Flm. (Jón Helgason) :
Hæstv. forseti. Á þskj. 276 hef ég flutt till. til þál. um stofnræktun kartöfluútsæðis ásamt hv. þm. Guðna Ágústssyni og Valgerði Sverrisdóttur. Till. hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að fela landbrh. að koma nú þegar af stað stofnræktun kartöfluútsæðis sem fullnægt geti þörfum allra kartöfluframleiðenda.``
Það eru gerðar sívaxandi kröfur til kartöflubænda, ekki aðeins hérlendis heldur einnig í öðrum löndum. Neytendur ætlast til að kartöflur séu heilbrigðar, ódýrar og lítið sé notað af áburði og öðrum efnum frá efnaiðnaði til varnar skordýrum o.fl. Um þetta og margt annað sem snertir framleiðslu og sölu kartaflna var fjallað á alþjóðlegri ráðstefnu um þessa nytjajurt sem haldin var í Skotlandi á síðasta ári. Þar var skýrt frá niðurstöðum ýmissa rannsókna um það hvernig hægt er að ná þessum markmiðum án þess að draga úr magni og gæðum uppskerunnar.
En um eitt voru þó allir sammála á þessari ráðstefnu, að það væri grundvallaratriði til að fá góða uppskeru að hafa heilbrigt útsæði og til þess að það sé tryggt þarf að nota útsæði sem er komið úr stofn - eða vefjaræktun í upphafi.
Hér hefur hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins undir forustu Sigurgeirs Ólafssonar verið lagður grunnur að slíkri ræktun af stofnunum gullauga, Helgu og rauðum íslenskum. Hins vegar hefur ekki verið hægt að hrinda framhaldsræktun af stað vegna þess að það hefur skort fjármagn til þess.
Í lögunum um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvöru var gert ráð fyrir því að eignir Grænmetisverslunar landbúnaðarins gengju til þessa verkefnis, en vegna þess hve dráttur varð lengi á uppgjöri þeirra eigna hefur það fjármagn ekki enn þá verið handbært. Í bili er því nauðsynlegt að gera aðrar ráðstafanir til þess því að málið þolir enga bið. Það er af þeim sökum sem ég hef leyft mér að flytja þessa þáltill., til þess að ýta á eftir að á því verði ráðin bót.
Það eykur enn þá þörfina á því að gera átak í þessu máli að nýlega hefur komið upp kartöflusjúkdómur, hringrot, á nokkrum bæjum norður í Eyjafirði þar sem stofnræktun kartaflna hefur farið fram á undanförnum árum og áratugum. Það er því nauðsynlegt að einnig fari fram ítarleg rannsókn á því hvar er að finna bæi og ræktendur þar sem laust er við slíka sjúkdóma og herða eftirlit með allri vinnu við stofnræktunina.
Það er nauðsynlegt að allir þeir sem framleiða kartöflur til sölu eigi kost á þessu útsæði því að neytendur gera eðlilega sívaxandi kröfur um góða og vel útlítandi vöru. Framleiðendur verða líka að sjálfsögðu að vinna vel að því að koma á góðu skipulagi um dreifingu og sölu á framleiðslu sinni til þess að kostnaðurinn verði sem lægstur og jafnframt verði hægt að koma framleiðslunni á markaðinn á þann hátt sem best til að koma til móts við þarfir neytenda á hverjum tíma. Og gott skipulag á framleiðslu stofnútsæðis ætti að geta hjálpað til að koma slíku skipulagi í framkvæmd.
Hér er um að ræða svo brýnt hagsmunamál íslenskrar kartöfluframleiðslu að það er óhjákvæmilegt að hefjast þegar handa og það getur orðið mikilvægur þáttur til að treysta aftur grundvöll þessarar mikilvægu búgreinar.
Ég vil svo leyfa mér að óska þess að að lokinni þessari umræðu verði till. vísað til síðari umr. og atvmn.