Ólafur Þ. Þórðarson :
Herra forseti. Hér er hreyft merku máli. Í fáum orðum sagt má segja að stefnt sé að því að löggilda starfsemi sem hefur notið stuðnings Alþingis og var í reynd sett af stað vegna hvatningar frá öryggismálanefnd sem Alþingi hafði skipað til að fjalla um öryggismál sjómanna.
Það fer ekki á milli mála að Slysavarnafélag Íslands vinnur mikið og gott starf hér á landi. Þar hafa margir góðir hugsjónamenn unnið. Þess vegna þarf að vera góður skilningur á því hvernig við getum virkjað það starf enn frekar og hvernig við getum náð betri árangri í öryggismálum sjómanna. Menn þurfa engu að síður ávallt að gæta sín þegar þeir breyta frjálsu starfi í stofnun því þá er hætt við að eitt og annað glatist úr starfseminni sem er dýrmætt. Það sem gert hefur verið til þessa hefur verið í mikilli sátt við sjómenn um land allt og skilað ótrúlega góðum árangri. Ég held t.d. að hluti af þeirri sátt hafi legið í því að þessi starfsemi hefur átt sér stað á fjölmörgum stöðum úti á landi. Það hafa ekki allt verið stórir útgerðarstaðir sem þar hafa komið inn í, heldur hefur áhugi á þátttöku skipt sköpum.
Mér finnst að þegar við setjum þetta í lagabúning sé það lykilatriði að ákvæði 2. gr. séu skoðuð gaumgæfilega, að reynt sé að fastsetja það sem skyldu að halda þessi námskeið á mörgum stöðum og einnig nægilega oft til þess að það geti verið meginregla til að fara eftir að sjómenn geti stundað þessi námskeið á þeim stað að það sé akstursleið frá þeim til námskeiðsins að morgni og heim að kveldi. Það yrði ekki friður um þessi námskeið ef þau yrðu haldin á svo fáum stöðum að sumum væri ætlað að leita sér að aðstöðu til uppihalds en aðrir gætu stundað þau í sinni heimabyggð. Hér erum við að tala um öryggismál verulega fjölmennrar stéttar, því þó að sjómönnum sem stunda sjó hverju sinni hafi farið fækkandi á seinustu árum, þá er jafnrétt að minnast þess að stór hópur sjómanna er ekki sjómenn nema stuttan tíma af sinni ævi. Því má gera ráð fyrir að mjög mikil þörf sé fyrir þessa menntun vegna þeirrar miklu endurnýjunar sem á sér stað í stéttinni. En eins og allir vita er vinnan á íslenskum skipum trúlega mesta erfiðisvinna sem unnin er á Íslandi og því ekki skrýtið þó að þar verði örari tilfærslur en í öðrum starfsgreinum. Ég tel þess vegna að um leið og þetta er lögfest þurfi að leita eftir því að ná einhverju grunnsamkomulagi um það á hvaða stöðum slík námskeið yrðu haldin í framtíðinni og einnig hversu oft. E.t.v. má segja að sumt af því efni sem verið er að tala um gæti tengst fullorðinsfræðslu, sem menn tala um að þurfi að stórefla í landinu, því að sumt af því sem verið er að tala um eru atriði sem hverjum fullorðnum manni ætti að vera tiltæk þekking á. Það eru öryggisatriði sem snerta menn, bæði á sjó og landi.
Ég tel líka að það sé rétt hjá 1. flm. að 3. gr. skipti sköpum, hún þarf að vera til staðar. Það þarf að binda þetta þeim föstu böndum að það sé skilyrði fyrir lögskráningunni að menn hafi sótt þessi námskeið.
Um það má deila hvort eigi að taka menn sem hafa stundað sjó mjög lengi og segja: Nú fáið þið ekki að fara á sjó meir nema þið farið á þessi námskeið. Sumum mun finnast að það sé viss harka í því en ég er ekki viss um að það sé verjandi að hafa annan hátt á en að krefjast þess að menn fari á þessi námskeið og sýni sjálfum sér og sínum nánustu þá virðingu að hafa þó gert það sem er lágmarksaðgerð til að tryggja meiri líkur á því að þeir geti unnið sín störf án þess að verða fyrir slysum á sjónum.
Ég fer þess vegna ekki dult með það að ég tel að sú starfsemi sem hér hefur farið fram og mun fara fram sé mikið alvörumál og mikil nauðsyn. Ég vil jafnframt hvetja flm. til þess að gefa sér þann tíma sem þarf til að vinna að samkomulagi um þau atriði sem ég hef minnst á. Ég vil ekki, svo að ég segi það hreint út, horfa fram á það að þessi námskeið ættu e.t.v. eftir að hverfa og aðallega yrði stílað upp á það að safna öllum önnum saman á Geldinganesinu við Reykjavík. Ég teldi að þá væri stefnan orðin ansi mikið út og suður frá því sem hún var þegar menn fóru af stað. Þetta vil ég að komi hér skýrt fram. En ég ætla heldur ekki flm. að það sé þeirra stefna að standa þannig að málum því að lagt er til að þessi námskeið verði haldin úti á landi.
Ég lýsi þess vegna stuðningi við þetta frv. í trausti þess að þau atriði sem ég hef gert hér að umtalsefni verði skoðuð nánar, reynt verði að ná samkomulagi um það sem lágmark á hvaða stöðum námskeiðin fari fram og einnig verði reynt að ná samkomulagi um það sem lágmark hversu oft þau fari fram á þessum stöðum því að ekki er hægt að gera ráð fyrir því að þau verði haldin á hverju ári á hverjum stað fyrir sig heldur trúlega sums staðar annað hvert ár, sums staðar kannski þriðja hvert ár. Aðalatriðið er að þeim verði dreift um allt land og þannig verði þeirri miklu sátt sem verið hefur um þessi mál fram haldið og við náum því markmiði að bæta ástandið í öryggismálum íslenskra sjómanna.