Staðgreiðsla opinberra gjalda
Föstudaginn 21. desember 1990


     Frsm. meiri hl. fjh.- og viðskn. (Guðmundur Ágústsson) :
    Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. á þskj. 491 um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda með síðari breytingum. Nál. þetta er frá meiri hl. fjh. og viðskn. en nefndin klofnaði í afstöðu sinni til frv.
    Þetta mál kemur frá hv. Nd. þar sem það hefur fengið ítarlega umfjöllun. Nefndin hittist á fundi og komst meiri hl. hennar að svohljóðandi niðurstöðu:
    ,,Nefndin fjallaði um frv. og leggur meiri hl. hennar til að það verði samþykkt.``
    Undir nál. rita Guðmundur Ágústsson, Jóhann Einvarðsson, Skúli Alexandersson og Eiður Guðnason.