Tryggingagjald
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 488 frá meiri hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um tryggingagjald. Þetta mál kom í dag til hv. Ed. frá Nd. þar sem gerðar voru nokkrar breytingar á frv. frá því sem það var kynnt við 1. umr. í Nd.
    Helstu breytingar eru að það var ákveðið að gjaldið skyldi vera í tveimur þrepum. Annars vegar 2,5% á landbúnað, iðnað og fiskvinnslu, en hins vegar 6% á aðrar greinar.
    Nefndin fjallaði um frv. á fundi áðan og mælir meiri hl. hennar með samþykkt þess.
    Undir þetta nál. rita Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson, Eiður Guðnason og Guðmundur Ágústsson, með fyrirvara.