Flm. (Guðmundur Ágústsson) :
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um húsnæðisstofnanir og húsbanka en frv. þetta er á þskj. 333 og er 232. mál þessa þings.
Þetta frv. sem ég legg hér fram er endurflutt frá síðasta þingi og raunar frá þinginu þar áður. Þá lagði ég ásamt Júlíusi Sólnes fram frv. mjög líkt þessu, en þetta hefur verið endurbætt og við greinargerð frv. bætt þeim breytingum sem eru í tengslum við þau lög sem nú hafa verið samþykkt um húsbréf. En ég tel rétt að gera betur grein fyrir þessu með því að lesa upphaf grg. Þar kemur það mjög skýrt fram hvernig þetta er hugsað:
,,Þetta frv. er nú endurflutt í þriðja sinn. Það var fyrst lagt fram á Alþingi veturinn 1987 -- 1988 af þingmönnum Borgfl. í efri deild, Júlíusi Sólnes og Guðmundi Ágústssyni. Frv. fékk þá enga afgreiðslu og var ekki sent út til umsagnar fyrr en þingi lauk þá um vorið. Haustið 1988 var frv. endurflutt án þess að fá þinglega meðferð. Í ljósi þess að enn á ný er hafin mikil umræða um húsnæðislánamál þjóðarinnar og vandamálin hafa aukist frekar en minnkað við tíðar breytingar, sem hafa verið gerðar á húsnæðislánakerfi landsmanna, virðist ekki vanþörf á að taka þetta frv. til rækilegrar meðferðar á hinu háa Alþingi nú.
Það er skoðun flm. að húsnæðismálin séu komin í algert óefni. Hinar sífelldu breytingar, sem hafa verið gerðar á lögum um Húsnæðisstofnun ríkisins á kjörtímabilinu, hafa ekki orðið til þess að bæta ástandið í húsnæðismálum þjóðarinnar. Einn megingalli kerfisins er sá að það er algerlega á vegum ríkisins þrátt fyrir að fjármagn til húsnæðislána komi að langmestu leyti frá lífeyrissjóðunum. Nær væri að láta þá sem leggja til fjármagnið, þ.e. lífeyrissjóðina, spreyta sig á því að tryggja sjóðfélögum sínum skynsamleg húsnæðislán. Það litla fjármagn, sem ríkissjóður leggur fram til húsnæðislána, réttlætir ekki að ríkisvaldið hafi allt frumkvæði við að móta húsnæðislánastefnu landsmanna.
Það hefur ætíð verið mikið áhættuspil að leggja út í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði á Íslandi, einkum hjá launafólki. Það hefur aldrei verið hægt að treysta því að nægilegt fjármagn til útlána sé tryggt fyrir hvert ár í senn og að vaxtakjör séu ekki sífellt að breytast. Því hafa myndast langar biðraðir í öllum þeim húsnæðislánakerfum sem reynd hafa verið og húsbyggjendur og íbúðarkaupendur hafa ekki getað reitt sig á húsnæðislánin í fjármálalegum forsendum sínum fyrir íbúðarkaupum eða húsbyggingum. Þetta hefur verið áberandi síðustu árin, einkum eftir að sú breyting varð að lánum úr Byggingarsjóði ríkisins og lífeyrissjóðunum var slegið saman og hið nýja húsbréfakerfi hefur lítið bætt þar úr. Á árinu 1986 kom til samkomulag um skuldabréfakaup lífeyrissjóðanna af Byggingarsjóði ríkisins sem jók fjárstreymi til hans svo um munaði. Samkvæmt því skyldu allir sjóðfélagar, sem hefðu 20 mánaða lífeyrissjóðsréttindi í þeim sjóðum sem samþykkt höfðu að kaupa skuldabréf af Byggingarsjóði ríkisins, fá lán hjá Húsnæðisstofnun. Aðrir, þ.e. þeir sem
ekki hefðu slík réttindi, voru ekki taldir skipta máli. Þannig var ætlað að loksins hefði fundist leið til að tryggja rekstur húsnæðislánakerfisins með ríflegu fé til útlána og koma til móts við íbúðarkaupendur með hærri lánum en áður höfðu þekkst.
Þetta gekk ágætlega í fyrstu, en fljótlega fór að bera á löngum biðröðum í 1986-kerfinu sem ágerðust þegar fór að líða á kjörtímabilið. Þannig voru um 9500 umsóknir óafgreiddar hjá Húsnæðisstofnun ríkisins í upphafi árs 1988 sem allar voru taldar réttmætar. Hins vegar var ekkert gert til þess að stytta þessar biðraðir. Þeir einir áttu rétt á fullu láni sem voru aðilar að lífeyrissjóðum sem höfðu fullnægt kaupskyldu sinni gagnvart Húsnæðisstofnun ríkisins. Hins vegar var ekki tekið tillit til þessa ákvæðis. Lán voru ekki skert til einstaklinga sem voru aðilar að lífeyrissjóðum sem ekki höfðu staðið við samninginn, þ.e. að kaupa skuldabréf fyrir allt að 55% af ráðstöfunarfé sjóðsins á ári hverju. Þá hefði verið auðvelt með einfaldri lagasetningu að láta allar óafgreiddar umsóknir falla úr gildi við hver áramót og krefjast nýrra umsókna. Þetta eitt hefði væntanlega losað stofnunina við flesta þá sem einungis sóttu um húsnæðislán til að tryggja rétt sinn án þess að hafa raunverulega þörf fyrir lán. Enn fremur var lítið aðhafst til að þrengja aðgang að kerfinu sem þó hefði verið auðvelt.
Á árinu 1989 fór að bera á mikilli fjárvöntun í 1986-kerfinu sem stafaði meðal annars af þeim mikla vaxtamun sem var á innlánum og útlánum byggingarsjóðanna. Framlag ríkisins til sjóðanna fór sífellt minnkandi og gat því hvergi nærri staðið undir þessum mikla vaxtamun, en haustið 1989 nam hann um 3% á almennum byggingarsjóðslánum. Í desember 1989 fékk félmrh. samþykkta vaxtahækkun á öllum nýjum útlánum úr 3,5% í 4,5%, þ.e. lánum sem afgreidd voru eftir 3. des. 1989. Borgfl. hafði lagt til að vextir á öllum skuldabréfalánum Byggingarsjóðs ríkisins frá 1984 yrðu hækkaðir í tæp 4% eins og heimild í skuldabréfunum var til sem hefði gefið meiri tekjur fyrir sjóðinn, en um það sýndist geta náðst samkomulag í húsnæðismálastjórn. Félmrh. vildi ekki fara þessa leið, og olli vaxtahækkunin á nýjum lánum eingöngu miklum deilum í húsnæðismálastjórn, einkum við fulltrúa launþega, og varð til þess að rýra gildi 1986-kerfisins enn frekar. Nú síðla árs 1990 er orðið ljóst að gamla kerfið frá 1986 hefur runnið sitt skeið á enda án þess að það hafi verið fullreynt. Vegna vaxtamunarins og ónógra framlaga úr ríkissjóði stefnir það í gjaldþrot.
Þeirri skoðun hefur oft verið hreyft að bankakerfið eigi að taka að sér húsnæðislánin.`` M.a. hafa fulltrúar Sjálfstfl. hér á þingi mælt með þeirri leið. ,,Bankarnir geti algerlega séð um öll húsnæðislán og þurfi ríkið ekki að skipta sér frekar af þeim. Flm. telur að slíkt kerfi muni aldrei geta gengið í þessu fámenna þjóðfélagi. Bankarnir eiga fullt í fangi með að sinna lánum til atvinnurekstrar, veita lán til skamms tíma til að fjármagna kaup á alls kyns neysluvörum, bílum, heimilistækjum og Spánarferðum, svo eitthvað sé nefnt. Þeir veita einnig skammtímalán vegna húsbygginga og íbúðarkaupa og munu þurfa að halda því áfram hvaða húsnæðislánakerfi svo sem fundið yrði upp. Það að veita langtímaveðlán, allt að 40 ára lán, vegna fasteigna samræmist illa þeim bankarekstri sem landsmenn þekkja til. Þá hefur þessari spurningu heldur ekki verið svarað: Hvar eiga bankarnir að finna eða skapa það fjármagn sem óseðjandi húsnæðislánakerfið þarfnast? Má benda á það að bankarnir mundu aðallega geta sinnt þeim sem hafa góða afkomu og ættu auðveldara með að greiða hina háu markaðsvexti af húsnæðislánum bankanna. Eftir sem áður verður nauðsynlegt að ríkisvaldið sinni málefnum þeirra sem minna mega sín í þjóðfélaginu. Þannig verða félagslegar íbúðir áfram að vera undir verndarvæng ríkisins og eins verður að sinna ungu fólki sem er að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð og hefur hreinlega ekki bolmagn til þess að standa undir miklum lánum með markaðsvöxtum.
Flm. leggur því til að tekið verði upp tvöfalt húsnæðislánakerfi. Í fyrsta lagi sjái ríkið aðeins um lánveitingar til bygginga með félagsleg markmið og til þeirra sem eru að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð. Í þessu skyni verði Byggingarsjóður ríkisins og Byggingarsjóður verkamanna sameinaðir. Hafa þingmenn Borgfl. þegar lagt fram á Alþingi ítarlegar brtt. við lög um Húsnæðisstofnun ríkisins og þar fjallað um hlutverk hins sameinaða byggingarsjóðs ríkisins eins og hér segir:
,,Úr Byggingarsjóði ríkisins er heimilt að veita lán til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði, til meiri háttar viðbygginga, endurbóta og endurnýjunar á notuðu húsnæði, til útrýmingar á heilsuspillandi húsnæði og til orkusparandi breytinga á húsnæði```` eins og þar er kveðið nánar á um. En þar er einmitt verið að tala um lágtekjufólk, íbúðir fyrir þá sem eru að byggja eða kaupa sína fyrstu íbúð, verndaðar íbúðir fyrir öryrkja, verndaðar íbúðir fyrir aldraða og leiguíbúðir á vegum sveitarfélaga og félagasamtaka.
,,,,Úr Byggingarsjóði ríkisins er enn fremur heimilt að veita lán til byggingar eða kaupa á húsnæði fyrir félagslegar stofnanir á vegum opinberra aðila og félagasamtaka, svo sem dagvistarstofnanir fyrir börn og aldraða, hjúkrunarheimili og dvalarheimili.``
Þetta leiðir af sér að hlutverk Húsnæðisstofnunar ríkisins verður aðallega að annast lánveitingar, hugsanlega með niðurgreiddum vöxtum eða sérstökum skattaívilnunum til 1) íbúða fyrir lágtekjufólk (verkamannabústaða), 2) þeirra sem eru að kaupa eða byggja sína fyrstu íbúð, 3) byggingar leiguíbúða í samvinnu við sveitarfélög, félagasamtök og hagsmunasamtök launþega, 4) byggingar verndaðra íbúða fyrir aldraða og öryrkja, 5) að takast á við sérstök verkefni, félagsleg, tæknileg og fjárhagslegs eðlis.
Samkvæmt þeim upplýsingum, sem flm. hefur fengið, munu þeir sem þannig ættu rétt á húsnæðislánum hjá Húsnæðisstofnun ríkisins vera tæplega 40% af þeim sem sækjast eftir lánum til byggingar eða kaupa á íbúðarhúsnæði hverju sinni. Ljóst er að mun auðveldara verður fyrir Húsnæðisstofnun að sinna þörfum þessa takmarkaða hóps. Starfsemi hennar, og
fjárþörf umfram það sem endurgreiðslur lána tryggja, verður eftir sem áður fjármögnuð með ríkisframlögum og skuldabréfaútgáfu. Ljóst er að aðeins er hægt að veita hagstæð lán til ofangreindra forgangshópa.
Í öðru lagi þarf að sinna þeim sem ekki koma til með að eiga aðgang að Húsnæðisstofnun ríkisins. Það er sá hópur sem þegar á íbúð og hefur væntanlega fengið lán á hagstæðum kjörum hjá Húsnæðisstofnun áður. Þetta munu vera rúmlega 60% þeirra sem eru á almennum fasteignamarkaði. Hér er um að ræða íbúðareigendur sem ætla að stækka við sig eða minnka við sig, breyta eða lagfæra íbúðir sínar, þurfa að flytja á milli staða og selja og kaupa íbúð þess vegna, svo að dæmi séu tekin. Til greina gæti þó komið að aðeins hluti þeirra sem eru að kaupa eða byggja sína fyrstu íbúð fái lán gegnum hinn sameinaða byggingarsjóð, þ.e. hinir tekjulágu. Hinir mundu þá eiga aðgang að hagstæðum húsnæðislánum gegnum húsbanka lífeyrissjóðanna sem yrði gert skylt að vera með sérstakar lánaraðir í þessum tilgangi.
Til þess að tryggja aðgang allra landsmanna að hagstæðum langtímaveðlánum vegna fjárfestingar í fasteignum telur flm. að nauðsynlegt sé að koma upp sérstökum húsnæðislánastofnunum, húsbönkum, sem hafi það hlutverk eingöngu að veita slík lán. Slíkir húsbankar verða að lúta lögmálum þess fjármagns- og viðskiptakerfis sem landsmenn búa við, en með heppilegri löggjöf má ætla að þeir geti haft jákvæð áhrif á þróun fjármála í landinu, einkum lánskjör og stefnumótun í verðtryggingar- og vaxtamálum. Flm. gerir ráð fyrir að bankarnir, tryggingafélög, hagsmunasamtök launþega og lífeyrissjóðirnir muni koma upp slíkum sjálfstæðum húsnæðislánastofnunum eða húsbönkum. Er talið eðlilegast að lífeyrissjóðirnir og launþegasamtökin hafi frumkvæði að því. Mikilsvert er að vel til takist. Almenningur verður að geta borið fullt traust til slíkra lánastofnana ef á að vísa honum að hluta til frá húsnæðislánakerfi ríkisins yfir til sjálfstæðra stofnana.
Það lagafrv. sem hér er lagt fram og skilgreinir starfsemi slíkra húsbanka, er byggt á erlendum fyrirmyndum. Slíkir húsbankar eru víða starfandi í nágrannalöndum okkar og hafa gefið góða raun. Húsnæðislánakerfi nágrannaþjóðanna virðist yfirleitt vera í góðum farvegi og hinar örvæntingarfullu ráðstafanir, sem sífellt er verið að gera á Íslandi til þess að bjarga gjörónýtu húsnæðislánakerfi okkar, eru óþekktar með öllu. Stjórnmálamenn nágrannalandanna þurfa ekki að hafa mikil afskipti af húsnæðislánamálum, um þau hefur ríkt friður og ró um áratuga, jafnvel alda skeið. Þannig hefur danska húsnæðislánakerfið lítið breyst frá því að fyrstu húsnæðislánastofnanirnar komu til sögunnar um miðja síðustu öld. Það vekur nokkra furðu að Íslendingar skuli ekki hafa borið gæfu til að nýta sér danska húsnæðislánakerfið meðan þeir voru í ríkjasambandi við Danmörku.``
Þá kem ég að húsbönkum og húsbréfum.
,,Það form sjálfstæðra húsnæðislánastofnana, sem þetta lagafrv. gerir ráð fyrir, er byggt á ævagömlum hugmyndum frá stjórnartíð Friðriks mikla Prússakonungs sem vildi auðvelda borgarastéttinni að eignast eigið húsnæði og reisa úr rústum atvinnulíf landsmanna eftir stríðið við pilsin þrjú. Fyrstu húsnæðislánastofnanirnar komu til sögunnar í Þýskalandi um miðbik átjándu aldar. Danir tóku þessar hugmyndir til sín og gerðu tilraun til að stofna húsnæðislánastofnun í Danmörku seint á átjándu öld. Það var þó ekki fyrr en um miðbik síðustu aldar að húsnæðislánastofnanir, þar sem lántakendur mynda með sér félagsskap til að fara með og ábyrgjast húsnæðislán þeirra, komu til sögunnar. Dönsku húsnæðisstofnanirnar hafa þróast og breyst gegnum árin, en grundvallarhugmyndin er hin sama, þ.e. lántakendur ábyrgjast sameiginlega öll útlán stofnunarinnar og eru jafnframt félagar í henni. Í seinni tíð hefur þó verið heimilt að húsbankar séu reknir í formi hlutafélags án þessarar samábyrgðar. Er gert ráð fyrir báðum þessum möguleikum í frv.
Húsbankarnir fjármagna útlán sín með útgáfu sérstakra húsbréfa (danska: obligationer), sem þeir hafa einkarétt til að gefa út og selja á frjálsum peningamörkuðum. Í rauninni er um að ræða venjuleg skuldabréf eða spariskírteini sem húsbankinn býður til sölu í samkeppni á fjármagnsmarkaðnum. Ef húsbréfin eru fullkomlega traust og áreiðanleg í líkingu við verðtryggð spariskírteini ríkisins ættu ekki að vera vandkvæði á því að selja þau á hagstæðu verði fyrir stofnunina þannig að nægt fjármagn verði til útlána hverju sinni. Þar sem útlán húsbankans byggja algerlega á sölu húsbréfanna verður að vera jöfnuður milli útgáfu og sölu húsbréfa og útlána. Fyrir hvert nýtt útlán þarf að gefa út og selja húsbréf. Oftast er þetta gert á þann veg að röð húsbréfa er sett á markað með reglulegu millibili og lánsumsóknir afgreiddar í takt við útgáfu bréfanna. Þó er jafnalgengt hjá dönsku húsbönkunum að húsbréfin séu seld frá degi til dags og lánsumsóknir afgreiddar á sama hátt. Biðraðir eftir húsnæðislánum eru óþekkt fyrirbrigði í Danmörku. Lánsumsókn er venjulega afgreidd og lánið veitt innan viku frá því að hún barst.
Dönsku húsbréfin njóta mikils trausts meðal almennings. Algengt var að gefa börnum húsbréf í skírnar- og fermingargjafir. Nú eru það þó fyrst og fremst bankar og tryggingafélög, svo og stærri fyrirtæki og veðbréfamiðlanir sem geyma lausafé sitt í húsbréfum eftir að pappírslaus viðskipti urðu ofan á. Húsbréfin eru auglýst til sölu í öllum bönkum og peningastofnunum. Gengi þeirra, þ.e. söluverð og raunvextir, er skráð á viðskiptasíðum dagblaðanna á hverjum degi. Ef óheppileg þróun söluverðs húsbréfa er fyrirsjáanleg kemur danski seðlabankinn yfirleitt til aðstoðar og kaupir húsbréf í nægilegu magni. Í seinni tíð hefur bankakerfið í Evrópu í æ ríkara mæli farið inn á bein tölvuviðskipti. Þetta hefur gert nauðsynlegt að skilgreina og heimila svokölluð rafeindabréf. Rafeindahúsbréf eru aðeins til í tölvukerfi stórbankanna, tryggingafélaga og verðbréfasala svo dæmi séu nefnd. Þau ganga kaupum og sölum á venjulegan hátt en eru aldrei skráð á pappír. Þannig er hægt að selja eða kaupa mikið magn af húsbréfum á svipstundu.
Svíar hafa farið aðeins öðruvísi að. Þeir hafa ekki lagt eins mikla áherslu á jafnvægislögmálið, þ.e. að ávallt sé sama magn húsbréfa í umferð og útistandandi lán gefa tilefni til. Þeir hafa farið þá leið að gefa út raðir húsbréfa í mjög miklu magni sem boðnar eru til sölu um allan heim, þ.e. sænsku húsbréfin eru skráð til sölu hjá öllum helstu kauphöllum heims. Sænsku húsbréfin hafa yfirleitt fremur stuttan gildistíma, oftast um fimm ár, og henta því sérlega vel sem markaðsverðbréf. Húsnæðislánin, sem sænsku húsnæðislánastofnanirnar veita, eru hins vegar til miklu lengri tíma, og þarf því stöðugt að gefa út nýjar raðir húsbréfa til að hafa tiltækt fjármagn til útlána. Aðalatriðið er þó að húsnæðislán eru fyrst veitt þegar búið er að selja húsbréfin, og hefur hvorki lántakandinn né seljandi íbúðar neitt með sjálf húsbréfin að gera. Þau eru aðeins málefni húsnæðislánastofnunarinnar. Sænsku húsnæðislánastofnanirnar veita öllum sem hafa vilja húsnæðislán, svo fremi að veðhæf fasteign sé til staðar. Þannig geta hús- og íbúðareigendur fengið 40 ára veðlán til að kaupa hlutabréf í atvinnufyrirtækjum og til ýmissa annarra þarfa.
Aðalatriði þess húsnæðislánakerfis [þ.e. þess sænska], sem byggir á fjármögnun með útgáfu húsbréfa eins og það þekkist t.d. annars staðar á Norðurlöndunum, eru eftirfarandi. Lánsumsækjandi sendir inn umsókn um húsnæðislán til margra ára. Hann skrifar undir veðskuldabréf fyrir öllu láninu handa húsnæðislánastofnuninni. Þessi veðskuldabréf ásamt varasjóði stofnunarinnar er sú trygging sem liggur að baki húsbréfunum. Þess vegna er nauðsynlegt að veðskuldabréfin séu gefin út af stofnuninni og á ábyrgð hennar. Það er ekki hægt að treysta óviðkomandi aðilum fyrir því að gefa út slík veðskuldabréf og ætla stofnuninni að vera einhver skiptimiðstöð fyrir veðskuldabréf og húsbréf. Húsbréfin eru þannig hin eiginlegu verðmæti sem lántakandinn fær að láni, og þurfti hann áður að selja húsbréfin sjálfur, sem stofnunin afhenti honum við móttöku veðskuldabréfsins, til að fá peninga. Í seinni tíð hefur þróunin verið sú að stofnunin sér sjálf um sölu húsbréfanna fyrir lántakanda sem verður því ekkert var við húsbréfin. Hann fær beinharða peninga að láni. Eftir sem áður er stofnunin óháð utanaðkomandi fjármagni sem lagt er til hennar á beinan hátt.
Til að koma upp íslenskum húsbönkum er talið ráðlegt að nota hlutafélagaformið þótt það sé ekki einhlítt. Þá virðist sem sænska húsbréfakerfið henti aðstæðum á Íslandi að mörgu leyti betur en danska fyrirkomulagið. Þessi mál þarf þó að sjálfsögðu að kanna rækilega. Umfram allt verður að forðast við leit að heppilegum leiðum til úrbóta í húsnæðismálum þjóðarinnar að miklum kröftum sé eytt í að finna upp hjólið.``
Þegar ég er búinn að lýsa hér á hvaða hugmyndum það frv., sem hér er lagt til, er reist, þá vil ég lýsa því hvernig húsbréfakerfið frá 1989 virkar í samanburði og hver þróunin á því hefur orðið.
,,Sumarið 1988 skipaði félmrh. milliþinganefnd allra þingflokka á Alþingi til að huga að nýjum lausnum í
húsnæðislánamálum. Áður hafði sérstakur starfshópur á vegum félmrh. undirbúið tillögur um breytt lánakerfi, þar sem m.a. hugmyndir Borgfl. um fjármögnun húsnæðislána með útgáfu og sölu húsbréfa höfðu verið hafðar að fyrirmynd. Það er reyndar athyglisvert að í allri umræðunni um svokallað húsbréfakerfi hefur verið farið með það sem mannsmorð að það voru þingmenn Borgfl. sem fyrstir kynntu hugmyndir um húsnæðislán á grundvelli húsbréfa.
Milliþinganefndin skilaði áliti sínu haustið 1988, en nefndin margklofnaði í afstöðu sinni. Fulltrúar Alþýðusambandsins og þingflokks Framsfl. skiluðu séráliti þar sem þeir lögðu til ýmsar lagfæringar og endurbætur á 1986-kerfinu. Meiri hluti nefndarinnar lagði hins vegar til að tekið skyldi upp húsbréfakerfi sem byggði á innri fjármögnun vegna mikillar eignamyndunar í íbúðarhúsnæði og vaxtabótum í gegnum staðgreiðslukerfi skatta. Júlíus Sólnes, sem var fulltrúi Borgfl. í nefndinni, gerði mjög ákveðinn fyrirvara við nefndarálit meiri hlutans, þar sem talið var að nær allar megingrundvallarreglur um fjármögnun húsnæðislána með útgáfu og sölu húsbréfa, eins og þær þekkjast í öllum nálægum löndum, væru þverbrotnar. Er fyrirvarinn svohljóðandi:
,,Nefndin hefur farið ítarlega yfir ýmsar hugmyndir og tillögur til úrbóta á núgildandi húsnæðislánakerfi. Ekki hefur þó verið ráðist að höfuðmeinsemdinni í kerfinu, sem er fólgin í því, að ríkið er með allt á sinni könnu, bæði þá, sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda, og hina, sem geta staðið á eigin fótum. Þetta gerir núgildandi húsnæðiskerfi allt of þunglamalegt og fjárfrekt. Eðlilegra væri, að ríkið sjái aðeins um þá, sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda, en sérstakar húsnæðislánastofnanir, t.d. á vegum lífeyrissjóðanna og bankakerfisins, sjái um alla aðra. Með því myndi skuldabréfakaupskylda lífeyrissjóðanna við byggingarsjóði ríkisins sjálfkrafa falla burt, enda hefur hún ekki reynst vel.
Á síðasta þingi [og þá er ég enn þá að vísa til nefndarálits Júlíusar Sólnes frá árinu 1988] fluttu þingmenn Borgfl. frv. til laga um sérstakar húsnæðislánastofnanir, sem fjármögnuðu útlán sín með markaðshæfum húsbréfum. Nefndin hefur að hluta til notfært sér þessa hugmynd í því formi að koma upp húsbréfadeild við Húsnæðisstofnun ríkisins. Sú útfærsla, að Húsnæðisstofnun skipti á fasteignaveðbréfum, sem verða til við kaup og sölu fasteigna hjá einkaaðilum, og húsbréfum, er þó frekar vafasöm. Eðlilegra er, að Húsnæðisstofnun gefi sjálf út þau fasteignaveðbréf, sem liggja að baki húsbréfanna.
Vaxtabætur eru í sama anda og aðrar bætur, sem eru greiddar í staðgreiðslukerfi skatta. Flóknar reglur eru settar um fjölskyldustærð og afkomu umsækjenda. Mun betra er að heimila beinan vaxtafrádrátt á skattframtali. Þá er og eðlilegra að viðhalda beinum vaxtaniðurgreiðslum á húsnæðislánum til þeirra, sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda.``
Fulltrúar bæði Kvennalista og Alþb. gerðu einnig fyrirvara við meirihlutaálitið.
,,Hinu íslenska húsbréfakerfi má einna helst lýsa
með eftirfarandi hætti. Fasteignasali útbýr veðskuldabréf í stöðluðu formi sem kaupandi skrifar undir. Seljandi íbúðarinnar hleypur svo með veðskuldabréfið upp í Húsnæðisstofnun þar sem hann skiptir á því og bunka af húsbréfum sem stofnunin hefur látið prenta og gefa út. Áður hefur þó farið fram athugun stofnunarinnar á því að kaupandi íbúðarinnar sé borgunarmaður, þ.e. geti staðið við skuldbindingar samkvæmt veðskuldabréfinu. Hugmyndin er nú sú að seljandinn, ef hann ætlar ekki að kaupa aðra íbúð, geri sig ánægðan með að stinga húsbréfabunkanum ofan í skúffu og geyma hann þar næstu 25 árin og fá inn afborganir og vexti af bréfunum. Með þessum hætti er talið að hægt sé að nýta svokallaða innri fjármögnun í húsnæðiskerfinu, þ.e. nýta hina miklu skuldlausu eða skuldlitlu húsnæðiseign Íslendinga. Gallinn er hins vegar sá að seljandinn flýtir sér yfirleitt að reyna að selja húsbréfin með öllum tiltækum ráðum, og því hefur skapast mikil ringulreið á húsbréfamarkaðnum.
Hið íslenska húsbréfakerfi er því að mörgu leyti meingallað. Markmiðið með innri fjármögnun gengur illa upp. Seljendur verða nú að sætta sig við veruleg afföll á húsbréfum og freistast því til að hækka söluverð húseigna sinna. Þá er slæmt að ríkisvaldið sé að vasast á verðbréfamarkaðnum með ríkistryggð verðbréf við hliðina á spariskírteinum ríkissjóðs. Þá má benda á furðuleg atriði eins og það að sami aðilinn og gefur út húsbréfin hefur einnig nokkra kaupskyldu, þ.e. Byggingarsjóði ríkisins hefur verið gert skylt að kaupa húsbréf í einhverjum mæli. Hann væri þá nánast að kaupa pappíra af sjálfum sér. Miklu nær væri að láta lífeyrissjóðina um að gefa út húsbréfin sem þá yrðu án ríkisábyrgðar en nytu hugsanlega skattfrelsis eins og ríkistryggð skuldabréf. Lífeyrissjóðirnir hafa yfir það miklu fjármagni að ráða að þeir geta auðveldlega baktryggt húsbréfin jafn vel og ríkissjóður.
Grundvallarmismunur á hinu íslenska húsbréfakerfi og þeim sem eru við lýði víðast hvar annars staðar er hins vegar sá að í íslenska kerfinu er ekki höfðað til sparnaðarins í þjóðfélaginu, en það getur leitt til óvæntrar vaxtahækkunar vegna of mikils framboðs eins og þegar hefur komið í ljós. Í húsbréfakerfum erlendis er ætíð byggt á því grundvallaratriði að fyrst eru gefin út og seld húsbréf og síðan eru veitt húsnæðislán þegar peningarnir hafa á þann hátt verið útvegaðir. Þannig er höfðað til sparnaðarins í þjóðfélaginu þegar á að fjármagna húsnæðislán til langs tíma.``
Ég ætla að hlífa þingmönnum við að fara yfir lánskjörin nema koma rétt lítillega inn á það, en það er gert ráð fyrir því í frv. með hvaða hætti lánskjörin verði á þessum húsbréfum, sem gert er ráð fyrir í frv. að verði gefin út, með hvaða tryggingu þau verði og við hvað verði miðað. Það er sýnt með töflu á bls. 13 í grg. frv. hvernig þróunin hefur verið, hinna ýmsu gjaldmiðla og svo í samanburði við lánskjaravísitölu, byggingarvísitölu og launavísitölu og hvernig þær vísitölur íslenskar hafa komið mjög óhagstætt út fyrir íslenska aðila, þá sem skulda vegna húsnæðiskaupa.
Ég hef farið hér að miklu leyti yfir efni frv. og þá grg. sem því fylgir og vil leyfa mér að vísa til þess
sem í frv. segir, hverjar hugmyndirnar eru á bak við og að hvaða leyti það frv. sem hér er lagt fram er frábrugðið því sem er í gildi og lagt var fram af hæstv. félmrh. fyrir tæpum tveimur árum síðan og hver sá grundvallarmunur er á þessu og því kerfi. Hann er einkum sá að í því kerfi sem nú er við lýði er það ríkið sem ber hitann og þungann af öllu kerfinu og gefur út húsbréfin með ríkisábyrgð, en í því kerfi sem hér er lagt til eru það fjármögnunaraðilarnir sjálfir, sem eru lífeyrissjóðirnir, sem taka áhættuna og það er þeirra að sjá sínum sjóðfélögum fyrirlán um til þess að kaupa sér íbúðarhúsnæði.
Að lokinni þeirri umræðu sem vonandi verður um þetta frv. legg ég til að málinu verði vísað til 2. umr. og félmn.