Útflutningsráð Íslands
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nál. á þskj. 475 um frv. til laga um Útflutningsráð Íslands, en þetta nál. er frá fjh.- og viðskn. Það er svohljóðandi:
    ,,    Nefndin hefur fjallað um frv. og leggur til að það verði samþykkt.``
    Undir þetta rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Guðrún J. Halldórsdóttir, Eiður Guðnason og Eyjólfur Konráð Jónsson, en Halldór Blöndal var fjarstaddur afgreiðslu málsins. Það var haldinn fundur um þetta í nótt eftir að fundi var slitið hér í hv. deild.
    Hæstv. viðskrh. gerði hér ítarlega grein fyrir þessu frv. og ég geri ráð fyrir því að það sé í fersku minni þingmanna.