Tryggingagjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Á þskj. 442 liggur fyrir svofellt álit meiri hl. fjh.- og viðskn.:
    ,,Nefndin hefur fjallað um frumvarpið og fékk á sinn fund Ólaf Davíðsson, Víglund Þorsteinsson og Bjarna Þór Jónsson frá Félagi íslenskra iðnrekenda, Þórarin V. Þórarinsson og Hannes Sigurðsson frá Vinnuveitendasambandi Íslands, Þórleif Jónsson og Guðlaug Stefánsson frá Landssambandi iðnaðarmanna, Hauk Halldórsson og Hákon Sigurgrímsson frá Stéttarsambandi bænda, Ágúst H. Elíasson frá Samtökum fiskvinnslustöðva, Árna Benediktsson frá Félagi Sambandsfiskframleiðenda, Svein Hjört Hjartarson frá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, Láru V. Júlíusdóttur frá Alþýðusambandi Íslands, Vilhjálm Egilsson frá Verslunarráði Íslands, Magnús Pétursson, Bolla Þór Bollason og Snorra Olsen frá fjmrn. og Garðar Valdimarsson ríkisskattstjóra. Þá bárust nefndinni skriflegar umsagnir frá Vinnuveitendasambandi Íslands og Landssambandi iðnaðarmanna.
    Meiri hl. nefndarinnar fellst á nauðsyn þess að samræma launagjöld. Ljóst er að núgildandi fyrirkomulag er óhentugt og þungt í vöfum, jafnt fyrir skattgreiðendur og skattyfirvöld. Jafnframt telur meiri hl. nefndarinnar ljóst að sú breyting sem felst í frv., að innheimta tryggingagjald mánaðarlega í tengslum við gildandi staðgreiðslukerfi tekjuskatta einstaklinga, muni bæta skattskil verulega og draga úr möguleikum á undandrætti á skattinum.
    Ljóst er að í frv. felst nokkur íþynging á þeim greinum sem nú eru undanþegnar launagjöldum. Fyrir liggur að félmrh. hefur ákveðið að skipa samstarfsnefnd ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga til þess að gera tillögur um með hvaða hætti afnám aðstöðugjalds geti átt sér stað og hvaða breytingar þurfi að gera á öðrum tekjustofnum sveitarfélaga. Ákveðið er að samstarfsnefndin hafi samráð við aðila atvinnulífsins um tillögugerðina.
    Meiri hl. nefndarinnar telur nauðsynlegt að tekin verði til endurskoðunar ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar, m.a. að því er varðar bótaréttindi, enda fela ákvæði frv. um tryggingagjald í sér að fleiri aðilar munu greiða til Atvinnuleysistryggingasjóðs. Greint hefur verið frá því að heilbr.- og trmrh. muni skipa starfshóp til að endurskoða m.a. réttindaákvæði laga um atvinnuleysistryggingar.
    Meiri hl. nefndarinnar leggur áherslu á nauðsyn þess að flýtt verði endurskoðun á lögum um aðstöðugjald.
    Meiri hl. nefndarinnar mælir með samþykkt frv. með breytingu sem flutt er tillaga um á sérstöku þskj. Sú breyting felur í sér að tryggingagjald verði í tveimur þrepum á árinu 1991, þ.e. 2,5% og 6%.``
    Herra forseti. Meiri hl. nefndarinnar leggur til að þetta frv. verði samþykkt með þessari breytingu.