Þorsteinn Pálsson :
Frú forseti. Ég hygg að þær umræður sem hér hafa farið fram sýni enn á ný að það er mikill vilji til þess að samstaða haldist hér um raunhæfar aðgerðir. Auðvitað er spurningin ekki fyrst og fremst sú hvort Ísland gegnir forustuhlutverki. Aðalatriðið er það að okkur takist á alþjóðavettvangi að hafa þau áhrif sem leiða til þess að þjóðirnar við Eystrasalt nái markmiðum sínum um að endurheimta fullveldi sitt og sjálfstæði.
Það er kórrétt sem hér hefur komið fram að í verki höfum við viðurkennt þessi ríki í 50 ár sem hluta af Sovétríkjunum þó að viðurkenning okkar frá því um 1920 standi enn að lögum. Einmitt þess vegna er mikil þörf á því að gripið sé til virkra aðgerða í þeim tilgangi að sýna að hér eru nýjar aðstæður. Yfirvöld í Eystrasaltsríkjunum hafa freistað þess að koma upp eigin tollgæslu, en enn sem komið er hefur miðstjórnarvaldið í Kreml hindrað það að sú tollgæsla gæti orðið virk. Ég er þeirrar skoðunar og ítreka það enn að færi svo að Ísland og aðrar þjóðir mundu stofna til stjórnmálasambands við þessi ríki, eins og sakir standa, þá mundi það enn þrengja kosti Sovétstjórnarinnar á alþjóðlegum vettvangi og veikja stöðu þeirra til þess að fara fram með ofbeldi. Þess vegna vona ég að þeim hugmyndum sem hér hafa verið nefndar verði flestum hverjum hrint í framkvæmd, svo og þeim tveimur sem ég tel að hér skipti mestu máli, þ.e. að taka málið upp á vettvangi öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og hefjast þegar handa við að undirbúa stofnun stjórnmálasambands.