Kristín Einarsdóttir :
Við 2. umr. þessa máls gerði ég grein fyrir skoðunum mínum á því. Ég vil taka það fram að að sjálfsögðu styð ég megininntak þess frv. sem hér er til umræðu, þ.e. að sá tími sem fangi er hafður í einangrun teljist ekki til refsitímans. Það er auðvitað meginmálið í þessu og að sjálfsögðu styð ég það. En ég er mjög ósátt við það að ákvörðun um einangrun sæti kæru beint til dómsmrn. en ekki til Fangelsismálastofnunar. Það er alveg ótvírætt að Fangelsismálastofnun hefur ákveðnu hlutverki að gegna innan fangelsanna og starfsmenn hennar kynnast aðstæðum fanga með starfi sínu þar, kynnast föngunum sjálfum. Þeir eru því miklu betur í stakk búnir til að meta hvort ákvörðun um einangrun er réttlætanleg og hvort hún muni hugsanlega bera einhvern árangur, því það hlýtur að vera tilgangurinn með einangrun að það sé von þeirra sem það úrskurða að hún muni verða til einhverra bóta. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það að ekki skuli vera fallist á þá brtt. að það verði fyrst kært til Fangelsismálastofnunar og hún látin meta aðstæður.
Mig langar til að spyrja hæstv. dómsmrh. hvað hann telji því til fyrirstöðu að Fangelsismálastofnun verði þarna úrskurðaraðili. Hvort hann telji að starfsmenn ráðuneytisins séu í stakk búnir til að meta hvort ákvörðun fangelsisstjóra að dæma mann til einangrunar hafi verið rétt og hvort hann telji að starfsmenn ráðuneytisins séu betur til þess fallnir en starfsmenn Fangelsismálastofnunar og hvort eitthvað komi í veg fyrir að Fangelsismálastofnun geti gert þetta með þeim hætti sem hæstv. dómsmrh. gæti fellt sig við. Það hlýtur að vera mikilvægt fyrir fanga að litið sé á mál þeirra frá öllum hliðum þannig að aðstæður þeirra séu líka metnar ekki síður en það hvort brot þeirra sé nægilega mikið til þess að það sé réttlætanlegt að þeir séu settir í einangrun. Það er mjög erfitt fyrir fanga að þurfa að sæta einangrun og þess vegna þarf að yfirvega þetta mjög vel.
Ég tel, þó að í 2. gr. laga um fangelsi og fangavist sé tekið fram að Fangelsismálastofnun annist daglega yfirstjórn á rekstri fangelsa, þá sé hið félagslega hlutverk hennar mjög mikilvægt og raunar mikilvægara en hið stjórnunarlega. Þess vegna finnst mér mikilvægt að hún sé ekki sniðgengin. Mér finnst mjög freklega gengið fram hjá Fangelsismálastofnun og ég verð að taka mjög mikið mark á áliti hennar varðandi þetta frv. Og ekki síður að taka mark á því sem kemur fram í athugasemdum við frv. til laga um fangelsi og fangavist sem flutt var á 110. löggjafarþingi þegar núgildandi lög voru til umfjöllunar. Þar kemur greinilega fram að eitt meginhlutverk Fangelsismálastofnunar á að vera hið félagslega og þess vegna finnst mér þetta mjög miður. Þess vegna vonast ég enn til þess að hv. þm. átti sig á hvað hérna er á ferðinni og fari ekki að flokka álit sitt niður í það hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu, þetta er ekki þannig mál. Við verðum að líta á þetta fyrst og fremst út frá hagsmunum fanganna og gera það sem
þeim kemur best.