Kristín Einarsdóttir :
Virðulegur forseti. Það eru hörmulegar fréttir sem nú berast frá Eystrasaltsríkjunum. Þær eru framhald af því sem hefur verið að gerast undanfarna daga, en síðustu fréttir hrella mest.
Auðvitað eigum við að fordæma harðlega það sem þarna er að gerast og ég vona að mótmæli ríkisstjórnarinnar í gegnum sendiherrann hafi aðeins verið fyrsta litla skrefið og vel verði haldið á þessum málum þannig að það komi skýrt fram hvaða afstöðu við Íslendingar höfum.
Það verður að segjast að það voru ákveðin vonbrigði þegar samið var um öryggiskerfi Evrópu í nóvember í París og málin gerð upp eftir síðustu heimsstyrjöldina að málefni Eystrasaltsríkjanna voru skilin eftir. Þar með var óbeint viðurkenndur réttur Sovétríkjanna til að deila þar og drottna. Það voru aðeins Íslendingar og nokkrir aðrir sem reyndu að vekja athygli á þessu. Valdhafarnir í Moskvu ganga nú fram í skjóli styrjaldarátaka og e.t.v. einnig vegna þess hve illa var haldið á málum af hálfu ríkjanna sem funduðu um öryggiskerfið í Evrópu. Þannig að við verðum að nota öll þau ráð sem við getum til þess að koma okkar mótmælum á framfæri og styðja Eystrasaltsríkin í baráttu þeirra fyrir sjálfstæði. Ég vil taka undir það sem hér hefur komið fram að við þurfum að beita áhrifum okkar, sérstaklega á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. Það er réttur vettvangur og engin ástæða til annars en að þessi mál verði tekin þar upp, ekki síst með tilliti til þess hversu fljótt þjóðir brugðust við þegar innrásin í Kúvæt var gerð í ágúst sl.