Tryggingagjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Stefán Valgeirsson :
    Herra forseti. Þetta frv. sem hér er verið að ræða um hefur ekki verið rætt um við mig. Þegar ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð 1988 varð það að samkomulagi að ég yrði boðaður í fjh.- og viðskn. á hvern fund og hefði þar málfrelsi og tillögurétt. Eftir að Borgfl. kom inn í ríkisstjórnina hef ég ekki verið boðaður á þessa fundi. Þegar ríkisstjórnin var mynduð 1988 var því heitið að ég fengi aðstoðarmann til þess að gera mér það mögulegt að vinna að þeim málum og setja mig inn í mál. Slíkt var tekið af um mitt ár.
    Ég hef ekki haft möguleika á að kynna mér þessi tekjuöflunarfrv. sem ríkisstjórnin nú leggur hér fram og þar af leiðir að ég mun ekki styðja þau því ég hef ekki lagt það í vana minn að samþykkja það sem ég hef ekki hugmynd um hvað í felst. Ég hef þó skoðað þessa brtt. sem meiri hl. fjh.- og viðskn. hefur komið hér fram með. Ég er andvígur þessu frv. eins og það er og mun því ekki veita því á nokkurn hátt brautargengi.