Alexander Stefánsson :
Herra forseti. Við 1. umr. fjárlaga á sl. hausti gerði ég sterka athugasemd við fjárlagafrv. að því er varðar Framkvæmdasjóð aldraðra þar sem gert var ráð fyrir því að skerða hann um verulega fjárhæð eða 1 / 3 . Eins og hér hefur komið fram fær Framkvæmdasjóður 370 millj. skv. álögðum sérskatti sem er sérmerktur og borgararnir greiða til ríkissjóðs og átti að gefa á þessu ári 370 millj. Í fjárlögunum stóðu aðeins 240 millj. Ég rökstuddi hvers vegna ég tæki þessa afstöðu, að það gæti ekki gengið lengur að Alþingi og ríkisstjórn skertu þetta framlag sem er sérstakur skattur þannig að það rynnu ekki nema 2 / 3 af honum til þess verkefnis sem honum er ætlað lögum samkvæmt. Jafnframt lýsti ég því yfir að ég mundi ekki fallast á afgreiðslu fjárlagafrv. í þessu formi. Í fjvn. beitti ég mér fyrir því að ríkisstjórnin yrði að átta sig á því að hér væri um það stórt ágreiningsefni að ræða að það yrði að leysa það áður en fjárlög yrðu afgreidd.
Ég fagna því að hæstv. heilbrrh. lagði fram frv. til laga um breytingu á lögum um málefni aldraðra eins og hér liggur fyrir. Þar kemur fram að það er reiknað með því að framvegis gangi þetta framlag sem ríkið innheimtir að öllu leyti til sjóðsins, en jafnframt verði sjóðnum falið annað hlutverk, þ.e. eins og kemur fram í 1. gr. frv. Út af fyrir sig tel ég þetta í raun og veru eðlilegt. Þetta er að vísu viss útdeiling á því fjármagni til annarra hluta en menn hafa hingað til lagt aðaláhersluna á. Ég hef ekki við það sérstakar athugasemdir þó að vanda þurfi vel til þeirra reglna sem settar verða til þess að skipta þessu fjármagni sem getur orðið nokkur fjárhæð eftir því sem fjárhæðin verður afgreidd miðað við lögin.
Ég vil þó aðeins leggja áherslu á að það er mín skoðun að það eigi ekki til frambúðar að leysa hjúkrunarvanda aldraðra með því að breyta dvalarheimilum fyrir aldraða að hluta til vegna þessa verkefnis. Ég tel að það fari ekki saman nema í örfáum tilfellum að hafa fast rúmliggjandi gamalt fólk, sem er orðið sjúklingar, innan um fólk sem er á faralds fæti og getur bjargað sér að verulegu leyti sjálft innan þessara stofnana. Það veldur erfiðleikum í sambandi við rekstur þeirra dvalarheimila sem ekki eru byggð með þetta sérstaklega fyrir augum og eru mörg dæmi um það, þó að ég viðurkenni að það að taka þátt í rekstri þeirra dvalarheimila á þennan hátt, sem gert hefur verið nú undanfarið og verður sjálfsagt eitthvað enn, leysir viss vandamál fyrir viðkomandi rekstraraðila. En ég legg áherslu á það að það hlýtur að vera áfram mjög stórt verkefni í málefnum aldraðs fólks að byggja upp sérhönnuð hjúkrunarheimili og ekki hvað síst er þetta áríðandi mál í heilsugæsluumdæmum þar sem ekki er um sjúkrahús að ræða. Ég nefni bara hér örfá dæmi þar sem mörg ár eru liðin frá því að fullkomnar heilsugæslustöðvar voru byggðar en enn vantar hjúkrunarheimili sem gert var ráð fyrir við þessar heilsugæslustöðvar. Í öllum þessum tilfellum er aldrað fólk sem þarf á því að halda að dvelja eða leggjast inn á slík heimili. Ég get nefnt dæmi um staði sem bíða eftir þessu og hafa beðið lengi eins og Höfn í Hornafirði, þar sem er ekkert sjúkrahús, Ólafsvík, Hvammstanga og fleiri staði sem þarf að sinna að þessu leyti til. Þess vegna legg ég áherslu á það að alla vega hafi þessi sérbúnu hjúkrunarheimili, sem nauðsyn krefur að verði byggð á hinum ýmsu stöðum, vissan forgang í þessari uppbyggingu. Ég vona að það komi aldrei til að Alþingi eða ríkisstjórn láti sér detta í hug frekari skerðingu á þessum sjóði en orðið hefur á undanförnum árum og hann verði það öflugur að hann geti styrkt þessar byggingar það mikið að það verði hægt að flýta þeim eins og mögulegt er því að þarna er mjög mikið og alvarlegt vandamál á ferð í sambandi við aðstöðu fyrir aldraða sjúklinga. Ég treysti því að það verði gert.
Að öðru leyti vil ég fagna þessu frv. Það tókst við afgreiðslu fjárlaga nú, eins og ég sagði áður, að rétta sjóðinn við þannig að hann fær framlagið eins og lög gera ráð fyrir og verður tekinn út af lánsfjárlögum sem nú eru til meðferðar hér á Alþingi.