Kortlagning gróðurlendis Íslands
Fimmtudaginn 17. janúar 1991


     Kristín Einarsdóttir :
    Virðulegur forseti. Ég kem hér fyrst og fremst til að taka undir efni þessarar till. Ég tel að það sé mjög mikilvægt að gera það sem í þessari till. stendur, þ.e. að hlutast til um að gróðurlendi Íslands verði kortlagt. Ég þarf kannski ekki að hafa svo mörg orð um það hversu mikilvægt það er. Í ágætri framsögu hv. 1. flm. komu fram flest þau rök sem þarf að hafa í þessu máli.
    Í fskj. með till. kemur fram á bls. 9 áætlun um kostnað. Ég tel það mjög til fyrirmyndar að það skuli koma fram í tillögu sem þessari áætlun um það hversu mikið það muni kosta að hrinda henni í framkvæmd eða alla vega hluta af henni. En það sem ég þó tók eftir og finnst dálítið sérkennilegt er að það er eingöngu talað um gerð gróðurkorts af Íslandi í mælikvarðanum 1:500.000. Slíkt kort mundi ekki gefa þær upplýsingar sem gert er ráð fyrir í þessari till. og þær upplýsingar sem eru nauðsynlegar til þess að gera sér grein fyrir hvernig gróðurfari er háttað á landinu. Það er mjög erfitt að skoða það á gervitunglamyndum, eins og hér er gert ráð fyrir að verði notaðar, að gera sér grein fyrir nákvæmlega hvernig gróðri er háttað í smærri mælikvarða. Það er hægt að skoða myndir, en eins og kom fram hjá hæstv. umhvrh. er greiningarhæfni gervitunglamynda svona í kringum 60 -- 70 m, jafnvel upp í 75 metra, þ.e. það er ekki hægt að greina myndirnar nákvæmar niður og það er varla hægt að nota það til þess að gera gróðurkort í þeirri merkingu sem hingað til hefur verið notuð um gróðurkort. Og þeir sem hafa verið að gera gróðurkort af landinu hingað til hér á landi, sem væntanlega eru einna helst hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins mundu varla eða ekki getað notað myndir sem þessar. En þær eru hins vegar mjög nauðsynlegar eftir sem áður til stuðnings við aðrar mælingar, t.d. flugmælingar. Flugmælingar gefa möguleika á greiningarhæfni niður í miklu minna, kannski 2,5 til 5 metra þannig að hægt er að skoða gróðurlendið miklu nákvæmar. Til þess að hægt sé að gera þetta með slíkri tækni þá þyrfti einnig að taka tillit til þess í kostnaði. Mjög gott væri ef hægt væri að hrinda í framkvæmd þessu máli sem við hefðum þurft að vera búin að gera fyrir lifandis löngu.
    Ég vil jafnframt benda á að Upplýsinga - og merkjafræðistofa Háskóla Íslands, sem hér hefur aðeins verið minnst á, hefur sérhæft sig í að taka flugmyndir og vinna úr þeim þannig að það er alveg hægt að gera hluta af þessu nú þegar hér á landi með þeim tækjabúnaði sem til er. Þó svo að Landmælingar Íslands hafi eingöngu talað um gervihnattamyndir --- og ég heyrði ekki betur í máli hv. flm. hér áðan en að hann talaði eingöngu um það --- þá eru flugmælingar nauðsynlegar einnig.
    Hjá Merkjafræðistofu Háskóla Íslands, sem hefur sérhæft sig í að taka myndir og vinna úr þeim, er til sérfræðiþekking í fjarkönnun. Merkjafræðistofan hefur m.a. tekið að sér að gera gróðurrannsóknir og er ég hér með skýrslu frá Upplýsinga - og merkjafræðistofu

um fjarkönnunarmælingar vegna gróðurrannsókna á Auðkúluheiði. Og mig langar til, með leyfi forseta, að lesa örlítið brot af inngangi þessarar skýrslu, en þar segir:
    ,,Við Upplýsinga - og merkjafræðistofu Háskólans hefur á undanförnum árum verið unnið að því að koma á laggirnar starfhæfri fjarkönnunarstofu og bæta þar með úr þeirri brýnu þörf sem verið hefur á markvissum fjarkönnunarrannsóknum hér á landi. Undirbúningsstarfið hefur miðað að því annars vegar að koma upp tækjum til fjarkönnunarmælinga úr flugvél og hins vegar sérhæfðum tölvubúnaði til að vinna úr myndefni á stafrænu formi.``
    Síðar í skýrslunni stendur: ,,Haustið 1989 voru svo höfð samráð við Rannsóknastofnun landbúnaðarins um að prófa fjarkönnunarbúnað, UMH, í tengslum við gróðurrannsóknir stofnunarinnar og í september var flogið yfir tilraunareiti á Auðkúluheiði samtímis því sem gerðar voru nauðsynlegar mælingar á jörðu niðri til kvörðunar á myndgögnum.``
    Þarna virðist því vera fyrir hendi þekking sem að hluta til kemur þá inn í þetta sem hér er verið að tala um. Hér var minnst á Kolbein Árnason í framsöguræðu en hann er einn af þremur höfundum þeirrar skýrslu sem ég vitnaði hér til. En Merkjafræðistofa Háskólans hefur ekki einungis unnið hér á landi á Auðkúluheiði. Hún hefur einnig verið við gróðurmælingar í Krýsuvík. Einnig hefur stofan unnið að gróðurrannsóknum á Grænlandi. Hér á landi er því til þekking sem við getum svo gjarnan nýtt okkur í tengslum við þessa tillögu og auðvitað hlýtur það að hafa verið meiningin. Ef við lítum aftur á bls. 9 í greinargerðinni þar sem verið er að tala um kostnað við verkefnið, þá væri kannski hægt að hluta til að spara eitthvað þar vegna kaupa á hugbúnaði og tölvu til myndvinnslu að einhverju leyti þannig að verkefnið væri ekki alveg eins dýrt. Þannig væru e.t.v. meiri líkur á að hægt væri að fá stuðning við að hrinda þessu í framkvæmd.
    Ég vil leggja áherslu á það og segja enn einu sinni að ég styð heils hugar þessa þáltill. og tel mjög mikilvægt að ef hún verður samþykkt, sem ég auðvitað vona, þá verði lögð mikil áhersla á samvinnu allra þeirra aðila hér á landi sem koma nálægt þessu, þ.e. Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, Merkjafræðistofunnar og Landmælinga, og fleiri aðila. Það er aðalatriðið að við reynum að sameinast um að styðja mælingar sem þessar. Þær eru okkur mjög mikilvægar.
    Að lokum vil ég minnast á eitt í viðbót. Með þessum mælingum sem hér er verið að tala um og nú þegar er hægt að hluta til að framkvæma hér á landi hjá Merkjafræðistofu Háskólans er einnig hægt að gera verulegar mengunarmælingar. Það er því hægt að nota svona tæki ekki eingöngu til gróðurrannsókna heldur til mikið fleiri rannsókna. Ég vil leggja höfuðáherslu á að við reynum að hraða samþykkt þessarar till. og vona að það verði gert á þessu þingi.