Fyrirspyrjandi (Guðrún Helgadóttir) :
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. dómsmrh. fyrir svör hans, en ég tek undir með hv. 6. þm. Reykv. að það má ekki bíða mikið lengur að löggjöf verði sett um þessi mál. Það er auðvitað fagnaðarefni að sú tækni skuli nú fáanleg að barnleysi fólks sé leyst með tæknifrjóvgun en jafnframt þarf vitanlega að koma í veg fyrir að það mál snúist upp í andhverfu sína við einhver þau tilvik sem þeim gætu valdið.
Það er ljóst að samkvæmt íslenskum lögum geta eiginmaður móður, barnið, móðir þess, lögráðamaður barnsins og erfingjar eiginmanns höfðað svokallað vefengingarmál og eins og sakir standa trúlega unnið það. Þar með er faðerni barnsins og réttarstaða öll gjörsamlega í lausu lofti og móðurinnar raunar einnig. Hið sama mundi að sjálfsögðu gilda ef móðirin færi í vefengingarmál
sem ekki er annað að sjá en hún hlyti að geta unnið auðveldlega.
Þegar litið er til þess að fyrstu börnin sem getin voru á þennan hátt hér í landi eru nú að nálgast fermingaraldur er ljóst að þetta mál má ekki bíða. Það er varasamt. Ef einhver vandamál kynnu að skapast í þessum fjölskyldum er auðvitað hægt að vinna þessu fólki ómældan skaða með því að hafa þessi mál í lausu lofti.
Hv. 6. þm. Reykv. gat þess að einnig þyrfti að setja lög um aðra þætti málsins. Upphafleg tillaga mín fjallaði einungis um réttarstöðu aðstandenda og barna og ég tók það skýrt fram í framsögu minni að ég ætlaði ekki á því stigi málsins að fara út í hina siðferðilegu hlið málsins og allar þær aðrar hliðar sem auðvitað eru á málum sem þessum og skiptir þar auðvitað máli hvort sæðisgefandi er t.d. eiginmaður konu eða ókunnur aðili, sem til er líka.
Vitanlega er það hárrétt hjá hv. 6. þm. Reykv. og flm. hinnar síðari till. að löngu er tímabært að fram komi frv. til laga um þessi mál einnig. Við fjöllum nú á þessu þingi um vægast sagt mikilvæg mál eins og líf og dauða, en eins og kunnugt er liggur nú fyrir þinginu frv. um ákvörðun dauðastundar. Það virðist ætla að verða hlutskipti þessa þings að fjalla um mannlífið allt frá fæðingu til dauða og ekki hægt að víkja sér undan þeirri ábyrgð.
Ég vil þess vegna ítreka beiðni mína til hæstv. dómsmrh. að nefndin vinni nú af meiri alvöru og með meiri hraða þannig að komið verði í veg fyrir að upp kunni að koma mál sem valdið gætu íslenskum fjölskyldum ómældum skaða og ekki síst börnunum sem þar eiga hlut að máli.