Flm. (Stefán Valgeirsson) :
Virðulegi forseti. Á þskj. 418 höfum við nokkrir þingmenn leyft okkur að flytja till. til þál. en flm. með mér eru hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson, Margrét Frímannsdóttir, Karvel Pálmason, Eggert Haukdal og Þórhildur Þorleifsdóttir. Tillgr. er svohljóðandi, með leyfi forseta:
,,Alþingi ályktar að fela menntmrh. að láta kanna af þekkingu og hlutleysi hvernig Ríkisútvarpinu hefur tekist að fylgja ákvæðum 15. gr. útvarpslaga, nr. 68/1985, sérstaklega þeim sem kveða á um fyllstu óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð.``
Alkunnugt er hve fjölmiðlar eru ráðandi um upplýsingu og skoðanamyndun almennings og fjölmennra hópa opinberra starfsmanna. Eru margir þeirrar skoðunar að engin starfsemi í landinu sé eins mótandi fyrir þjóðlífið og ráðandi um velferð þjóðarinnar og upplýsing hennar.
Ríkisútvarpið er öflugasti fjölmiðill þjóðarinnar og útvarpslögin, nr. 68/1985, setja því ákveðin fyrirmæli við gerð og flutning frétta og annars dagskrárefnis. Meðal þeirra er fyllsta óhlutdrægni í frásögn, túlkun og dagskrárgerð. Athugasemdir hafa komið fram um að ekki hafi ætíð tekist að fylgja þessum fyrirmælum. Svör forsvarsmanna Ríkisútvarpsins við þessum athugasemdum hafa verið mismunandi, en tæpast er unnt að gera ráð fyrir að þau hafi verið óhlutdræg í öllum greinum. A.m.k. er það útbreidd skoðun að Ríkisútvarpið og Sjónvarpið fylgi þessum lagafyrirmælum ekki til hins ýtrasta og langt í frá.
Veigamikill og vaxandi þáttur í öllu starfi þróaðra þjóða er athugun og prófun á því hvernig tekist hefur til með þegar unnin störf og rannsóknir á því hvernig betur má gera. Íslensk stjórnvöld leggja nokkuð til rannsókna og mikið til alls konar eftirlits, svo sem þess sem felst í starfi endurskoðenda og dómstóla. Mikilsverður þáttur fjölmiðlanna í þjóðlífinu hefur þó að mestu farið á mis við skipulagðar athuganir sjálfstæðra kunnáttumanna sem hafa miðað að því að kanna hversu vel hefur tekist að vinna þau verk sem fjölmiðlunum eru falin. Till. miðar að því að bæta úr þessu kæruleysi sem starfi Ríkisútvarpsins hefur verið sýnt.
Flm. leggja áherslu á að könnunin taki fyrst og fremst til frétta og annars efnis sem helst tengist stjórnmálum og að sá eða þeir sem fengnir verða til að vinna verkið hafi kunnáttu til og vinni verkið af óhlutdrægni. Fremur verði athugað það sem þegar hefur verið gert en það sem verið er að vinna að eða stendur fyrir dyrum og þessi athugun verði fremur takmörkuð en yfirgripsmikil. Nauðsynlegt er að könnuninni verði hraðað og helstu niðurstöður verði lagðar fyrir Alþingi fyrir lok ársins 1991.
Það má líka líta til þess að í sumum tilvikum er sjálfsagt ekki maklegt sem hefur verið borið á t.d. fréttamenn og þeir eiga rétt á því að þeirra vinna verði athuguð og þeir fái leiðréttingar ef bæði stjórnmálamenn, fjölmiðlar og almenningur ber á þá hlutdrægni sem ekki væri stafur fyrir. En okkur sem hér
vinnum finnst oft að það skorti mjög á að hlutleysis sé gætt. T.d. þegar skoðanakannanir eru gerðar og þegar einhverjir fjölmiðlar eins og t.d. blöðin, jafnvel þau blöð sem eru talin hlutlaus í stjórnmálalegu tilliti, að um leið og þeir segja: þetta er þetta blað, sama hvað það er, þá eru fjöldamargir sem líta svo á að þarna sé um persónulegar njósnir að ræða. Þeir hringja í ákveðin símanúmer. Þeir vita hverjir eiga þennan síma og viðbrögðin eru þau oft og tíðum að mér er tjáð að fólkið svarar allt öðruvísi heldur en það mundi gera eða svara ekki af þessum ástæðum. Þess vegna er það eitt af því sem þyrfti auðvitað að gera varðandi skoðanakannanir, t.d. um pólitíska afstöðu fólks, að þá þyrfti það að vera einhver ákveðin stofnun sem gerði þær alltaf þannig að ef á að marka þau svör, þá verða þeir sem spurðir eru að hafa það á tilfinningunni að það sé allt í lagi, það geti ekkert skaðað þá á neinn hátt þó að þeir svari eins og hugur þeirra stendur til.
Virðulegi forseti. Ég legg til að þessari þáltill. verði vísað til félmn. og síðari umræðu.