Húsnæðisstofnun ríkisins
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. félmn. (Rannveig Guðmundsdóttir) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 480 um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins frá félmn.
    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt eins og Ed. afgreiddi það. Alexander Stefánsson og Geir H. Haarde voru fjarverandi afgreiðslu málsins.
    Undir nál. rita Rannveig Guðmundsdóttir, Guðrún Helgadóttir, Eggert Haukdal, Jón Kristjánsson og Anna Ólafsdóttir Björnsson.