Frsm. fjh.- og viðskn. (Páll Pétursson) :
Herra forseti. Fjh. - og viðskn. hefur athugað þetta frv. og fengið umsagnir frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Landssambandi sjúkrahúsa á Íslandi, Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja og Bandalagi háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna og var sammála um að mæla með samþykkt frv.
Undir þetta nál. rita allir nefndarmenn en með fyrirvara Friðrik Sophusson, Matthías Bjarnason og Þórhildur Þorleifsdóttir. Þetta frv. gengur út á það að þetta er afleiðing af breyttri verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga og fjallar um það að starfsmenn megi vera áfram í sínum gömlu starfsmannafélögum.