Valgerður Sverrisdóttir :
Hæstv. forseti. Ég vil taka undir hvert orð sem hv. 1. flm. hafði hér um þessa till. og er ég einn af meðflm. Mig langar að segja hér örfá orð til þess að ítreka mikilvægi þessa máls. Ástandið er þannig í dag að engin stofnræktun fer fram í landinu. Það útsæði sem verður á boðstólum nú í vor er þannig fengið að það hafa verið tekin sýni hjá öllum þeim bændum sem hafa verið með stofnrækt eða útsöluleyfi og þeir sem koma út úr þeirri könnun með heilbrigðar kartöflur fá leyfi til að selja, en það er ekki til frambúðar. Því er mjög mikilvægt að það fáist aukið fjármagn í það viðfangsefni sem unnið er að hjá Rannsóknastofnun landbúnaðarins undir stjórn Sigurgeirs Ólafssonar. Er það unnið á svipaðan hátt og hefur tíðkast hjá ýmsum nágrannaþjóðum sem eru miklar kartöfluþjóðir, eins og Danmörk og Holland, sem sagt að það sé byrjað hreint og beint í tilraunaglasi með þessa ræktun.
Kartöflurækt er mikilvæg búgrein hér á landi og ég legg mikla áherslu á að þessi till. nái fram að ganga og að þarna finnist lausn fyrir kartöflubændur og fyrir neytendur í landinu.