Síðustu atburðir í Eystrasaltsríkjunum
Mánudaginn 21. janúar 1991


     Forsætisráðherra (Steingrímur Hermannsson) :
    Virðulegi forseti. Ég tek undir það með hv. fyrirspyrjanda að vitanlega þurfum við Íslendingar að beita okkur eins og við getum, hvar sem við megum, gegn því ofbeldi sem þarna er framið. Ég óskaði eftir því strax í morgun við utanrrn. að þessu yrði harðlega mótmælt í Moskvu og ég veit að starfandi utanrrh. getur upplýst að það hefur þegar verið gert.
    Við höfum beitt okkur fyrir því innan Norðurlandanna að málið yrði tekið upp hjá öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en enn hefur það ekki verið afgreitt þar. Við munum ræða þetta mál í ríkisstjórninni í fyrramálið --- utanrrh. kemur til landsins í nótt --- og ég tel sjálfsagt að halda þeirri viðleitni áfram að fá málið þar tekið upp.
    Við höfum einnig beitt okkur fyrir því að málefni baltnesku landanna, Eystrasaltslandanna, verði tekin upp í ráði Atlantshafsbandalagsins. Þar hafa verið samþykkt harðorð andmæli gegn því sem þarna er að gerast, en við munum halda því að sjálfsögðu áfram. Ég tel einnig afar mikilvægt að við beitum okkur eins og við megum við ýmsar samstarfsþjóðir okkar, sérstaklega stórveldin, að þau láti til sín taka í þessu máli. Með öðrum orðum munum við gera hvað það sem við teljum að geti orðið þessum löndum að liði.