Slysavarnaskóli sjómanna
Þriðjudaginn 15. janúar 1991


     Flm. (Árni Gunnarsson) :
    Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka vel fyrir þær undirtektir sem þetta frv. hefur fengið. Ég held mér sé óhætt að segja að ekki hafi komið fram nein gagnrýni á frv. heldur eðlilegar athugasemdir við einstakar greinar þess og menn hvatt til þess að þær yrðu vandlega skoðaðar og hugleitt hvernig mætti leiða áhrif þeirra til lykta á þann veg að allir gætu orðið ásáttir.
    Ég vil nefna nokkur atriði sem hafa komið fram í ræðum hv. þm. Í fyrsta lagi gat hv. 2. þm. Vestf. þess að menn yrðu að vera á varðbergi gagnvart því að það að breyta frjálsu starfi í stofnun mundi ekki draga úr starfsemi skólans og að sú hætta mætti ekki verða fyrir hendi að skólinn breyttist í einhvers konar ríkisstofnun þar sem hin frjálsu félagasamtök hefðu ekki úrslitaáhrif um hvernig gengi og ýttu ekki á eftir því starfi sem fram fer í skólanum. Ég held að mér sé alveg óhætt að fullyrða að þrátt fyrir lögbindingu skólans mun engin breyting verða á þeim vilja sem fyrir hendi er meðal slysavarnafólks hér á landi, að efla og styrkja skólann og koma honum að því mesta gagni sem það má. Ég held að það sé einmitt verulegur þáttur í því hve vel starf Slysavarnafélags Íslands hefur gengið, það er hið ómetanlega starf sjálfboðaliða um allt land. Ég þori að fullyrða að enginn hefur áhuga á því að skerða það starf á nokkurn hátt. Slysavarnaskóli sjómanna hefur ekki síst notið þessa starfs og, eins og kemur fram raunar í grg., að starf skólans hefur notið mikillar velvildar út um allt land og er litið á það sem fastan lið í starfi félagsins. Skólinn fær þannig ómetanlegan styrk frá deildum og björgunarsveitum Slysavarnafélags Íslands, víðs vegar, sem leggja fram mikla sjálfboðaliðsvinnu í hans þágu en búast má við að fyrir slíka vinnu þyrfti að greiða að verulegu leyti ef hér væri um hreina ríkisstofnun að ræða.
    Ég hef sem sagt ekki áhyggjur af því að þeim sjálfboðaliðum muni fækka sem tilbúnir eru að leggja skólanum lið eins og verið hefur.
    Hv. 2. þm. Vestf. ræddi einnig um að ganga þyrfti tryggilega frá því að námskeið skólans yrðu haldin á eins mörgum stöðum og unnt væri. Ég er sannfærður um það að áhugi er fyrir þessu innan Slysavarnafélagsins, að hafa þessi námskeið á mörgum stöðum. En eins og kemur fram í grg. var það fjárskortur sem hamlaði því að Slysavarnafélagið gæti farið með námskeiðahald eins víða og félagið óskaði m.a. í tengslum við skólaskipið Sæbjörgu.
    Ég vil þakka hæstv. samgrh. þann velvilja sem kom fram í hans orðum í garð þessa frv. Hann sagði orðrétt að það væri tímabært að ræða starfsemi skólans og lögbindingu hans. Þykir mér gott að heyra að flm. geta átt stuðning hans vísan í þessu máli.
    Aðrir hv. þm. hafa rætt um starfsemi skólans á undanförnum árum og við það er fáu að bæta. Hjá hv. 1. þm. Vesturl. kom fram að hann vill að skólinn tengist áfram hinum félagslegu samtökum. Það er hárrétt hjá honum og ég hef komið að því áður í orðum

mínum.
    Hv. 1. þm. Vesturl. minntist réttilega á það að fjárframlög til skólans hafa verið sómasamleg á undanförnum árum, sómasamleg segi ég, þó að skólinn hafi ekki getað gert allt sem hann vildi gera fyrir þá peninga sem ríkið ætlaði honum á fjárlögum.
    Að öðru leyti tel ég ekki ástæðu til að fjalla um einstakar ræður hv. þm. Ég þakka þeim á nýjan leik fyrir þann stuðning sem þeir hafa veitt þessu máli á þingi í dag.
    Það er svo önnur hlið á þessu máli sem ég hætti mér nú varla út í að ræða í þessu sambandi en hefur hvarflað mjög að mér í tengslum við samningu þessa frv. Það eru áhrif núgildandi kvótakerfis á öryggismál sjómanna. Ég verð að segja það sem afdráttarlausa skoðun mína að ég hef umtalsverðar áhyggjur af því að núverandi kvótakerfi, með því sóknarkappi sem fylgir sumum þáttum útgerðarinnar vegna kvótans, hafi dregið talsvert mikið úr öryggi sjómanna á tilteknum hluta fiskiskipaflotans.
Ég vil t.d. segja það að ég tel með nokkrum ólíkindum hvað mikil heill og hamingja hefur verið yfir trilluútgerð á Íslandi eftir að kvótakerfið tók gildi. Ég er sannfærður um að það kapp sem oft hefur verið meira en forsjáin í sókn þeirra báta hefur oft á tíðum stofnað til mikillar áhættu, en sem betur fer hefur þetta blessast sæmilega þó að slysin hafi orðið.
    Ég hef líka áhyggjur af áhrifum kvótakerfisins á vinnuna um borð í frystitogurunum. Ég tel t.d. að það gífurlega kapp sem lagt er á vinnslu afla um borð í frystitogurunum, þar sem 24 menn vinna störf 100 -- 150 manna í frystihúsi á landi, sé komið út fyrir öll skynsamleg mörk. Ég hef um það rökstuddan grun að vökulögin séu í verulegri hættu um borð í frystitogurum. Mér hefur t.d. borist til eyrna að frívaktir um borð í frystitogurum hafi verið skornar niður um helming, úr sex klukkustundum í þrjár. Það er mjög alvarlegt mál sem þar er á ferðinni, vegna þess að vinnulúnum og þreyttum mönnum er miklu hættara við slysum en öðrum. Ég hef lagt fram fyrirspurn hér í hv. Sþ. til hæstv. sjútvrh. vegna þessa máls. Ástæðan er einfaldlega sú að ég hygg að það jaðri við lögbrot sem á sér stað nú um borð í íslenskum frystitogurum sem veiða hér við land. En nóg um það. Ég ætla ekki að blanda því inn í þessa umræðu frekar.
    Ég endurtek þakkir mínar til allra þeirra sem tóku til máls í þessari umræðu og vænti þess að þetta mál megi nú fara til 2. umr. og hv. samgn.