú lokið umfjöllun sinni um frv. til fjárlaga fyrir árið 1991. Verklok okkar voru unnin í mikilli tímaþröng. Mörg og stór mál biðu 3. umr., m.a. mál sem oft eru afgreidd við 2. umr. Mörg þessara mála voru þess eðlis að meiri hl. nefndarinnar þótti rétt að óska eftir afstöðu ríkisstjórnarinnar til þeirra. Það er ekki óeðlilegt og raunar fremur vanalegt að slík vinnubrögð séu viðhöfð þegar um svo stórar ákvarðanir er fjallað að óskað sé eftir afstöðu ríkisstjórnar áður en endanlega er frá þeim gengið við 3. umr.
    Eðlilega tók talsverðan tíma að fjalla um þessi mál og varð því að vinna mjög hratt undir lokin. Mér og okkur í meiri hl. fjvn. er það fyllilega ljóst að þau vinnubrögð eru ekki til fyrirmyndar og hefði verið betra og æskilegra að meiri tími hefði gefist fyrir nefndina og meira samráð hefði verið hægt að hafa, m.a. við þingmannahópa einstakra kjördæma. Það var hins vegar vilji fjárveitinganefndarmanna að leitast eftir megni við að hægt væri að taka frv. til 3. umr. nú í dag, á fimmtudegi, og væntanlega til lokaafgreiðslu á morgun, föstudegi, þannig að þingmenn, og þá sérstaklega þingmenn utan af landi, gætu átt þess kost að komast með sæmilegu móti til síns heima fyrir jólin. Einnig þess vegna lögðum við allt kapp á að flýta afgreiðslum í nefndinni svo sem framast mátti verða. Hefði það aldrei tekist ef ekki hefði komið til lipurð fjárveitinganefndarmanna og tillitssemi minni hl. og vil ég færa fulltrúum minni hl. í fjvn. þakkir fyrir þá tillitssemi. Einnig vil ég þakka samnefndarmönnum mínum, svo og starfsfólki fjárveitinganefndar, fjmrn., Ríkisendurskoðunar og Alþingis fyrir þá miklu vinnu sem þetta fólk hefur á sig lagt.
    Eins og jafnan kom forstjóri Þjóðhagsstofnunar á fund nefndarinnar ásamt starfsfólki úr Þjóðhagsstofnun skömmu fyrir 3. umr. til þess að greina nefndinni frá þjóðhagshorfum og breytingum sem þar kynnu að hafa á orðið fyrir bæði árin, 1990 sem senn er liðið og 1991.
    Um árið 1990 sagði Þjóðhagsstofnun að nú liti út fyrir að það ætlaði að reynast heldur betra ár en útlit var fyrir í októbermánuði sl. þegar þjóðhagsáætlun var lögð fram á Alþingi, en í þeirri áætlun var m.a. spá um afkomu ársins 1990. Í spá Þjóðhagsstofnunar fyrir árið 1990 var gert ráð fyrir um 4,5% samdrætti í afla. Nú eru hins vegar horfur á að afli verði töluvert meiri en gert var ráð fyrir í októbermánuði eða þannig að aflinn standi í stað frá fyrra ári og ekki verði um aflasamdrátt að ræða eins og reiknað hafði verið með. Á móti kemur hins vegar nokkur samdráttur í tekjum af álútflutningi. Niðurstaðan verður engu að síður sú að einhver hagvöxtur er líklegur á árinu 1990 í stað þess sem áætlað var, að um hagvöxt yrði ekki að ræða á því ári. Þá virðist einnig vera orðið ljóst að einkaneysla mun ekki minnka á yfirstandandi ári eins og þó var spáð. Innflutningur hefur einnig aukist verulega nú á síðustu mánuðum og er m.a. áberandi að bílainnflutningur hefur aukist. Viðskiptahalli var áætlaður um 6,7 milljarðar kr. í þjóðhagsáætlun í október en verður líkast til heldur meiri. Atvinnuleysi nú á síðustu mánuðum ársins er mun minna en reiknað var með eða um 1,2% í nóvember og atvinnuleysi á árinu 1990 sýnist ætla að verða nokkru minna en ráð var fyrir gert í fyrri spá, þ.e. það verður að meðaltali um 1,8% á árinu á móti um 2% af vinnuafli eins og spáð hafði verið.
    Samkvæmt upplýsingum Þjóðhagsstofnunar eru því allar horfur á að árið 1990 ætli að reynast okkur betra og farsælla en menn þorðu að gera sér vonir um í októbermánuði og afkoma þjóðarbúsins verði þá öllu betri.
    Um horfurnar á árinu 1991 sagði Þjóðhagsstofnun að endurskoðun þjóðhagsspár fyrir það ár fari nú fram en ekki sé líklegt að niðurstöður muni liggja fyrir fyrr en í byrjun næsta árs. Var stofnunin ekki reiðubúin til að setja fram talnalegar upplýsingar um nýjar þjóðhagsstærðir og breytingar frá þjóðhagsáætluninni sem lögð var fram nú í haust og fjárlagafrv. er byggt á. Hins vegar kom fram hjá Þjóðhagsstofnun að líkur væru nú á að nokkur umskipti yrðu í þá átt að batnandi horfur á árinu 1990 breyttust í versnandi horfur á árinu 1991. Flestar vísbendingar sagði Þjóðhagsstofnun að væru á hinn verri veg. Nefndi stofnunin í því sambandi sérstaklega tvö atriði.
    Í fyrsta lagi að ástand í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi sé nú miklu lakara en spáð var að verða mundi um mitt árið. Skýringarnar eru m.a. slæmt efnahagsárferði, bæði í Bretlandi og eins í Bandaríkjunum, en þar eru horfur á að ástand í efnahagsmálum verði mun verra en spáð hafði verið. Þjóðhagsstofnun telur óhjákvæmilegt að þetta versnandi ástand í efnahagsmálum á alþjóðavettvangi muni fyrr eða síðar hafa áhrif hér.
    Í öðru lagi var nefnt af hálfu þjóðhagsstofnunarmanna að horfur um loðnuveiðar væru nú ekki mjög góðar. Mikil óvissa ríkir um loðnuveiðar á árinu 1991. Ákvarðanir hafa enn ekki verið teknar um veiðarnar og því ekkert hægt að fullyrða eða spá að svo stöddu en ef svo kynni að fara að loðnuaflinn minnkaði úr 850 þús. tonnum í ár í um það bil 400 þús. tonn á næsta ári, þá mundi þjóðarbúið tapa nokkrum milljörðum króna. Þessi samdráttur í loðnuveiðum mundi hafa þau áhrif að mestur hluti hagvaxtarins á árinu 1991, sem spáð var í þjóðhagsáætluninni, hyrfi með loðnunni. Eru því ekki líkur á þeim aukna hagvexti á árinu 1991 sem menn voru að vona að verða mundi og mun að sjálfsögðu enn draga úr í þeim efnum reynist 400 þús. tonna loðnuveiði ofáætluð.
    Í sambandi við óvissuna um loðnuveiði og þá óvissu sem einnig ríkti um veiði á loðnu um sl. áramót er bent á að óvissan um samdrátt var önnur fyrir ári síðan en nú. Þá höfðu fiskifræðingar m.a. ekki komist til þess vegna hafíss að framkvæma fullnaðarmælingar á stærð loðnustofnsins, en nú hafa þrír leiðangrar verið gerðir þar sem tekist hefur að ljúka mælingum og niðurstöður mælinganna benda í þá átt að loðnustofninn sé ekki stærri en 300 -- 400 þús. tonn. Eru því miður litlar líkur á öðru en að verulegur samdráttur verði í loðnuveiðum á næsta ári með þeim áhrifum til samdráttar á hagvöxt og kaupmátt í landinu sem það mun hafa.
    Fari svo sem horfir eru ekki líkur á því að mati Þjóðhagsstofnunar að sú kaupmáttaraukning verði á næsta ári sem menn voru að gera sér vonir um. Ef af raforkuframkvæmdum verður vegna álsamnings eru þó líkur á að þær framkvæmdir muni vinna upp á móti þessum samdrætti en slíkar framkvæmdir á árinu 1991 munu samtals nema um 2 -- 3 milljörðum kr. Aðalframkvæmdirnar, ef af álsamningum verður, verða þó á næstu árum þar á eftir, þ.e. þegar smíði sjálfrar álverksmiðjunnar hefst.
    Þá átti fjvn. einnig viðræður við starfsfólk í tekjudeild ráðuneytisins og fram kom hjá starfsfólki tekjudeildar mjög svipuð niðurstaða um forsendur tekjuáætlunar fyrir árið 1990 eins og fram kom í máli þjóðhagsstofnunarmanna. Bílainnflutningur hefur orðið meiri en tekjuáætlun gerði ráð fyrir og tekjur af bílainnflutningi því orðið meiri en áætlað var. Tekjur einstaklinga hafa orðið hærri á árinu 1990 en menn reiknuðu með og tekjur af tekjuskatti því hærri. Tekjur fyrirtækja virðast einnig ætla að verða meiri á árinu 1990 en áætlað var, en tekjuáhrif þess fyrir ríkissjóð munu ekki koma fram fyrr en á næsta ári.
    Síðasta tekjuáætlun fyrir árið 1990 var gerð við fjáraukalagagerð í desembermánuði sl. Líkur eru á að sú tekjuáætlun breytist nokkuð, m.a. eins og ég hef þegar gert grein fyrir, en samdráttur verður einnig og þá í tekjum af virðisaukaskatti, m.a. vegna þess að hin sérstöku skil, sem gert var ráð fyrir að yrðu um miðjan nóvember, skila sér ekki með þeim hætti til ríkissjóðs sem áætlað hafði verið fyrir. Kemur það fram sem lægri tekjur af virðisaukaskatti á árinu 1990 en gert var ráð fyrir, en mun auka skilin á sama skatti á árinu 1991 sem þessum samdrætti nemur. Heildartekjur ríkissjóðs munu því sennilega verða um 500 millj. kr. lægri á árinu 1990 en fjáraukalögin gerðu ráð fyrir, en sú lækkun mun að verulegu leyti skila sér sem aukning tekna á árinu 1991 eins og áður sagði.
    Tekjudeild fjmrn. gerði síðan grein fyrir þeim spám um tekjur ríkissjóðs á árinu 1991 sem tekjudeildin hefur gert og skal fram tekið að þær spár eru reistar á þeirri þjóðhagsáætlun sem fjárlagafrv. er byggt á, enda mun endurskoðuð þjóðhagsáætlun ekki liggja fyrir fyrr en í janúar. Fari hins vegar svo eins og hætta er á og vísbendingar benda til að sá tekjubrestur verði í þjóðarbúinu sem ég rakti hér áðan, m.a. vegna versnandi efnahagsástands í umheiminum, þá munu forsendur tekjuspár að sjálfsögðu breytast. Með tekjuspá tekjudeildarinnar hefur hún tekið mið af bæði reynslunni á árinu 1990 sem ég rakti hér áðan og áhrifum betri afkomu þjóðarbúsins á því ári á tekjur ríkissjóðs næsta ár og enn fremur hefur tekjudeildin endurmetið tekjustofna ríkissjóðs í átt að þeim tekjufrv. sem ríkisstjórnin hefur nú kynnt og flutt á Alþingi þar sem m.a. var breytt fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar um fyrirtækjaskatta sem boðaðir voru í fjárlagafrv.

    Mun ég nú hér á eftir lýsa í stuttu máli þeim breytingum sem gerðar hafa verið á tekjuhlið fjárlagafrv. í meðförum fjvn. og brtt. nefndarinnar varðandi tekjuhliðina lúta að. Áður en ég geri það vil ég þó geta þess að á fundinum með tekjudeild fjmrn. var þess sérstaklega óskað að tekjudeildin reyndi að áætla fyrir hugsanlegum áhrifum þeirra vísbendinga sem Þjóðhagsstofnun gaf á fundi nefndarinnar um versnandi horfur í efnahagsmálum á næsta ári. Nú í dag hefur okkur borist í hendur vinnuskjal frá fjmrn., minnisblað um hugsanleg áhrif minni loðnuafla á tekjuhlið fjárlaganna 1991 o.fl. Þar segir m.a.:
    Á fundinum var spurt um mat fjmrn. á áhrifum þessa vinnudæmis á tekjuhlið fjárlaga fyrir árið 1991 og með þessu vinnudæmi er þar átt við vísbendingar þær sem Þjóðhagsstofnun rakti á fundi með fjvn. Af hálfu fjmrn. var á það bent, segir í skjalinu, að tekjuáætlun fjárlaga byggðist á niðurstöðu þjóðhagsspár. Það lægi hins vegar ekki fyrir fullgerð þjóðhagsspá sem miðaðist við þetta tiltekna dæmi og því væri erfitt að meta áhrif þess á tekjuhlið fjárlaga í smáatriðum. Af hálfu Þjóðhagsstofnunar var enn fremur upplýst að það væri ekki hægt að koma fram með spá sem tæki mið af þessu vinnudæmi með svo stuttum fyrirvara.
    Til þess að gefa hugmynd um stærðargráður hefur fjmrn. slegið lauslegu mati á hugsanleg áhrif vinnudæmis Þjóðhagsstofnunar á tekjuhlið fjárlaga á næsta ári. Það er rétt að taka fram að hér er stuðst við áætlun ráðuneytisins um líkleg áhrif á helstu þjóðhagsstærðir, þar sem ekki liggur fyrir endurskoðuð þjóðhagsspá sem fyrr segir.
    Helstu forsendur þessarar spár eru að minni loðnuafli dragi lítils háttar úr heildarhækkun launa á næsta ári. Jafnframt er reiknað með heldur meiri samdrætti í fjárfestingum á loðnuveiðum og loðnuvinnslu í kjölfarið. Helstu niðurstöður þessa vinnudæmis eru sem hér segir:
    Vöxtur þjóðarútgjalda á næsta ári verður 0,2% minni.
    Hagvöxtur verður tæplega 1% minni.
    Viðskiptahalli verður 3 milljörðum kr. meiri eða sem nemur 0,9% af landsframleiðslu.
    Um hugsanleg áhrif þessara breytinga á tekjuhlið fjárlaga er það að segja að minni vöxtur þjóðarútgjalda gæti leitt til heldur minni tekna af veltusköttum sem gæti verið af stærðargráðunni 100 -- 200 millj. kr. Það er þó óvíst hvort þessi áhrif kæmu fram á næsta ári þar sem samdráttaráhrif í þjóðarbúskapnum koma yfirleitt fram í tekjum ríkissjóðs með nokkurri töf eins og dæmin frá 1988 sanna.
    Síðan segir tekjudeildin: ,,Niðurstaðan er því sú að minni loðnuafli samkvæmt dæmi Þjóðhagsstofnunar hefði lítil sem engin áhrif á tekjuhlið fjárlaga árið 1991.``
    Okkur hefur í fjvn. ekki gefist kostur á að ræða þetta minnisblað við tekjudeild fjmrn. af þeirri einföldu ástæðu að við vorum að fá þetta í hendurnar núna rétt áður en ég gekk upp í ræðustólinn. Það sem kemur hins vegar fram þarna er einfaldlega það að

áhrifin af minni loðnuafla komi síðar fram heldur en á þeirri sömu stundu sem dregur úr loðnuaflanum þannig að ef hér er um að ræða viðvarandi ástand, þ.e. að þarna sé um meira að ræða heldur en það eitt að loðnuveiði geti ekki orðið með eðlilegum hætti á vetrarvertíð en hins vegar verði hægt að hefja loðnuveiði að nýju að hausti, þá muni þessi áhrif ekki koma fram á árinu 1991 nema eins og hér er lýst. Hins vegar er það alveg augljóst mál að ef sá brestur verður í veiðum á loðnu sem hér er verið að ræða um, þá mun það að sjálfsögðu hafa áhrif á tekjudæmi ríkissjóðs en það kemur ekki fram á þeirri sömu stundu og sá aflabrestur verður heldur síðar.
    Í fjárlagafrv. sem lagt var fram í haust var áætlað að tekjur ríkissjóðs næmu samtals 99 milljörðum 563 millj. kr. Ef samþykktar verða þær brtt., sem meiri hl. fjvn. nú flytur, mun endurskoðuð tekjuáætlun hljóða upp á 101 milljarð 698 millj. kr. Heildarhækkun á tekjuhliðinni er sem sé 2 milljarðar 135 millj. kr. Sú hækkun er tilkomin af eftirfarandi ástæðum:
    Í fyrsta lagi er gert ráð fyrir því að tekjuskattur einstaklinga skili 650 milljónum umfram það sem áætlun fjárlagafrv. gerði ráð fyrir. Á bak við þessa tölu eru ekki ákvarðanir um skattahækkanir í tekjuskatti heldur byggjast þessar tölur á tveimur atriðum: Í fyrsta lagi innheimtutölunni frá árinu 1990 sem nú liggur að mestu fyrir og í öðru lagi áætluðum tekjubreytingum á árinu 1991
samkvæmt þjóðhagsáætlun. Verði niðurstaðan hins vegar sú, eins og vísbendingar þær bentu til sem Þjóðhagsstofnun rakti, að kaupmáttaraukningin sem spáð var á næsta ári verði ekki er auðvitað ljóst að tekjuskattar einstaklinga munu tæpast skila þeirri niðurstöðu sem hér er frá greint.
    Þá er gert ráð fyrir að skil af tekjuskatti fyrirtækja nemi 300 millj. kr. hærri fjárhæð en fjárlagafrv. gerði ráð fyrir. Sú tala er byggð á traustum grunni því að hún er byggð á afkomu fyrirtækjanna á árinu 1990 sem sýnilega verður betri en gert var ráð fyrir þegar frá fjárlagafrv. var gengið.
    Þá er gert ráð fyrir að skil á virðisaukaskatti hækki um 1 milljarð og 50 millj. kr. Skýringar á því eru tvíþættar. Í fyrsta lagi munu, eins og ég sagði áðan, þau skil sem gert var ráð fyrir að kæmu til ríkissjóðs á þessu ári en ekki skiluðu sér þá koma fram sem auknar tekjur af virðisaukaskatti á næsta ári. Í öðru lagi er gert ráð fyrir áhrifum hertrar og bættrar innheimtu, en þar koma m.a. til þau ákvæði sem hæstv. fjmrh. hefur óskað eftir að Alþingi leiði í lög og varða aukið eftirlit og möguleika til að framfylgja skyldu um sjóðvélar. Þá er enn fremur gert ráð fyrir að í ljósi meiri bílainnflutnings á síðustu mánuðum en gert var ráð fyrir, en sá aukni bílainnflutningur er umtalsverður, muni bifreiðatollar skila 285 millj. kr. meira í ríkissjóð en gert var ráð fyrir í frv.
    Þá er komið að hinum svokölluðu fyrirtækjasköttum en í fjárlagafrv. var lýst áformum ríkisstjórnarinnar um breytingu á fyrirtækjasköttum sem samtals áttu að gefa af sér 1600 millj. kr. í ríkissjóð. Nú hefur frv. ríkisstjórnarinnar þar að lútandi, frv. um tryggingagjald, verið lagt fram á Alþingi. Í því frv. er verulega breytt þeim áformum sem lýst var í greinargerð fjárlagafrv. er varða fyrirtækjaskattana. Tryggingagjaldið mun því ekki gefa jafnháa fjárhæð í ríkissjóð og fyrirtækjaskattheimtan átti að gefa samkvæmt fjárlagafrv. Munar þar 750 millj. kr. og er að sjálfsögðu tekið tillit til þeirra áhrifa í tillögum meiri hl. fjvn. Þá er einnig gert ráð fyrir því að nokkuð verði breytt áætlunum ríkisstjórnarinnar um álagningu svonefnds jöfnunargjalds. Eru áformin þau að jöfnunargjaldið verði 4% í upphafi ársins, lækki síðan niður í 3% í júní og verði 3% mánuðina júní, júlí og september. Við þessa ákvörðun fæst um 100 millj. kr. tekjuauki hjá ríkissjóði.
    Þá hefur ríkisstjórnin loks samþykkt að flytja á Alþingi strax í janúarmánuði frv. um sérstaka tekjuöflun, þar á meðal um mishátt jöfnunargjald á ýmsar vörutegundir. Er áformað að sú skattheimta skili um 500 millj. kr. og er þá heildarhækkun eins og ég áðan sagði samtals 2 milljarðar 135 millj. kr. Þá liggja fyrir upplýsingar um verðlagsáhrif þessara breytinga og eru þær óverulegar. Í fjárlagafrv. var gert ráð fyrir því að verðlagsáhrif þeirrar viðbótarskattheimtu sem þar var boðuð væru samtals 0,2% til hækkunar en miðað við þá skattheimtu sem nú er boðuð eru horfur á að verðlagsáhrif hennar verði um 0,1% eða verulega lægri en fjárlagafrv. gerði ráð fyrir.
    Virðulegi forseti. Þær brtt. við 3. gr., tekjugrein frv., sem ég hef hér skýrt eru á þskj. 392.
    Er þá rétt að víkja að 4. gr., útgjaldatillögunum, sem nefndin gerir við þessa umræðu. Útgjaldatillögur nefndarinnar nema samtals 1 milljarði 622 millj. kr. Er þá gert ráð fyrir áhrifum þess að hætt er við áform um upptöku svokallaðs ,,hafnagjalds`` en það kemur fram í lækkun sértekna þannig að nettóútgjaldatillögur meiri hl. nú við 3. umr. nema ekki 1 milljarði 622 millj. kr. heldur 1 milljarði 62 millj. kr.
    Ástæðulaust er að fjalla um allar brtt. meiri hl. því að flestum þeirra fylgja nægilega nákvæmar skýringar. Skal þess vegna aðeins staðnæmst við þær till. sem þarfnast sérstakra viðbótarskýringa. Fram skal tekið að þessar tillögur meiri hl. fjvn. er varða 4. gr. eru á þskj. 414. Er þá rétt að staðnæmast við 1. till. er varðar Alþingi. Þar er tekinn inn nýr liður, 607 Íbúð fyrir fræðimann. Er þar um að ræða kaup á íbúð í Kaupmannahöfn vegna fræðimanns sem starfar í Jónshúsi. Eins og hv. alþm. er kunnugt hefur íbúð fyrir fræðimann verið í Jónshúsi allt frá því að Alþingi tók við því húsi að gjöf. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á Jónshúsi, bæði að utan og innan, og er stefnt að því að reyna að ljúka þeim nú. Íbúð fræðimannsins í Jónshúsi hefur hins vegar verið óhentug á ýmsan hátt. Íbúðin er allt of stór og auk þess verður fræðimaður fyrir talsverðu ónæði af þeirri félagsstarfsemi sem fram fer í Jónshúsi en félagsstarfsemin hefur stöðugt vaxið og býr nú við mjög þröngan húsakost. Forsetar Alþingis hafa leitað lausnar á þessum vanda og gert þá till. til fjvn. að fest yrðu kaup á mun minni íbúð fyrir fræðimann í næsta nágrenni við Jónshús. Fræðimaður flytti í þá íbúð en hefði áfram skrifstofu í Jónshúsi og vinnuaðstöðu en sú hæð hússins sem nú er notuð undir íbúð fræðimanns verði að öðru leyti tekin til annarra nota fyrir það mikla starf sem nú fer fram í Jónshúsi. Forsetar Alþingis hafa leitað eftir hentugri íbúð í næsta nágrenni Jónshúss og fundið hana. Er unnt að kaupa slíka íbúð á mjög góðu verði en fasteignaverð í Kaupmannahöfn telst nú vera mjög hagstætt. Ef íbúðin yrði greidd út, eins og forsetar leggja til, mun hún kosta um 6 millj. ísl. kr. Er hér um að ræða íbúð í mjög góðu ásigkomulagi. Íbúðinni er mjög vel við haldið og hægt að taka hana til nota án þess að leggja í neinn kostnað við viðgerðir og endurbætur. Fjvn. hefur gert þessa till. forseta Alþingis að sinni.
    Næsta till. varðar Bessastaði. Næsti áfangi í framkvæmdum að Bessastöðum er talinn kosta um 150 millj. kr. Hér er lagt til að ráðist verði í þann áfanga á næsta ári en framkvæmdir hefjist nokkru síðar en óskað hafði verið eftir þannig að ekki verði varið nema 100 millj. kr. á næsta ári til þessara framkvæmda. Verða þær fjármagnaðar þannig að 60 millj. kr. komi sem beint fjárframlag úr ríkissjóði en 40 millj. kr. færist frá Endurbótasjóði menningarmannvirkja, sem í fjárlagafrv. var samtals með 150 millj. kr. til ráðstöfunar.
    Þá komum við að þjóðgarðinum á Þingvöllum. Þar var eins og kunnugt er ráðist í nokkrar framkvæmdir við gangbrautir og gestapall á Lögbergi á sl. sumri. Vegagerð ríkisins sá um framkvæmdirnar og hafði gert kostnaðaráætlun fyrir þjóðgarðsnefnd. Sú kostnaðaráætlun reyndist vera um 6 millj. kr. of lág þegar upp var staðið. Er hér gerð tillaga um að veitt verði auknu fé til þjóðgarðsins á Þingvöllum að upphæð 4 millj. kr. en þær 2 millj. kr. sem eftir eru verði þá bornar af Vegagerð ríkisins.
    Næst er ástæða til að víkja að tillögu er varðar framhaldsskóla almennt. Eins og greint var frá við 2. umr. um fjárlagafrv. sköpuðust mikil vandamál hjá héraðsskólunum við verkaskiptinguna um sl. áramót, vandamál sem ekki voru fyrirséð. Þessi vandamál eru að ríkið hafði áður greitt launakostnað í mötuneytum og gæslukostnað í heimavistum við héraðsskólana, en nú áttu þau viðfangsefni að færast yfir til sveitarfélaga. Sveitarfélög þau sem standa að þessum skólum eru hins vegar fámenn og máttlítil og nemendur skólanna þar að auki flestir búsettir í öðrum sveitarfélögum. Þau fámennu sveitarfélög sem að skólunum standa geta ekki risið undir launagreiðslum í mötuneytum héraðsskóla og gæslu á heimavistum. Var því svo komið er fjvn. kom að málinu að sumt af þessu starfsfólki sem hér var nefnt til sögunnar fékk ekki laun og hafði ekki fengið laun greidd frá því í október. Í öðrum tilvikum voru nemendur rukkaðir um þessar fjárhæðir og þeim síðan falið að endurkrefja hjá sveitarfélögum sínum. Við 2. umr. var tekið á þessum vanda að því er varðar gæslukostnað við heimavistir. Gert er ráð fyrir því að samið verði við stjórn Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um að taka á sig greiðslu launa í mötuneytum héraðsskólanna gegn því að Jöfnunarsjóður leiti síðan endurgreiðslu hjá viðkomandi sveitarfélögum sem nemendurnir koma frá og er sjóðstjórn innan handar að ná því fé af framlögum sjóðsins til sveitarfélaga. Enn hefur ekki náðst endanlegt samkomulag um þessi mál og er því gerð hér till. um að liðurinn Viðfangsefni 1 Framhaldsskólar, óskipt hækki um 5 millj. kr. Er hækkuninni ætlað að standa til bráðabirgða undir launagreiðslum í mötuneytum héraðsskóla ef viðunandi lausn fæst ekki fram í öllum tilvikum. Ekki er heimilt að nota þessa fjárveitingu til annarra þarfa og verði hennar ekki þörf verður því sem eftir kann að vera skilað inn til ríkissjóðs.
    Þá er ástæða til að benda á till. er varðar Lánasjóð ísl. námsmanna. Þar er gert ráð fyrir lækkun framlags.
    Þá komum við að till. meiri hl. fjvn. að því er varðar Þjóðleikhúsið. Till. er hér gerð um að lokið verði við svokallaða fyrstu lotu fyrsta áfanga. Til þess þarf að hækka fjárveitingu til endurbóta á Þjóðleikhúsinu um 65 millj. kr. Með því að ljúka þessari fyrstu lotu fyrsta áfanga er að því stefnt að hægt verði að hefja sýningar í leikhúsinu nú í vor eins og boðað hefur verið. Verður þá gengið til bráðabirgða frá því sem óunnið er. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir því að á árinu 1991 verði um frekari framkvæmdir að ræða við endurbætur á Þjóðleikhúsinu en fram hefur komið að til þess að ljúka svokölluðum fyrsta áfanga þarf að greiða til viðbótar 300 -- 400 millj. kr. En ég ítreka að ekki er gert ráð fyrir því að farið verði í það viðfangsefni á árinu 1991, heldur verði látið við það sitja að ljúka fyrstu lotu fyrsta áfanga. Verður því ekki um það að ræða að hætta þurfi starfrækslu í húsinu yfir sumarmánuðina eins og ella hefði þurft að gera. Verður m.a. Þjóðleikhúskjallarinn í fullum rekstri á næsta ári eftir að fyrstu lotu lýkur. Er að áliti meiri hl. ekki ástæða til að gera till. um hækkun á framlagi til rekstrar Þjóðleikhússins sem er hærri en sú sem hér er gerð, en það er gerð till. um 35 millj. kr. hækkun á rekstrarframlaginu sjálfu.
    Þá er komið að Þjóðarbókhlöðunni. Gert er ráð fyrir því að 45 millj. kr. af ráðstöfunarfé Endurbótasjóðs menningarstofnana fari til Þjóðarbókhlöðunnar. Með því framlagi sem gert var ráð fyrir í fjárlagafrv. að til Þjóðarbókhlöðu rynni verða þá til ráðstöfunar 145 millj. kr. til framkvæmda við Þjóðarbókhlöðuna auk þeirra fjármuna sem koma munu frá Háskóla Íslands til að greiða kostnað við tölvukaup.
    Þá er ástæða að staldra við till. sem meiri hl. gerir um afgreiðslu á málum Leikfélags Akureyrar. Náðst hefur samkomulag ríkisins og Akureyrarbæjar um þetta verkefni. Er hér gerð till. um að framlag ríkisins verði hækkað frá fjárlagafrv. um 2,6 millj. kr. til þess að standa við það samkomulag.
    Um Íslensku óperuna er það hins vegar að segja að ekki hefur náðst samkomulag við Reykjavíkurborg um lausn á vandamálum Íslensku óperunnar en það er ásetningur og vilji stjórnvalda að höfuðborg Íslands og e.t.v. aðrir aðilar taki þátt í að leysa vandamál Óperunnar. Er það eðlilegt miðað við það að Óperan er í Reykjavík og langflestir þeir sem njóta þeirrar listar sem þar er í boði eru íbúar Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaganna. Er hér gerð till. um að framlag til stuðnings við Íslensku óperuna verði hækkað um 10,6 millj. og verði því 25 millj. kr. röskar. Jafnframt er gerð tillaga um að á heimildagrein fjárlaga komi heimild til fjmrh. að ganga til samninga við Reykjavíkurborg og e.t.v. aðra um lausn á rekstrarvanda Íslensku óperunnar, en nauðsynlegt er að fundin verði leið til þess að tryggja með einum eða öðrum hætti að sá rekstur geti gengið fyrir sig. Það er ekki eðlilegt að búast við því að sá 35 millj. kr. fjárstuðningur sem óskað hefur verið eftir af forráðamönnum Íslensku óperunnar frá opinberum aðilum nægi til þess að tryggja hallalausan rekstur Óperunnar á næsta ári því að fram hefur komið jafnan að sú fjárþörf sem menn hafa gert áætlanir um í upphafi árs í þessu sambandi hefur reynst vera mun meiri þegar upp er staðið. Er ástæðulaust annað en a.m.k. að búast við því að svo geti enn farið. Því er full ástæða til þess að leita samstarfs við aðila, bæði forráðamenn Íslensku óperunnar og sveitarfélögin í nágrenni Reykjavíkur og Reykjavíkurborg sjálfa, um einhverja lausn sem gæti tryggt rekstur Íslensku óperunnar til frambúðar. Er auðvitað ljóst að það verður ekki öðruvísi en með sameiginlegu átaki stjórnenda Óperunnar, íslenska ríkisins og þeirra sveitarfélaga sem liggja að höfuðborginni og höfuðborgarinnar sjálfrar.
    Þá komum við að uppgjöri við sveitarfélögin. Þeirri till. hafði ég lýst við 2. umr., en þá tók fjvn. ákvörðun um að flytja hana ekki að svo stöddu vegna ábendinga sem fram höfðu komið um að e.t.v. kynni að vera þörf fyrir einhverjar lagfæringar eða tilfærslur af einstökum verkefnum. Slíkar beiðnir hafa hins vegar ekki komið frá þingmannahópunum sem hafa fengið skiptitölurnar til meðferðar og er því lagt hér til að staðfest verði sú till. fjvn. um 85 millj. kr. hækkun til uppgjörsins við sveitarfélög sem greint var frá við 2. umr.
    Þá er ástæða til þess að staldra við tillögu sem gerð er varðandi landgræðslu- og landverndaráætlun. Margir aðilar hafa komið að því máli að kanna hvað fólst í ályktun Alþingis frá 1986 um landgræðslu - og landverndaráætlun. Fjmrn. sendi fjvn. upplýsingar sem bentu til þess að vegna mistaka hefðu menn frá byrjun ekki miðað við þá ákvörðun sem tekin var á Alþingi en í þáltill. segir í síðasta málslið að við framreikning skyldi stuðst við landgræðsluáætlunina á verðlagi ársins 1987. Fyrir mistök var till. hins vegar tekin og framreiknuð til verðlags á verðlagsgrundvelli ársins 1986. Hefur sá framreikningur verið endurtekinn öll þessi ár. Niðurstaða fjmrn. varð sú að þetta hefði leitt til þess að búið var að greiða mun meira fé vegna landgræðsluáætlunarinnar en þáltill. og samþykkt Alþingis gerði ráð fyrir. Leitað var umsagnar Ríkisendurskoðunar um málið og staðfesti Ríkisendurskoðun að rétt væri með farið. Búið væri að greiða síðan 1987 alls 44 millj. kr. umfram það sem samþykkt Alþingis um landgræðsluáætlun fól í sér. Ef tillagan í fjárlagafrv. yrði samþykkt óbreytt mundu bætast við þá umframgreiðslu 22 millj. kr. þannig að búið væri að greiða 65 -- 66 millj. kr. umfram það sem landgræðsluáætlun og samþykkt Alþingis gerði ráð fyrir. Landbrn. staðfesti þessa útreikninga sem rétta og lagði til að farin yrði sú leið að þær umframgreiðslur að fjárhæð 44 millj. kr. sem átt hafa sér stað yrðu látnar standa en fjárveiting skv. fjárlagafrv. fyrir næsta ár yrði lækkuð um tæpar 22 millj. kr. Féllst meiri hl. fjvn. á að flytja þá till. hér. Landbrn. reiknaði síðan samkvæmt skiptireglum í landgræðsluáætluninni hvernig umræddu fé skyldi skipta niður á einstök viðfangsefni landgræðsluáætlunar. Gerði meiri hl. fjvn. till. landbrn. um þá skiptingu að sinni og flytur hana hér.
    Þá er ástæða til þess að ræða nokkru nánar um tillögu er meiri hl. fjvn. gerir að því er varðar dóms- og kirkjumrn., Fangamál, ýmsan kostnað. Þar er gert ráð fyrir því að tekin verði upp undir heilbr.- og trmrn. ný stofnun, Vistun geðsjúkra fanga. Í 6. gr. verði heimilað að kaupa húsnæði til vistunar geðsjúkra fanga. Viðfangsefni 1.20 undir liðnum Fangamál, ýmis kostnaður hjá dómsmrn. verði lækkað um 12 millj. kr. og er þar um að ræða tilfærslu á þessu fé yfir til hinnar nýju stofnunar. Einnig kemur síðar í till. meiri hl. fjvn. till. um viðbótarframlag úr ríkissjóði til stofnunarinnar, samtals að fjárhæð 10 millj. kr. Með því hefur sem sé verið tekin sú ákvörðun að setja á stofn vistun fyrir geðsjúka fanga með húsakaupaheimild á 6. gr. og fjárveitingu til rekstrar, samtals að fjárhæð 22 millj. kr. Er ástæða til þess að lýsa ánægju með að einhver skriður skuli kominn á þetta mál sem lengi hefur verið okkur Íslendingum til mikillar vansæmdar.
    Þá er ástæða til þess að víkja að till. sem gerð er undir félmrn. um málefni fatlaðra, till. um að liðurinn 1.10 Vistanir hækki um 2 millj. kr. Þessi till. var raunar gerð við 2. umr. og átti þá að hljóta um 5 millj. kr. hækkun. Vegna mistaka var tillagan aðeins um 3 millj. kr. hækkun sem ekki nægir til þess að hægt sé að fjölga sólarhringsvistunum upp í 4 -- 5 sólarhringa eins og ráð hafði verið fyrir gert og er það leiðrétt hér.
    Þá er ástæða til að fara örfáum orðum um till. er varða Tryggingastofnun ríkisins. Þar er lagt til að kostnaður við yfirstjórn verði hækkaður um 18 millj. kr. og er sú hækkun um það bil helmingur af beiðni Tryggingastofnunarinnar. Þá er auk þess ráð fyrir því gert að lífeyristryggingar hækki um 115 millj. kr. og sjúkratryggingar um 130 millj. kr. Með þessum till. er gert ráð fyrir því að allverulegur árangur náist til lækkunar hjá Tryggingastofnun ríkisins í útgjöldum vegna sjúkratrygginga og nokkur árangur einnig varðandi lífeyristryggingar þótt horfið sé að mestu frá þeirri stefnu sem ríkisstjórnin hafði boðað, að tekjutengja bætur lífeyristrygginganna. Meiri hl. fjvn. er ljóst að hér er teflt á tæpasta vaðið í sambandi við áætlun um fjárþörf og að líkur eru e.t.v. á því að ekki náist allur þessi áætlaði sparnaður á útgjöldum Tryggingastofnunarinnar fram.
    Þá erum við komin að tillögu er varðar landlækni og afgreiðslu á erindum Krýsuvíkursamtakanna. Um Krýsuvíkursamtökin er það að segja að vistheimilið í Krýsuvík hefur ekki fengið starfsleyfi hjá heilbrrn.

sem heilbrigðisstofnun. Þá varð ekki árangur af samningum dómsmrn. og Krýsuvíkursamtakanna en samningaviðræður um vistun fóru fram á síðasta ári. Talsverðir erfiðleikar munu einnig hafa verið í samskiptum samtakanna og opinberra aðila annarra en landlæknis sem m.a. hafa komið fram í því að hvorki ráðuneyti heilbrigðismála né félagsmála höfðu fengið skýrslu frá samtökunum né reikninga. Engar upplýsingar lágu fyrir í þessum ráðuneytum um rekstur samtakanna eða vistanir á því ári sem er að líða en Krýsuvíkursamtökin fengu fjárveitingu að upphæð rúmar 4 millj. kr. á fjárlögum ársins 1990 og viðbótarfjárveitingu að fjárhæð um 2,4 millj. kr. á fjáraukalögum nú í haust. Forsvarsmenn Krýsuvíkursamtakanna komu hins vegar upplýsingum á framfæri við fjvn., bæði endurskoðuðum reikningum fyrir árið 1988 og 1989 og einnig lögðu þeir fram viðamikla skýrslu um starfsemina á yfirstandandi ári þar sem m.a. komu fram upplýsingar um vistanir og fleira. Þá hefur landlæknir einnig sent bréf til
fjvn. þar sem hann mælir eindregið með því að ríkisvaldið stuðli að því að Krýsuvíkursamtökin geti áfram rekið vistunaraðstöðu fyrir unga fíkniefnaneytendur sem eiga hvergi annars staðar athvarf. Einnig liggur fyrir í þessu bréfi álit landlæknis og þess sérfræðings um geðhjálp sem landlæknisembættið styðst við þar sem mælt er eindregið með starfsemi af þessu tagi og fram tekið að landlæknir sé reiðubúinn til að taka á sig faglega og fjárhagslega ábyrgð á þessari starfsemi. Fjvn. leggur því til að málið sé afgreitt með þeim hætti að á vegum landlæknis sé veitt sérstök fjárveiting, 8 millj. kr., vegna vistunar á vegum Krýsuvíkursamtakanna og sé landlæknir þar með gerður faglega og fjárhagslega ábyrgur fyrir því viðfangsefni sem hér um ræðir.
    Þá er ástæða til þess að fara örfáum orðum um till. er varðar sjúkrahús og læknisbústaði. Þar er lagt til að tekinn verði inn nýr liður, Sjúkrahús almennt, með 11 millj. kr. fjárveitingu. Er hér um það að ræða að milli umræðna hefur verið athuguð betur staða sjúkrahúsa á landsbyggðinni utan Reykjavíkur og Akureyrar, en eins og menn muna var í till. fjvn. fyrir 2. umr. gert ráð fyrir því og samþykkt á Alþingi að bæta nokkuð stöðu sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Akureyri hvað varðar álagsprósentu. Þörfin hjá sjúkrahúsunum úti á landi hvað varðar hækkun á álagsprósentu er nokkuð misjöfn. Sums staðar er hún fyrir hendi en annars staðar ekki. Niðurstaða nefndarinnar er sú að gera till. um að sérstök fjárveiting, 11 millj. kr., komi óskipt inn á liðinn Sjúkrahús almennt og er þar um rekstrarfjárveitingu að ræða. Mun heilbrrh. ráðstafa af þessum lið til sjúkrahúsanna úti á landi í samræmi við fjárhagsstöðu þeirra.
    Þá er ástæða til að staðnæmast við till. sem nefndin gerir er varðar Vita - og hafnamálaskrifstofuna. Þar eru sértekjurnar lækkaðar um 36 millj. kr. Er það vegna þess að fallið hefur verið frá álagningu hafnagjalds sem áætlað var í fyrra frv.
    Þá er ástæða til að staldra við ýmis framlög á vegum samgrn. Um nokkur undanfarin ár hefur fjvn. Alþingis beitt sér fyrir því að fé yrði veitt á fjárlögum til þess að þróa sjálfvirkt tilkynningakerfi fyrir fiskiskip. Verkstaðan er nú sú að hönnunar- og tilraunavinnu er lokið og er viðfangsefnið komið á framkvæmdastig. Um er að ræða gríðarlegt öryggisatriði fyrir sjómenn og jafnframt viðfangsefni þar sem Íslendingar eru að ryðja braut í öryggismálum. Er enginn vafi á því að þetta verkefni getur haft í för með sér talsvert umfangsmikla framleiðslu hér á Íslandi á þeim tækjabúnaði sem hannaður hefur verið í þessu sambandi. Fjvn. leggur til að nú verði skrefið stigið í þá átt að hefja framkvæmdir. Í viðræðum við Póst og síma hefur komið fram að Póst- og símamálastofnun er reiðubúin að taka að sér að byggja upp strandstöðvakerfi það sem þarf fyrir sjálfvirku tilkynningaskylduna. Framkvæmdir á næsta ári vegna uppbyggingar strandstöðva eru taldar kosta 25 millj. kr. Samkomulag hefur náðst við Póst og síma um það að stofnunin taki að sér þessa framkvæmd alla gegn því að fá 10 millj. kr. fjárveitingu úr ríkissjóði og er till. gerð um þá fjárveitingu hér. Að öðru leyti mun Póst- og símamálastofnunin sjálf sjá um að framkvæma það og kosta sem á vantar. Í öðru lagi er áætlað að áframhaldandi kostnaður við hönnun hugbúnaðar og vinnslu við móðurtölvuna sem Slysavarnafélag Íslands starfrækir muni kosta 3 -- 4 millj. kr. og gerir nefndin till. um 3 millj. kr. fjárframlag í því skyni. Þá er einnig stefnan sú að einkaaðilar, framleiðsluaðilar hér á Íslandi, taki að sér að smíða þann búnað sem þarf að vera í hverju skipi til að hægt sé að byggja upp sjálfvirkt tilkynningakerfi fyrir fiskiskip. Er einnig hægt að nota það kerfi til ýmissa annarra hluta, boðskipta, sendinga og ýmissa upplýsingaskipta við land og eru líkur á að tekjur af þessu kerfi vegna þeirrar miklu þjónustu sem það getur veitt muni standa undir rekstri þess þegar kerfinu hefur verið komið á fót.
    Þá hef ég lokið við að fjalla um þær till. um breytingar á 4. gr., sem meiri hl. fjvn. hefur gert og þarfnast sérstakra skýringa umfram það sem fram kemur í þskj. Ég vil aðeins taka það fram um þessar tillögur að þó svo að meiri hl. fjvn. flytji þær hingað inn á Alþingi, þá eru margar þeirra studdar af minni hl. og hann hefur tekið fullan þátt í að afgreiða. Verði þessar till. samþykktar mun gjaldahliðin hækka í 104 milljarða 103 þús. kr. Verði tekjutillögur nefndarinnar einnig samþykktar munu tekjur hækka í um 101 milljarð kr. Halli á rekstri ríkissjóðs, sem var 3 milljarðar 650 millj. kr. í frv. yrði þá 4 milljarðar 27 millj. kr. og nemur aukningin 377 millj. kr. Eru þá ekki meðtaldar tillögur samvn. samgm. til hækkunar né heldur tillögur menntmn. um heiðurslaun listamanna.
    Þá er loks ástæða til þess að ræða um till., sem meiri hl. nefndarinnar gerir um breytingu á heiti viðfangsefnis. Um er að ræða fjárlaganúmerið 04 289 Endurgreiðsla gjalda í landbúnaði, og viðfangsefni undir því fjárlaganúmeri sem hét ,,Endurgreiðsla kjarnfóðurgjalds``. Meiri hl. leggur til að þessu heiti verði breytt og hljóti viðfangsefnið heitið Endurgreiðsla gjalda. Í sambandi við þá afgreiðslu hefur ríkisstjórnin gert svohljóðandi samþykkt:
    ,,Breytingar verði gerðar á útgjaldaliðnum Endurgreiðsla kjarnfóðurgjalda hjá landbrn. í fjárlagafrv. og hann færður til samræmis við raunverulega framkvæmd. Endurskoðun fari fram á öllum greiðslum og gjöldum sem fara um fjárlögin og áhrif hafa á búvöruverð og samkeppnisstöðu búgreina, hvort sem nefndar eru endurgreiðslur eða niðurgreiðslur. Tilgangur þessarar endurskoðunar, sem lokið skal í febrúar 1991, er að fá yfirlit yfir þessar greiðslur og samræma framkvæmd þeirra og að allar raunverulegar niðurgreiðslur verði færðar sem slíkar á fjárlögum.``
    Þá gerir meiri hl. fjvn. allmargar brtt. við 6. gr. fjárlagafrv. Verða þær brtt. nú raktar, en þær er að finna á þskj. 414. Engar breytingar eru gerðar á þeim tillögum þar sem lagt er til að Alþingi gefi ríkisstjórninni tilteknar heimildir. Verulegar breytingar eru hins vegar gerðar á þeim till. í fjárlagafrv. sem varða heimildir til fjmrh. Heimildargreinum í frv. sem lúta að eftirgjöf annarra gjalda en aðflutningsgjalda er ekki breytt en gerð er till. um nýja heimildargrein undir þeim flokki sem lýtur að því að heimila að fella niður stimpilgjöld af leigu flugvélar á vegum flugfélagsins Atlanta hf.
    Þar sem rætt er í frv. um ráðstöfun eigna og heimildagreinar í því sambandi, þá leggur nefndin til að felldar verði niður úr fjárlögunum þær heimildargreinar til sölu eigna sem þegar hafa verið nýttar. Þar er um að ræða greinar 4.11, 4.16, 4.17, 4.18, 4.26 og 4.41 í fjárlagafrv. Hins vegar leggur nefndin til að heimildargreinum um sölu húseigna og annarra fasteigna verði fjölgað talsvert og nýjar heimildargreinar eru greinarnar frá og með 4.51 til og með 4.72. Fæstar þessara nýju greina þurfa sérstakra skýringa við. Aðeins skal bent á að þar er að finna till. um að afhenda Neshreppi utan Ennis til eignar jörðina Rif á Snæfellsnesi. Hún er gerð til þess að fullnægja samkomulagi sem gert var á þessu ári við yfirtöku landshafnarinnar á Rifi, en fram skal tekið að fjvn. gerir þó ráð fyrir því að þess verði gætt við afhendingu jarðarinnar að undanskilið verði að hægt sé, ef þörf krefur, að gera þær ráðstafanir sem gera þarf til þess að stækka flugvöll á Rifi. Þá er í næstu till. gert ráð fyrir því að fjmrh. fái heimild til að selja þann hluta jarðarinnar Gufuskála á Snæfellsnesi sem Póstur og sími ekki þarf vegna starfsemi sinnar.
    Um þær till. í frv. sem falla undir fasteignakaup, lántökuheimildir o.fl. er það að segja að fjvn. leggur til bæði niðurfellingar og breytingar á þeim greinum sem í frv. voru. Lagt er til að fella niður grein 5.5 sem í frv. var, svo og 5.7 en sú grein, Heimild til fjmrh. um að kaupa húsnæði fyrir Ríkisendurskoðun og taka til þess nauðsynleg lán, kom til umræðu við 2. umr. fjárlaga. Ástæðan fyrir því að fjvn. leggur til að þessi tillögugrein falli nú niður er sú að búið er að festa kaup á húsi sem gert er ráð fyrir að Ríkisendurskoðun leigi og er Ríkisendurskoðun um það bil að flytja í þetta nýja húsnæði. Það er síðan til seinni tíma skoðunar hvort forsetum Alþingis finnst ástæða til þess að festa kaup á öðru húsnæði og þá á vegum Alþingis sem yrði samastaður Ríkisendurskoðunar.
    Þá gerir fjvn. till. um að breyta grein 5.8 sem í frv. var og hún orðist eins og í till. nefndarinnar segir.
    Þá er í fjárlagafrv. grein 5.28 sem fjallar um að ráðherra sé heimilt ,,að kaupa húsnæði fyrir ríkisstofnanir og taka til þess nauðsynleg lán ef fullreynt þykir að ekki fáist fyrir þær leiguhúsnæði á viðunandi leigukjörum að mati fjmrn.`` Þessi grein var einnig inni í fjárlagafrv. fyrir yfirstandandi ár en var þá felld niður af fjvn. og er nú komin afturgengin hér. Nefndinni finnst ótækt að veita svo víðtækar heimildir sem þessa. Samkvæmt þessu hefði fjmrh. heimild til þess að kaupa svo til hvaða húsnæði sem er, á hvaða stað sem er, fyrir hvaða stofnun sem er. Þetta finnst nefndinni ótækt þó að slíkt hafi kannski áður verið gert og leggur því til að greinin falli aftur út og vonast til þess að þar með sé þessi draugur endanlega kveðinn niður.
    Þá gerir nefndin nokkrar breytingar á tillögugrein 5.33. Nýjar till. nefndarinnar eru hins vegar frá og með tillögugrein 5.40 til og með tillögugrein 5.50. Ástæða er til að benda á nokkrar þessara till. Er þar í fyrsta lagi staðnæmst vð till. um heimild til fjmrh. að ganga til samninga um kaup á björgunarþyrlu fyrir Landhelgisgæslu Íslands og taka til þess nauðsynleg lán að því tilskildu að önnur fjármögnun komi til, m.a. af happdrættisfé, en frv. þess efnis er nú til meðferðar á Alþingi. Þá er einnig þarna að finna heimild til fjmrh. að kaupa húsnæði til að nota sem heimili fyrir geðsjúka afbrotamenn og taka til þess nauðsynleg lán, eins og áður hefur komið fram. Þá er einnig hér að finna tillögugrein um heimild til að kaupa húsnæði fyrir tollgæsluna á Seyðisfirði. Mikil vandkvæði hafa verið á tollafgreiðslu farþega þar og margir kvartað yfir langri bið sem hefur verið við afgreiðsluna. Er nauðsynlegt að gerðar séu ráðstafanir til þess að lagfæra það. Þá er einnig ástæða til þess að benda á heimildargrein sem þarna er um að kaupa fiskveiðisamlíki, sem ég vildi nú raunar heldur kalla fiskveiðihermi, fyrir Stýrimannaskóla Íslands og taka til þess nauðsynleg lán. Hér er um að ræða næsta skref í þeirri uppbyggingu í sjómannafræðslu sem fram fer hjá Stýrimannaskóla Íslands og Vélskóla Íslands. Eftir að hafa keypt þetta tæki má segja að skipstjórnar - og vélstjórnarnám á Íslandi hafi verið tæknivætt og það nám bjóði nú upp á nýjustu og fullkomnustu tækni.
    Þá erum við komnir að Ýmsum heimildum. Þar gerði fjvn. eina breytingu á heimildargrein sem var í fjárlagafrv. Það er grein 6.12 en í lok greinarinnar var sagt að heimilt væri fjmrh. að fella niður greiðslur til verkefna sem hætt er við eða frestað. Hér er um viðbót að ræða við þá heimild sem gefin var á sl. ári við afgreiðslu fjárlaga yfirstandandi árs. Þykir fjvn. þessi heimild óæskileg og varar við því að menn feti sig út á þá braut að gefa í fjárlagaafgreiðslu fjmrh. eða ríkisstjórn heimildir til þess að breyta afgreiðslu Alþingis á fjárlögum án þess að um það sé fjallað af Alþingi sjálfu. Með slíkum breytingum væri verið að

ómerkja afgreiðslur Alþingis við gerð fjárlaga og ef svo ætti að vera væri öll sú vinna tilgangslítil sem Alþingi leggur á sig við afgreiðslu fjárlaganna.
    Meiri hl. fjvn. hefur einnig gert till. um allmargar viðbótargreinar eða frá og með grein 6.21 til og með grein 6.34. Skal nú farið nokkrum orðum um þær greinar sem ástæða er til að skýra sérstaklega.
    Ber ég þá fyrst niður í grein 6.22 þar sem heimilað er að ganga frá samningum við Rafveitu Siglufjarðar um yfirtöku skulda o.s.frv. Heimild sama efnis er í lánsfjárlögum yfirstandandi árs en hefur ekki verið notuð. Eins og sú grein er orðuð þar er hún illskiljanleg og því sem næst óframkvæmanleg. Hefur fjvn. því gert breytingar á orðalagi greinarinnar, m.a. til þess að gera það fyllilega ljóst að hér er verið að heimila sambærilega yfirtöku skulda vegna Rafveitu Siglufjarðar eins og áttu sér stað á árinu 1989 vegna Rafmagnsveitna ríkisins og Orkubús Vestfjarða.
    Þá er ástæða til að benda á grein 6.23 en sú till. varðar heimild til að endurgreiða aðflutningsgjöld og söluskatt af aðföngum vegna byggingar stálverksmiðju Íslenska stálfélagsins hf. og er í samræmi við sambærilegar afgreiðslur sem áður hafa verið gerðar. Till. var flutt um þetta mál við 2. umr. um fjárlagafrv. en þá þegar lá fyrir erindi hjá fjvn. frá iðnrn. um sama efni. Í till. þeirri sem flutt var við 2. umr. var auk þess sem hér greinir gert ráð fyrir því að heimild væri gefin til að fella niður aðflutningsgjöld að vinnubúðum. Meiri hl. fjvn. féllst ekki á þann hluta tillögunnar, enda er gert ráð fyrir því og raunar áformað af hálfu fyrirtækisins að selja umræddar vinnubúðir hér innan lands eftir að þær hafa verið notaðar eins og svo oft hefur verið gert í slíkum tilvikum. Af þeim sökum hafa ekki verið veittar heimildir til niðurfellingar aðflutningsgjalda af slíkum búðum sem síðan eru seldar innan lands og er það ekki heldur gert hér.
    Um liðinn 6.26 er það að segja að nefnd þriggja ráðuneyta hefur skoðað rekstrarvanda Sjálfsbjargar á Akureyri sem orðinn er mjög mikill, m.a. vegna mikillar óvarkárni og allt of mikillar bjartsýni í sambandi við uppbyggingu og fjárfestingar. Mikill halli hefur verið á rekstrinum sem er að komast í fjárþrot. Niðurstaða athugunar ráðuneytanna var sú að ef komast ætti hjá gjaldþroti yrðu ríkið, Akureyrarbær og aðrir aðilar að taka höndum saman um lausn þar sem liður í lausninni væri að selja tilteknar eignir og að breyta stjórnarháttum. Niðurstaða af viðræðum við bæjarstjórn Akureyrar og fleiri liggur ekki fyrir. Af þeim sökum er meiri hl. fjvn. ekki reiðubúinn til þess að gera till. um fjárframlag í þessu skyni, en leggur þess í stað til að veitt verði heimild af þessu tagi í 6. gr. Sama máli gegnir um næstu till.
    Þá er ástæða til þess að víkja að þriðju og síðustu till. Þar er gerð till. um að heimila fjmrh. að semja við Reykjavíkurborg og aðra aðila um lausn á fjárhagsvanda Íslensku óperunnar að höfðu samráði við menntmrh. og að tilskildu samþykki fjvn. Ég hef þegar, virðulegu forseti, í máli mínu hér áðan lýst þeirri tillögu nokkuð nánar.
    Þá bendi ég á till. 6.33 þar sem fjmrh. er heimilað að semja um yfirtöku á lánum Byggðastofnunar hjá Framkvæmdasjóði Íslands. Loks er veitt heimild til þess að semja um smíði á nýjum lóðsbát fyrir Hornafjarðarhöfn í stað þess sem sökk og taka til þess nauðsynleg lán. Meiri hl. fjvn. finnst eðlilegt að litið sé á þetta mál sem tjónagreiðslu og að ríkissjóður taki þátt í lausn málsins með þeim hætti sem hér er gerð till. um.
    Ég er þá loks kominn að brtt. fjvn. sem varðar B - hlutann, 5. gr., en þær brtt. er að finna á þskj. 393. Fjvn. hefur eins og vani er kallað til sín forstöðumenn ýmissa ríkisstofnana sem eru í B-hluta. Mun ég fara nokkrum orðum um þá afgreiðslu sem hér á sér stað á málefnum sumra þessara stofnana. Er þá rétt að víkja fyrst nokkrum orðum að Byggðasjóði en eins og að framan segir gerir fjvn. tillögu um að í 6. gr. komi heimild fyrir fjmrh. til að semja um yfirtöku á lánum Byggðastofnunar í Framkvæmdasjóði Íslands.
    Um Lánasjóð ísl. námsmanna hef ég þegar fjallað. Þar er gerð till. í 4. gr. um að framlag ríkisins verði lækkað um 200 millj. kr.
    Málefni Ríkisútvarpsins voru til sérstakrar skoðunar í fjvn. Var m.a. rætt við útvarpsstjóra og fjármálastjóra Ríkisútvarpsins. Mikill vandi er fyrirsjáanlegur í rekstri stofnunarinnar, m.a. vegna þess að ekki hefur verið staðið við þau áform, sem þó hafa verið boðuð af hálfu stjórnvalda, að sjá svo til að Tryggingastofnun ríkisins greiði afnotagjöld þeirra bótaþega sem nú fá afnotagjöld niður felld samkvæmt ákvörðun Tryggingastofnunarinnar. Skiptir þetta verulegum fjárhæðum fyrir Ríkisútvarpið en tap áskriftargjalda hjá Ríkisútvarpinu af þessum sökum mun nema um 120 millj. kr. á ári. Hafði verið samþykkt að Ríkisútvarpinu yrði bætt það með greiðslum frá Tryggingastofnun ríkisins sem ákveður þessa niðurfellingu þannig að Ríkisútvarpið sjálft getur engin afskipti eða áhrif haft þar á. Við þetta hefur hins vegar ekki verið staðið og eykur það vanda Ríkisútvarpsins. Væri ástæða til að leita þeirrar málamiðlunar í þessu máli að frá og með næstu áramótum sæi Tryggingastofnun um að greiða niðurfellingu afnotagjalda fyrir þá einstaklinga sem hún bætir á skrá um niðurfellingar þannig að tilfærsla á þessu viðfangsefni gæti þá orðið í áföngum. Þá er orðið mjög alvarlegt ástand á langbylgjusendinum á Vatnsendahæð og getur hann brugðist hvenær sem er. Sendistöðin er orðin það gömul að erfiðleikar eru orðnir á, og nú sennilega ógerlegt, að fá nauðsynlega varahluti til að halda stöðinni við. Getur hvenær sem er komið að því að langbylgjusendingar stöðvist af þessum sökum en kostnaður við endurnýjun á langbylgjusendistöðinni er hvorki meiri né minni en 500 millj. kr. Var m.a. horft á það verkefni þegar ákveðið var að Framkvæmdasjóður Ríkisútvarpsins skyldi njóta tekna af aðflutningsgjöldum af hljóðvarps- og sjónvarpstækjum og hlutum í þau. En sá tekjustofn hefur mjög verið skertur eins og kunnugt er. Þá er einnig ljóst að forsendur fjárlagafrv. um launakostnað bæði hjá hljóðvarpi og sjónvarpi og önnur rekstrargjöld eru talsvert lægri en tölur úr rekstri Ríkisútvarpsins gefa tilefni til að ætla. Munar þar um 120

millj. kr. eða um það bil sömu fjárhæð og ég áðan gat um hér áðan að Ríkisútvarpið yrði að sætta sig við í tekjurýrnun vegna þess að ekki var staðið við þau fyrirheit að Tryggingastofnun ríkisins tæki að sér að greiða niðurfellingar afnotagjalda bótaþega trygginganna. Þá bætir það ekki úr skák að Ríkisútvarpið fékk ekki þá hækkun afnotagjalda sem afgreiðsla Alþingis á fjárlögum yfirstandandi árs gerði ráð fyrir að stofnunin fengi
síðari hluta ársins 1990 og er ekki leiðrétt fyrir þessu við gerð fjárlaganna nú. Má því segja með sanni að vandamál Ríkisútvarpsins séu skilin eftir óleyst við þessa fjárlagaafgreiðslu og er nú mikil hætta á að aftur fari að falla í gamla farið með viðskipti Ríkisútvarpsins og ríkissjóðs, þ.e. að launaskuldir taki að hlaðast upp hjá ríkissjóði á ný jafnvel þótt forráðamönnum Ríkisútvarpsins hafi tekist að eiga fyrir launakostnaði og eigin rekstri fram til þessa.
    Um Þjóðleikhúsið hef ég rætt og Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli var afgreidd við 2. umr. Um Flugstöð Leifs Eiríkssonar er það að segja að rekstur Flugstöðvarinnar stefnir í mikið óefni og hefur fjvn. fengið upplýsingar um stöðu og horfur. Einu till. sem nefndinni hafa borist eru á þá lund að tekist yrði á við rekstrarvanda Flugstöðvarinnar með því sérstaklega að flytja til fjármuni með þeim hætti að lendingargjöld á Keflavíkurflugvelli, sem nú renna í ríkissjóð, renni til Flugstöðvarinnar og að hluti hagnaðar af rekstri Fríhafnar á Keflavíkurflugvelli, sem nú rennur allur í ríkissjóð, gangi til Flugstöðvarinnar. Meiri hl. hefur ekki fallist á að gera slíkar till., enda skiptir það út af fyrir sig ekki máli hvort menn takast á við vanda Flugstöðvarinnar með því að auka útgjöld ríkissjóðs með beinum styrkjagreiðslum eða með því að skerða tekjur ríkissjóðs sem hann hefur og tengjast flugvellinum. Ástæða er hins vegar til þess að skoða hvort ekki sé rétt að gera þær hagræðingar í Flugstöðinni sjálfri svo sem með því að verða við óskum Fríhafnarinnar um aukið svigrúm þannig að Flugstöð Leifs Eiríkssonar gangi til móts við tilmæli þess leigjanda sem hæsta leiguna borgar og dragi þá frekar úr leigu sinni til aðila sem lægri leigutekjur er af að hafa.
    Þá er ástæða til þess að segja örfá orð um byggingarsjóðina. Eins og fram hefur komið er gert ráð fyrir því að fjárframlag úr ríkissjóði verði veitt til Byggingarsjóðs verkamanna að fjárhæð 200 millj. kr. og er sú till. í brtt. fjvn. við 4. gr. Er hér um að ræða niðurstöðu umræðna í ríkisstjórn en ríkisstjórnin hefur fjallað um málefni byggingarsjóðanna þessa síðustu daga eins og kunnugt er og náð samkomulagi um afgreiðslu málsins. Er till. sem ég var hér að lýsa hluti af því samkomulagi.
    Þá er ástæða til að segja örfá orð um málefni Pósts og síma. Rekstrarafkoma þeirrar stofnunar hefur tekið miklum stakkaskiptum á undanförnum árum og eru þau öll til hins betra. Með því að heimila stofnuninni að byggja upp og auka þjónustukerfi sitt svo sem með uppbyggingu farsíma og boðkerfis hefur stofnuninni tekist að auka mjög tekjur sínar og er afkoma hennar nú orðin harla góð öfugt við það sem var fyrir aðeins örfáum árum. Er ástæða til að fara um það viðurkenningarorðum. Forráðamenn stofnunarinnar hafa komið á fund fjvn. og lagt fyrir nefndina rekstrar - og fjárfestingaráform sín. Er skemmst frá því að segja að nefndin sér ekki ástæðu til þess að gera neinar breytingar þar á, enda rúmast þau áform að öllu leyti innan þess ramma sem fjárlagafrv. leggur. Er í áætlunum Pósts og síma m.a. gert ráð fyrir fjárfestingum á árinu 1991 upp á 1250 millj. kr. þannig að áframhaldandi hröð uppbygging mun verða á þjónustukerfi Pósts og síma og verulegar lagfæringar munu eiga sér þar stað, bæði á línukerfi, langlínusamböndum og öðru þjónustukerfi stofnunarinnar. Fjvn. er fyrir sitt leyti samþykk þeim forsendum sem forráðamenn Pósts og síma hafa lagt fyrir nefndina. Verði fjárlagafrv. afgreitt eins og það nú liggur fyrir gerir það m.a. ráð fyrir því að gjaldskrárhækkanir hjá Pósti og síma verði tvívegis á árinu og er þá miðað við að gjaldskrárhækkun að meðaltali 3,5% sé væntanleg í febrúarmánuði en síðar á árinu verður skoðað hvort þörf er fyrir frekari gjaldskrárhækkanir.
    Þá hefur fjvn. átt viðræður við forstöðumenn Skipaútgerðar ríkisins. Hætt er við því að sú áætlun sem felst í frv. nægi ekki til þess að Skipaútgerð ríkisins geti með góðu móti fjármagnað óbreyttan rekstur. Forráðamenn Skipaútgerðarinnar hafa óskað eftir því að fá hækkun á fjárframlagi en meiri hl. nefndarinnar telur að ekki sé rétt að gera slíka till. heldur að láta á það reyna hvort unnt sé m.a. með hagræðingu og samstarfi við önnur skipafélög að ná rekstrarkostnaði frekar niður.
    Þá er loks rétt að víkja að Rafmagnsveitum ríkisins en fjvn. átti einnig viðræður við forstöðumenn þeirrar stofnunar. Verulegur árangur hefur einnig orðið í rekstri hennar til sparnaðar og minni rekstrarútgjalda og hefur m.a. dregið talsvert úr launakostnaði hjá stofnuninni án þess að verkefni hafi dregist saman. Forsvarsmenn Rafmagnsveitna ríkisins lögðu fyrir fjvn. áætlunartölur sínar til samanburðar við það sem kemur fram í fjárlagafrv. og kom fram hjá þeim að enda þótt stofnunin hefði óskað eftir 3% hækkun nær hún jafnvægi í rekstri miðað við ýtrasta aðhald með aðeins 1 -- 2% hækkun á töxtum á árinu 1991. Er þá miðað við hækkunarþörf frá upphafi árs. Töldu forsvarsmenn stofnunarinnar sig geta stýrt rekstri hennar að fenginni slíkri hækkun og er þá miðað við hækkunarþörf á gjaldskrá RARIK umfram hækkunartilefni sem fram kunna að koma ef hækkun verður á gjaldskrá Landsvirkjunar. Fjvn. féllst fyrir sitt leyti á niðurstöður stjórnenda RARIK og gerir ráð fyrir því að afgreiðsla Alþingis miði við að gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins gæti hækkað um allt að 1 -- 2% á árinu 1992.
    Þá er loks rétt að víkja að till. sem fjvn. gerði við 7. gr. Sú till. er á þá lund að skattvísitala verði hækkuð úr 100 stigum miðað við árið 1990 í 109,5 stig. Er sú till. miðuð við að ekki verði um hækkun á skattbyrði tekjuskatts að ræða. Ég vil taka það fram að að sjálfsögðu er það meiri hl. fjvn. sem gerir þessa till.

þó að mér hafi orðið á að segja að þessi till. væri frá fjvn.
    Virðulegi forseti. Ég hef nú lokið við að gera grein fyrir till. meiri hl. fjvn. við 3. umr. Um leið og ég ítreka þakkir til samnefndarmanna minna vil ég ljúka máli mínu með því að leggja til að till. meiri hl. verði samþykktar og fjárlög fyrir árið 1991 verði samþykkt sem lög frá Alþingi með þeim breytingum.