Síðustu atburðir í Eystrasaltsríkjunum
Mánudaginn 21. janúar 1991


     Hjörleifur Guttormsson :
    Virðulegur forseti. Það er ekki liðin nema rétt vika frá því að við ræddum hér á Alþingi þá voveiflegu atburði sem gengið hafa yfir ákveðna hluta heimsins á undanförnum dögum. En það er ástæða til þess í dag að ræða hér enn frekar síðustu atburði sem orðið hafa í Eystrasaltsríkjunum. Tilefni þess að ég kveð mér hér hljóðs utan dagskrár er árás sovéskra sveita á innanríkisráðuneytið í Riga í Lettlandi og líkur á valdatöku Sovétríkjanna í landinu, jafnvel síðar á þessum sólarhring.
    Þegar við ályktuðum hér fyrir viku um málefni Litáens, þá var málinu líka beint til Moskvu vegna Eystrasaltsríkjanna allra þar sem Alþingi skoraði á stjórnvöld í Sovétríkjunum að hætta þegar í stað hvers konar beitingu hervalds í samskiptum við Eystrasaltsríkin og flytja herlið sitt brott þegar í stað. Þessi orð okkar og ákall Alþingis hefur ekki hlotið áheyrn. Þvert á móti. Nú hefur hrammur Moskvu hitt Lettland þar sem sovéskar sérsveitir tóku innanríkisráðuneytið í gærkvöldi. Þar féllu fimm manns a.m.k. og margir særðust. Valdataka er yfirvofandi í landinu og í Eistlandi magnast spenna þar sem reynt er að skapa glundroða með sprengingum og sálrænum hernaði til að byrja með. Öll Eystrasaltsríkin eiga nú augljóslega á hættu árásir sovéskra sveita og handbenda þeirra í lýðveldunum. Markmiðið er að knésetja sjálfstæðisbaráttu allra Eystrasaltsríkjanna og koma þar upp leppstjórnum sem auðsveipar eru miðstjórninni í Kreml. Aðferðirnar sem beitt er eru gamalkunnar og sviðsetningin sem þeim fylgir með lygum, prettum og upplognum sögum sem við heyrum nú í fréttum.
    Gegn þessum áformum hljóta Íslendingar að rísa einróma og veita Eystrasaltsríkjunum áfram þann stuðning sem við megnum. Alþingi hefur ítrekað ályktað um málið. Utanrrh. Íslands hefur undanfarna daga heimsótt Eystrasaltsríkin og flutt þangað stuðningsyfirlýsingar okkar. Þingflokkar hér á Alþingi hafa ályktað um málið, m.a. þingflokkur Alþb. fyrir viku síðan þar sem hann átaldi það sinnuleysi sem gætt hefur á Vesturlöndum varðandi málefni Eystrasaltsríkjanna og skoraði á að öllum ráðum yrði beitt á alþjóðavettvangi til þess að telja Sovétríkjunum hughvarf og koma í veg fyrir annan og verri voða en þar er þegar orðinn.
    Ég vil, virðulegi forseti, leggja alveg sérstaka áherslu á það, fyrir utan þau mótmæli sem fram eru komin, að málið verði að frumkvæði Íslands flutt inn á vettvang Sameinuðu þjóðanna. Ég hef raunar ítrekað mælt fyrir því í utanrmn. að það verði gert, bæði inn á vettvang öryggisráðsins og allsherjarþingsins, því að það er þar, á samkomu þjóðanna, sem við eigum að reyna að skapa þann þrýsting sem frekast er unnt til þess að rétta hlut þeirra sem nú eru valdi og órétti beittir, smáþjóðanna við austanvert Eystrasalt.
    Ég vil beina þeirri fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar, til hæstv. forsrh. og hæstv. utanrrh., til hvaða aðgerða ríkisstjórn Íslands hefur þegar gripið vegna síðustu atburða og versnandi þróunar í Eystrasaltsríkjunum og

til hvaða ráða áformað sé að grípa nú í dag því að þessi mál þola sannarlega enga bið. Við þurfum að tala hvarvetna þar sem við höldum að líkur séu á að rödd okkar geti gagnast þeirri réttlátu baráttu sem þessi ríki heyja nú við ofureflið.