Matvælaaðstoð við Sovétríkin
Fimmtudaginn 17. janúar 1991


     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseti tekur undir að hér hefur verið farið allóvenjulega að, en þó á engan hátt í trássi við þingsköp. Segja má að eðlilegast hefði verið að draga tillöguna til baka fyrir fund þannig að hún kæmi ekki til umræðu, en þar sem hv. 5. þm. Norðurl. v. hefur óskað eftir að gera grein fyrir sínu máli, þá sér forseti raunar ekki neitt athugavert við það.