Vaxtastefna ríkisstjórnarinnar
Föstudaginn 21. desember 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
    Virðulegi forseti. Ég skal vera mjög stuttorður, enda var ég það áðan, ég talaði í 12 mínútur samkvæmt tímatalinu en hv. þm. Þorsteinn Pálsson í 23 og hv. þm. Friðrik Sophusson einnig í 23 mínútur.
    Ég stend fyrst og fremst upp til að bera af mér þær sakir að ég hafi sagt ósatt að ég hafi talað við framsóknarmanninn í bankaráði Landsbankans. Ég hef gert það oft og hann veit mjög vel minn hug í vaxtamálum og mun standa þar gegn eins og frekast er kostur. Það má gjarnan koma fram hér að við viðskrh. erum á öndverðum meiði í vaxtamálum að mörgu leyti. Hvor rassskelli hvorn veit ég ekki, en ég er stoltur af því að vera maður lægri vaxta.