Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 474 frá meiri hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. Nál. er svohljóðandi:
,,Nefndin hefur fjallað um frv. og mælir meiri hl. hennar með samþykkt þess.``
Undir rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson og Eiður Guðnason.
Mál þetta, eins og fram kemur, er um breytingu á lögum um virðisaukaskatt. Hér er einkum verið að fjalla um að breyta þeim ákvæðum virðisaukaskattslaga er lúta að innheimtu, en í frv. er gert ráð fyrir að lögbundnar verði svokallaðar sjóðvélar til þess að auðvelda alla innheimtu og frv. að meginstofni til flutt að áeggjan skattrannsóknarstjóra til þess að eiga auðveldara með að hafa eftirlit með þeim aðilum sem ber samkvæmt lögum að skila virðisaukaskatti.
Ég vísa til þess sem fram kemur í frv. og er nokkuð skýrt um þessi atriði og legg til að málið verði samþykkt.