Staðgreiðsla opinberra gjalda
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
    Herra forseti. Fjh.- og viðskn. hefur athugað þetta frv., en það er fylgifrv. tryggingagjaldsfrv., og leggur meiri hl. til að það verði samþykkt, en að meiri hl. standa Guðmundur G. Þórarinsson, Ragnar Arnalds, Jón Sæmundur Sigurjónsson og Páll Pétursson.