Matvælaaðstoð við Sovétríkin
Fimmtudaginn 17. janúar 1991


     Stefán Valgeirsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Það er náttúrlega fjarri mér að ætla að fara að taka þessa till. upp. Það var málflutningurinn sem ég var að gagnrýna, rökin fyrir því að taka þetta til baka. En eins og hv. þm. ræddi þetta, hann vísar þessu frá með dagskrártillögu að hann taldi. Það hefur aldrei gerst, mér er þá farið að förlast ef það hefur nokkurn tíma gerst á minni þingtíð. Það var það sem ég sagði.