Þingfrestun
Föstudaginn 21. desember 1990


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
    Virðulegi forseti. Ég les hér forsetabréf:

    ,,Forseti Íslands gerir kunnugt:
    Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsrh. umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 113. löggjafarþings, frá 21. desember 1990 eða síðar ef henta þykir, enda verði þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 14. janúar 1991.
Gjört í Reykjavík 18. desember 1990.

Vigdís Finnbogadóttir.

______________________
Steingrímur Hermannsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

    Samkvæmt þessu umboði og með tilvísun til samþykkis Alþingis lýsi ég því hér með yfir að fundum þessa Alþingis, 113. löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag og verður þingið kvatt til fundar á ný eigi síðar en 14. jan. 1991.
    Ég leyfi mér svo að óska hv. alþm. og starfsmönnum þingsins svo og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsæls nýs árs.