Sérþjálfaðar leynisveitir hérlendis
Fimmtudaginn 17. janúar 1991


     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Til að fyrirbyggja að hv. 2. þm. Austurl. Hjörleifur Guttormsson telji að hér sé um eitthvert gamanmál að ræða af minni hendi vil ég vekja athygli hans á þeirri staðreynd að forustumenn Framsfl. hafa farið með þau embætti sem hann hefur hér talað um að séu sennilegust til að hafa haft vitneskju um þessi mál og verið aðilar að þessum málum og ég tek svona aðdróttunum ekki þegjandi. Ég vísa þeim heim til föðurhúsanna og mælist til þess að hann hafi einhvern fót fyrir því sem hann er að bera hér á borð fyrir þingheim, að forustumenn Framsfl. á undanförnum árum eftir stríð hafi staðið að slíkum samtökum.